Vikan


Vikan - 22.06.1972, Blaðsíða 29

Vikan - 22.06.1972, Blaðsíða 29
' ■ Sigurður Magnússon og kona hans, frú Sigrún Sigurðardóttir. Sigurð- ur er núverandi formaður Lions- klúbbsins Njarðar og hefur meðal annars beit) sér fyrir gagnkvæm- um heimsóknum klúbbanna í Reykjavík og úti á landi. i ..V Um miðnætti var farið í svokall- aðan stóladans, sem er bráð- skemmtilegur leikur. Hann fer þannig fram, að stólum er raðað á mitt dansgólfið og síðan eru jafnmörg pör fengin til að dansa. Vandinn er sá, að um leið og hljómsveitin hættir að leika í miðju lagi, þá á herrann að flýta sér að setjast á einn stólanna með dömuna í kjöltu sér. En stólunum er fækkað jafnt og þétt, svo að kapphlaupið um þá verður stöð- ugt harðara. Það var handagang- ur í öskjunni, eins og þessar myndir sýna — og menn skemmtu sér konunglega. ■ ,-v -

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.