Vikan


Vikan - 02.12.1971, Side 88

Vikan - 02.12.1971, Side 88
SKRIFVÉLIN Bergstaðastræti 3 sími 19651 Framleiðendur Canon reiknivélanna fullyrða: Með tilkomu nýju Canola L gerðanna verður ekki lengra komizt í smíði „elektron- iskra" reiknivéla. Aður en keypt er gerið samanburð á vélum og verði. Verð: Frá kr. 25.450,00. Bólu morðinginn Solution 41, nýja efnið frá Innoxa, hefur oft verið nefnt „Bólumorðinginn' þó meira í gríni en alvöru. öllu gríni fylgir þó nokkur alvara. Solution 41, frá Innoxa, er gert sérstaklega fyrir táninga. Solution 41 er litlaust sótthreinsandi efni, sem vinnur gegn algengu vandamáli unglingsáranna — óeðlilegu fitumagni í húðinni. Solution 41 er framleitt fyrir táninga, sem vilja stemma stigu við hinu víðkunna húðvandamáli. INNOXA Leitið upplýsinga um Solution 41. Reynið Solution 41. til sönnunar. Hann hóf hér bar- áttu gegn umferðarslysum, með því að banna gapareið á götum bæjarins, en áður þótti það mannalegt að þeysa sem mest milli húsa. Hann fyrirskipaði að fara varlega með eld, svo að ekki yrðu eldsvoðar í bænum. Hann var hvatamaður að stofn- un bæjarstjórnar í Reykjavík. Hann var því mjög fylgjandi að latínuskólinn væri fluttur frá Béssastöðum til Reykjavíkur, því að hann taldi að við það mundi koma meiri menningar- bragur á höfuðstaðinn. Hann barðist ósleitilega gegn drykkjuskap og allskonar ó- reglu. En lengst mun það þó halda nafni hans á lofti, að hann íslenzkaði Reykjavík. Konu sína Ragnhildi missti Stefán 1841 og var hún þá að- eins fertug að aldri. Þau áttu tvo syni, sem báðir hafa orðið kunnir menn, Ólaf sem lengi var ritstjóri í París, og Bertel Högna málfræðing, sem fór um allan heim, undi sér hvergi og andaðist seinast í Tacoma í Bandaríkjunum 1918. „Stefán faðir þeirra sendi þá peninga- lausa út í veröldina og urðu þeir að hafa ofan af fyrir sér sjálfir," segir Gröndal. Mikið áfall hefur það verið fyrir Stefán er hann missti sína ágætu konu, og mun hann al- drei hafa náð sér eftir það. Hann fékk sér nú ráðskonu, Jórunni Guðmundsdóttur 'frá Króki í Ölfusi, sem áður hafði verið „skólaþjónusta, ómenntuð og skass“, segir Gröndal. Hún var systir Guðríðar konu Gríms þess er fyrstur byggði á Gríms- staðaholti, og munu þær systur hafa verið föðursystur Sæfinns með sextán skó. Stefáni varð það á að gera Jórunni þungaða og þóttist þá skyldur til að kvænast henni. Voru þau gefin saman í hjónaband seint á ár- inu 1844. En mjög skipti þá um gengi og giftu Stefáns, og heim- ilislífið mun hafa orðið honum kvöl. Þessi ráðabreytni mun og mjög hafa orðið til þess að rýra álit hans í augum annarra, og gætti þess, að menn voru hon- um illviljaðri eftir en áður. Þegar Stefán kvæntist Jór- unni var börnum hans af fyrra hjónabandi úthlutað íbúðarhús- inu í móðurarf. Húsið var talið nr. 10 í Ingólfsbrekku, en í dag- legu tali var það aldrei nefnt annað en Landfógetahúsið. Stefán bjó áfram í húsinu og eignuðust þau Jórunn tvö börn. Mér sýnist hafa sannast á Stefáni hið fornkveðna að „betri eru góð yfirvöld en góð lög“, því að sum fyrirmæli hans munu trauðla hafa átt við lög að styðjast. En það var þó ekki fyrir embættisafglöp heldur fyrir of mikla þjóðrækni að hann var látinn sækja um lausn frá bæjarfógeta- og landfógeta- störfum 1848. Samt gegndi hann landfógetastörfum til 1. ágúst 1849, en var þá fengin Borgar- fjarðarsýsla. Um þessar mund- ir mun hann hafa skilið við konu sína, og svo fór hann al- farinn til Kaupmannahafnar 1852 og dvaldist „þar í einlífi og var mjög undarlegur" til dauða- dags 13. apríl 1883. —o— Jórunn sat kyrr í Landfógeta- húsinu með börn sín og leið svo fram í nóvembermánuð 1858. Þá var húsið boðið upp eftir kröfu skiptaráðanda. Hæstbjóð- andi var Martin Smith kaup- maður og konsúll. Hann hreppti SVEFNBEKKJAÚRVAL 1x2 er léttur, ódýr svefnsófi.. — 11.970,00 kr. gegn staðgr. „Pop'l-bekkurinn fyrir ungl- inga. Aðeins 5.850,00 kr. gegn staðgreiðslu. Svefnbekkur, hannaður af Þorkeli GuSmundssyni, hús- gagnaarkitekt. VerS 6.255,00 kr. gegn staSgreiSslu. Afborgunarskilmálar. Tilvalin jólagjöf. SVEFNBEKKJA HöfSatúni 2 (Sögin). 88 VIKAN 48.TBL
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.