Vikan


Vikan - 02.12.1971, Page 48

Vikan - 02.12.1971, Page 48
GINSBO ÚR Vönduð gjöf Nýjar gerSir Kaupið úrin hjá úrsmið Fagmaðurinn tryggir gæðin FRANCH MICHELSEN úrsmíðameistari Laugavegi 39 - Sími 13462 - Reykjavík til íéllu í húsum þeirra, er mestar höfðu tekjumar, voru orðnar ærið margar af konum verkamanna og sjómanna. Mamma skuldaði eitthvað f kaupfélaginu og þóttist alls ekki geta beðið um meira lán. Hún hafði talað um þetta allt saman við drengina sína núna í fyrradag, sagt við þá, að hún vænti þess af þeim, að þeir tækju því með stillingu, þó að hún gæti ekkert gefið þeim á jólunum og litið breytt til í mat. Upp úr nýárinu mundu bátarnir fara að sækja sjó — og nýtt hraðfrystihús tæki til starfa, og þá yrði nóg og vel borguð vinna. Nú var Þorláks- messa á morgun, og svo hafði þá Bjarna dottið í hug, að þeir bræðurnir reyndu að skreppa út í Höfðadjúpið. í sumar höfðu þeir stundum selt þorsk og kola fyrir tugi króna, og mamma þeirra hafði hælt þeim fyrir dugnaðinn, en Þor- kell sagði, að það væri nú ann- að hásumar en svartasta skammdegið. Þessi fluga Bjarna litla væri vitleysa og barna- skapur, enginn fiskur í Djúpinu og allra veðra von. En Bjarni hafði skírskotað til þess, sem Jakob gamli hafði margsagt þeim um vetrarveiði í Höfða- djúpi — og veðrið, — það gat engu síður haldizt gott að vetr- inum heldur en að sumrinu. Hugsa sér að koma inn að bryggju með nokkur hundruð pund af stærðar þorski! Og loks hafði Þorkell fallizt á að reyna þessa ferð, úr því að útvarpið og Jakob voru sammála um veðrið. Það var tekið að birta, þegar drengimir töldu sig komna út í Höfðadjúp. Þeir lögðu upp árarnar og gripu til færanna. Þeir höfðu aldrei rennt færum í Djúpinu heldur aðeins inni á grynningunni, og Þorkell sagði: „Það er bezt að ég athugi dýpið, en þú dokir við. Það á að vera þrítugt og upp í fertugt vatn í Djúpinu, en ekki nema frá sjö og upp í fjórtán faðma á grynningunni — mest átján, hérna í hánorður á Bláfellið. Hann fræddi mig um þetta, hann Jakob gamli, einu sinni í haust.“ Hann leysti utan af færis- hönkinni, tók eina síldina, skar af henni væna tölu og beitti síð- an öngulinn, sem hann hafði fágað vandlega daginn áður. Því næst fleygði hann út lóðinu og lét færið renna úr greip sinni. Hann stóð þarna miðskips í bátnum, grannur og renglu- legur drengur, ljós yfirlitum og bláeygur. Hann var sviphreinn og góðlegur og svipurinn greindarlegur. Bjarni litli sat á hálsþóttunni. Hann var lágur og hnellinn, dekkri á hár og hörund og augun grá. Hann var sviphreinn eins og bróðir hans, en brúnaþyngri og festu- legri. Út úr augum Þorkels skein áköf óþreyja, en í augna- ráði Bjama var dulkennd glóð. Allt í einu hætti færið að renna. „Fertugt," sagði Þorkell. „Er- um í sjálfum pyttinum." Hann tók grunnmál og fór siðan að keipa. Bjarni litli fleygði sér út á borðstokkinn og horfði niður í sjóinn, eins og hann byggist við að sjá fiskinn niðri í djúpinu. I'orkell keipaði og keipaði og varð ekki var, og brátt kom vonleysisblær á andlitið. Hann mælti: „Vitaskuld fáum við ekki nokkurt kvikindi." Bjarni litli rétti sig upp og lagði út árarnar. „Við reynum að kippa norð- ur í hallinn. Hann Kobbi gamli hefur sagt, að þar væri oft fisk- ur, þó að maður yrði ekki var niðri í sjálfu Djúpinu.“ Og Bjarni spyrnti fótum í þóttu og reri bakföllum. Þorkell dró upp, hugaði að beitunni á önglinum og horfði út á sjóinn. Loks sagði hann andstuttur: „Þetta ætti að vera nóg. Þetta dýpi er ekki nema pyttskömm." Bjarni litli lagði upp, og Þor- kell renndi. Bjarni leysti utan af færinu sínu. Svo leit hann á Þorkel og sagði fastmæltur: Framhald á bls. 57. HANSA-húsgögn H A N S A - gluggatjðld HANSA-kappar H A N S A - veizlubakkar Vöndutí íilenzk framleiðsla. Umboðsmenn um allt land 48 VIKAN 48. TBL
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.