Vikan


Vikan - 02.12.1971, Page 58

Vikan - 02.12.1971, Page 58
TVÆR FLUGUR I EINU HÖGGI Þetta er svefnsófasettið Venus-Lux. Glæsilegasta svefnsófasettið á markaðinum. KOMIÐ - SJÁIÐ - SANNFÆRIST HlDS«3AIDNAHlDSI«) HIF. Auðbrekku 63, Kópavogi, sími 41694 minnsta kosti.“ Það var tekið að skyggja, þegar báturinn litli þokaðist inn fyrir Höfðann. Drengirnir sátu sinn á hvorri þóttu og reru. Þeir voru svitastorknir og þreytu- legir. Þeir reru sleitulaust, en árarnar hreyfðust seint og sila- lega, og báturinn rétt aðeins sé áfram. Hann var nú þyngri undir árum en um morguninn, því að hann var þóttufullur af fiski bæði að framan og aftan. Þar gljáði á grá og gul bök og hvíta kviði, og hér og þar voru blóðflekkir og lifrað fiskblóð. Samfestingar drengjanna voru líka drifnir blóði og ermar og skálmar stirðnaðar af frosti. Nú herti goluna, sem lagt hafði út fjörðinn, og lágrisa vindaldan hækkaði. Um hádegisbilið hafði drifið yfir snjóþoku, áður en dreng- ina varði. Þorkell vildi þegar halda af stað til lands, og Bjarni litli lét hann ráða. „Það var þessi stefna,“ sagði Þorkell og sneri bátnum á stjómborða, og aftur lét Bjarni litli hann ráða. Þeir reru um hríð þegjandi. Svo lagði sá yngri upp árina og mælti: „Það er stillilogn og engin alda. Við getum vel verið að róa út úr firði.“ Þorkell leit hvasst við honum og virtist ætla að ávíta hann, en- hætti við það, hvarflaði aug- unum og lagði einnig upp. Það var satt, sem Bjarni litli sagði. Þó að öldusog hefði verið við Höfðann, þegar þeir héldu að heiman, varð ekki séð hin minnsta hreyfing á lygnum, blýgráum fletinum. Þeir sátu um hríð sinn á hvorri þóttu og hreyfðu ekki legg eða lið. Svo leit Þorkell á bróður sinn, föl- ur, dapurlegur og skjálfandi. „Nú þýðir ekki einu sinni að leita að okkur,“ sagði hann með munnherkjum. „Svona ætlar þetta þá að fara.“ Bjarni litli sneri sér undan. Herðarnar á honum skulfu. En skyndilega vék hann sér að bróður sínum og mælti, augun vot, en festa og harka í rómn- um: „Við leggjum út, róum báðir á sama borðið, róum í hring til þess að halda á okkur hita.“ Og Þorkell rétti úr bakinu. Þetta var heillaráð. Þeir tóku báðir að róa, fyrst af kappi, síð- an í hægðum sínum, gættu þess aðeins að halda á sér hita. Þeir héldu þessu áfram langa hríð, en loks gerði Þorkell hlé á róðrinum óg leit stóreygur og undirleitur á bróður sinn. „Eigum við að biðja hann, Baddi litli?“ sagði hann hljóð- lega. „Nei,“ sagði yngri bróðirinn hvasst og hélt áfram róðrinum. Og Þorkell fór aftur að róa. Enn leið góð stund. Svo fundu þeir, að um þá lék svali, og brátt tók þokuna að greiða í sundur. Eftir nokkrar mínútur var orðið fjallbjart. Bjarni litli kinkaði kolli. .„Ég vissi það,“ sagði hann, „að hann mundi ekki gefa okk- ur allan þennan fisk og lofa okkur svo ekki að komast heim. En sérðu! Við höfum áðan stefnt út úr firði, — sko, við erum utan við Höfðadjúpið.“ „Jæja, það þýðir nú ekki að ræða um það,“ sagði Þorkell. „Nú er að taka stefnuna laust við Höfða og reyna að komast heim í björtu. Hugsaðu þér fólkið, þegar báturinn rennur að bryggjunni!“ Bjarni litli svaraði ekki. En hann brosti lítið eitt, og augun tindruðu. Hann hafði svo lengi vel róið rösklega, en nú um hríð höfðu áratogin verið stutt og máttlítil, og þegar goluna og bárugjálfr- ið jók, hætti bátnum að miða áfram. Og þá er Þorkell herti róðurinn, þrátt fyrir lamandi þreytu í handleggjum og fótum, snerist báturinn á stjórnborða. Þorkell lagði upp og mælti: „Við komumst aldrei inn í vog, hvað þá inn að bryggju. Nú er ekki annað ráð fyrir hendi en lenda hérna upp í Höfðann og svo fari annar okkar inn eftir og sæki mannhjálp, en hinn nái sér í stein í fjörunni, leggi bátn- um og bíði.“ Hann sé saman í herðunum, og titringur fór um andlitið: „Það átti... átti þá ekki að lánast okkur að kom- ast inn að bryggju í björtu með 58 VIKAN 48. TBL
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.