Vikan - 02.12.1971, Síða 71
einhverjum, sem þú þekkir. Og
þú Darst ekki kennsl á stúlk-
urnar?
Ég kvað nei við því. Þó hafi
ég kannazt eitthvað við þá
eldri, þá sem talaði, en ekki
komið henni fyrir mig. Lýsi ég
þeim svo nánara. Sú eldri hafi
verið með mikið hár, ljóst og
liðað. Báðar hafi þær verið í
bleikum kjólum, en ekki hafi
ég tekið eftir hvort þær voru í
eins litum sokkum eða berfætt-
ar. Steinunn telur þá upp þær
stúlkur í plássinu, sem til greina
gátu komið, en ég svara alltaf
eins. Nei, ekki var það hún.
Ekki var það hún...
Morguninn eftir þurfti ég að
fara til læknisins klukkan níu,
því að hann ætlaði í burtu. Á
leiðinni til hans mæti ég stúlku,
sem Anna hét, vestan af Helln-
um, þar sem ég átti heima.
Segir þú nokkuð í fréttum að
heiman, Anna mín? spyr ég,
þegar við höfum heilsazt. Hún
kvað nei við því, nema að það
hafi öllum liðið vel, þegar hún
fór. — En nú má ég víst ekki
tefja, segir hún, — því að ég
er kölluð í símann.
Og með það skiljum v'ið. Ég
fer til læknisins, hún á símstöð-
ina. Þegar ég kem frá læknin-
um, mæti ég henni aftur. Jæja,
sæl vertu aftur, Anna mín, segi
ég. Er ekki allt gott að frétta?
— Nei svarar hún lágt, og
veiti ég því þá athygli, að henni
er brugðið. — Nei, það var
hörmuleg fregn, sem ég frétti
úr símanum.
— Jæja, Anna mín, segi ég
og mundi óðara orðin. Hvað
hefur komið fyrir?
— Hann Kristófer í Skjald-
artröð er dáinn.
— Og hvernig kom það til?
spyr ég.
— Hann var á sjó, svarar
hún. — Hann datt út.
Þarna heyrði ég öll orðin aft-
ur. Það var hörmuleg fregn, sem
ég frétti úr símanum ... hann
datt út. Og vegna þess að ég
hafði heyrt þau áður, kom mér
fréttin ekki éins á óvart og’
ella hefði orðið. Svo er ekki
meira um þetta, en viku seinna
er ég á gangi þarna í þorpinu.
Það var á sunnudegi. Hitti ég
þá konu sem ég þekki, systur
Kristófers heitins í Skjaldar-
tröð, þess er drukknaði. Hefur
hún orð á því við mig, að al-
drei líti ég inn til sín, þó að ég
sé á ferðinni. Ég svaraði því til,
að ég hefði ekki átt neitt erindi.
■— Littu nú inn til mín, segir
hún. — Ég er alein heima, líttu
nú inn til mín. Jú, ég var til í
það, en kvaðst ekki vilja stanza
Slysatrygging Sjóvá greiðir bætur við dauða af slysförum, vegna varanlegrar
örorku og vikulegar bætur, þegar hinn tryggði verður óvinnufær vegna slyss.
Slysatrygging Sjóvá er hagkvæm og ódýr.
Dæmi um iðgjöld:
Starf Dánarbætur örorkubætur Dagp. á viku Ársiðgjald
Skrifstofumaður 500.000. — 500.000. — 2.500. — 1.500. —
Sölumaður 500.000. — 500.000. — 2.500. — 2.000. —
Prentari 500.000. — 500.000. — 2.500. — 2.535. —
Trésmiður 500.000. — 500.000. — 2.500. — 4.355. —
Aðrar vátryggingarupphæðir eru að sj álfsögðu fáanlegar.
Leitið nánari upplýsinga i aðaiskrifstofunni eða hjá næsta umboðsmanni.
Slysatrygging SJÓVá
Tryggir yður allan sólarhringinn
Við vinnu - í frítíma - á ferðalögum
SJÓVATRYGGINGARFÉLAG ÍSLANDS!
INGÓLFSSTRÆTI 5 — REYKJAVÍK — SÍIÍ/II 11700
Blandið smátt skornum ávöxtum og sjrð-
um rjóma í ábœtisglös. Frískandi eftir-
réttur, sem strax nœr hylli fjölskyldunnar.
MJOLKURSAMSALAN I REYKJAVIK
48. TBL. VIKAN 71