Vikan


Vikan - 29.03.1972, Blaðsíða 24

Vikan - 29.03.1972, Blaðsíða 24
< ÍSLENZK TÍZKA Árleg tízkusýning Félags kjólameistara, hin þriöja í rööinni var haldin í Reykjavík 29. febrúar sl. 13 kjólameistarar tóku þátt í sýningunni í ár, og voru þaö fleiri en í undangengin skipti; í allt voru sýndar 35 flíkur, hver annarri glæsilegri. Stúlkur úr Módelsamtökunum sýndu undir stjórn frú Unnar Arngrímsdóttur; skartgripir voru frá verzluninni Gull & silfur og um hárgreiðsluna sá Elsa Haraldsdóttir, Salon VEH. Myndirnar, sem valdar voru meira af handahófi en kostgæfni, tók Ijósmyndari blaösins, Egill Sigurðsson. Ekki er hægt að neita því, að þetta er tilkomumikill klæðn- , aður; stór, svört slá yfir svört- um kjól með stórum doppum. GYÐA ÁRNADÓTTIR saumaði, Elísabet Guðmundsdóttir sýndi. Þórdfs Ingvarsdóttir sýndi þennan skrautlega klæðnað, sem er mitt á milli þess að vera siður kjóll og buxnadress. Hann er gerður af VILBORGU STEPHENSEN. ■ . Þessi kjóll, með óvenju óvenjulegar ermar, var gerður af GRÓU GUÐNADÓTTUR og sýndur af Sigrúnu Árnadóttur. Þessi glæsilegi kjóll, gerður af PETRU CHRISTIANSEN, var sýndur af Sigrúnu Árnadóttur.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.