Vikan - 29.03.1972, Blaðsíða 49
lyfjafræði við háskólann í
Mexíkóborg og verið ráðin
haustið 1968 að sömu rann-
sóknastofnun og Deacon.
Þau hittust í fyrsta sinni í
langferð með Pillsbnry, rann-
sóknaskipi stofnunarinnar. Þau
höfðu greinilega strax orð’ið
hrifin hvort af öðru. Að minnsta
kosti var hvað eftir annað kom-
ið að þeim í mjög innilegu sam-
félagi.
Pillsbury hafði komið heim
úr ferðinni tíu vikum áður en
Barböru var rænt. Á þeim tíma
höfðu George Deacon og Ruth
Eisemann-Schier aðeins sýnt sig
saman við nokkur tækifæri.
Þegar FBI yfirheyrði starfs-
fólk sjórannsóknastofnunarinn-
ar fyrir hádegi á fimrritudaginn,
kom í ljós að enginn þar hafði
séð Ruth eða George síðan á
föstudaginn þrettánda desem-
ber.
Um miðjan dag upplýsti FBI-
maðurinn Rex Schroder föður
Barböru um hve langt leitin
væri komin og möguleikana á
að hafa hendur í hári ræningj-
ana án þess að greiða lausnar-
féð.
Robert Mackle sagði: — Mér
stendur á sama um peningana.
Við verðum að ná sambandi við
ræningjana aftur. Við verðum
að láta þá vita að tiltektir Mi-
amilögreglunnar voru ekki mér
að kenna. Við verðum að láta
þá vita að það var hrein tilvilj-
un, og að ég hafi peningana og
sé reiðubúinn að afhenda þá.
Fréttamaður frá Miami Her-
ald hjálpaði til að stíla áskorun
til ræningjanna. f áskoruninrii
fórust Robert svo orð:
„Ég vissi ekkert um aðgerðir
Miamilögreglunnar á fimmtu-
dagsmorguninn þegar þeir
i-eyndu að handtaka ykkur og
lögðu hald á peningana, sem
ég hafði skilið eftir hand.a ykk-
ur.
Ég bið til Guðs að þið hafið
ekki gert dóttur minni mein.
Gerið svo vel að hafa samband
við mig aftur, sama hvernig. Ég
geri hvað sem er, bara að dótt-
ir mín verði látin laus.“
Næsta sólarhringinn var á-
skorun föðurins endurtekin
]
SPÆNSKAR BÆKUR
ITALSKAR BÆKUR
Bókaverzlun
SNÆBJARNAR
Hafnarstræti