Vikan - 02.12.1971, Qupperneq 96
Brúður og bangsar í ótal stærðum og
gerðum.
Ennfremur tuskudúkkurnar
LÍNA LANGSOKKUR
Fjölbreytt úrval af stignum bílum,
dúkkuvögnum, kerrum og þríhjólum
LEIKFANGAVER
Klapparstíg 40 - Sími 12631
Fólk beið þess sem verða vildi,
án þess að eygja nokkra von um
að geta komið til hjálpar þeim
mönnum sem ef til vill væru
um borð. Fólkið horfði á skipið
berast upp í brimgarðinn og
brotna; sá það lenda í frákast-
inu og berast meðfram strönd-
inni, meðan löðrungar sjávar-
ins brutu það og eyðilögðu. Það
fylgdist með síðustu ferð þessa
yfirgefna skips, þar sem það
veltist í brimrótinu og strand-
aði endanlega við Hásteina.
NORNANOTT
Framhald. af bls. 41.
En þegar Penelope var farin
út úr herberginu, sagði Charles:
— Mér er ekki um að skilja
þig eftir eina hér í húsinu. Ég
hefði viljað að þú hefðir komið
með okkur.
— Nei, það er betra að þið
séuð tvö ein. Ég finn eitthvað
til að sýsla við, þú skalt ekki
hafa áhyggjur af því!
— John hefur kannski eitt-
hvað ofan af fyrir þér.
— Ég get spurt hann hvort ég
megi fylgjast með honum í
starfi hans. Það getur jafnvel
verið að ég geti gert eitthvert
gagn.
Síðdegis fylgdi hún þeim nið-
ur að höfninni og horfði á eftir
þeim, þegar báturinn lagði frá,
með Charles við stýrið. Það
skein á hvítt hár hans í sólinni.
Penelope var í ljómandi skapi,
hún veifaði og hló.
Þegar báturinn var horfinn
sjónum, gekk Helen hægt heim
á leið, og þegar hún kom að
hliðinu við gömlu kapelluna,
fékk hún skyndilega löngun til
að skoða hana. Hún hafði aldrei
komið inn í hana og hún varð
undrandi yfir því hve lítil hún
var, rúmaði í mesta lagi þrjátíu
manns, en það var líklega
venjulegur fjöldi heimilisfólks
í þann mund sem hún var
byggð. Veggirnir voru úr steini
og þakið gotnesk hvelfing. Það
voru tvennar inngöngudyr, aðr-
ar út í garðinn, hinar að vegin-
um. Altarið var lítið og á því
stóðu tveir silfurkertastjakar
og kaleikur. Hún hugleiddi hve
langt væri síðan þessi kaleik-
ur hefði verið notaður. Það
hlaut að vera æði langt, því að
hann var kolsvartur. Ein-
kennilegt var það að þarna var
enginn kross, en hann hafði
kannski verið tekin í vörzlu
annars staðar.
En annað var einkennilegt
viðaltarið, fannst henni, en hún
kom ekki fyrir sig strax hvað
það var. Hún horfði því vand-
lega í kringum sig og þá kom
hún auga á altariskertin. Þau
voru biksvört. Framhald nœst
1 CREME
Í'FRAICHE
Coctailsósa <&*sinnepssósa
Cocktailsósa: f2 dl af tómatsósu í dós af sjrdum
rjóma.
Sinnepssósa: 2 msk af sinnepi í dós af sjrðum
rjóma.
Gott með fiski, pylsum, hamborgurum, steiktu
kjóti, kjúklingum, kryddsíld, humar, rakju o.fl.
MJÓLKURSAMSALAN I REYKJAVÍK
96 VIKAN 48.TBL