Vikan


Vikan - 29.03.1972, Síða 37

Vikan - 29.03.1972, Síða 37
fremur en 'sáum, að skepnan v.ar löng og grönn, með odd- hvasst trýni og uppsperrt eyru. Hvorugur okkar sagði orð íyrr en skepnan var gengin yf- ir stíginn, hljóðlausum rólegum skre'fum og horfin inn í runn- ana hinum megin. En þá tautaði Alan: — Þetta er bara hundur, og hann andvarpaði af létti. — Púh! Svei mér ef ég varð ekki bara hræddur við skepnuna. Ég lét þessa athugasemd hans fram hjá mér fara, áft þess að segja orð, enda þótt ég væri meira en efins um sannleiks- gildi hennar. Það lítið ég sá af skepnunni hafði nægt til þess að vekja hjá mér óhugnanlegar endurminningar um það, hve oft úlfar koma fyrir í þjóðsög- unum, sem ganga manna milli þarna um slóðir. — Já, þetta var stór Elsass- hundur, endurtók félagi minn. Hann hlýtur að hafa ranglað að heiman frá einhverjum bænum hérna í nágrenninu. Ég vissi fullvel, að þarna var ekki nokkur einasti bóndabær nær okkur en Josselinþorpið, sem var í fimm kílómetra fjar- lægð, en ég nennti ekki að fara neitt að karpa um það. — Við skulum koma okkur áfram, sagði ég. — Ertu enn að hugsa um matinn? sagði Alan og hló. En honum skjátlaðist þar. Matartilhlökkunin var nú allt í einu hröpuð niður í annað sæti i huga mínum, á eftir tilhugs- uninni um, að dýrið, sem þarna var að flækjatet, ætlaði sér að hafa mig til kvöldverðar! Ég var tilbúinn að veðja aleigunni upp á það, að skepnan, sem ég hafði séð var ekki neinn hund- ur. Væri hún úlfur — nú jæja, ég hafði heyrt, að úlfarnir eltu bráð sína í hópum, og ef mér ckki skjátlaðist, mundum við bráðlega fá ákveðna og sann- færandi sönnun þess. Allt fram að þessu kvöldi höfðu vinsældir Bretagneskag- ans verið í því fólgnir, að flest- ar borgir hans og þorp eru langt frá öllum venjulegum ferða- mannaleiðum. Eins og til dæm- is Josselin, þar sem við höfðum setzt að, sem átti sér ekki einu sinni einspora járnbraut í sam- bandi við umheiminri. og það var sjaldgæft að sjá nokkurn aðkomumann ganga þar um steinlagðar göturnar. En rétt í þessu bili hefði ég ekkert farið að amast við því þó að heil lestarhiöss af heimshornaflökk- urum frá Cook hefðu þyrpzt þarna kring um mig. En að okkur sjálfum frátöldum, var ammum aldrí þarf á mjúkum klæönaöi aö halda því að húð ungbarna er viðkvæm og þolir illa hrjúfa ertingu. Plús mýkingarefni losar sundur trefjar hvers konar vefnaðar og prjóna- efna, svo að þau verða lífmeiri, léttari, mýkri og hlýrri en ella. Bætið Plús í síðasta skolvatnið og reynið muninn. mýkingarefni mýkir, léttir, lyftir, eyðir rafmagni og auðveldar strauningu.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.