Vikan


Vikan - 22.06.1972, Blaðsíða 14

Vikan - 22.06.1972, Blaðsíða 14
9 Ránið á eins árs syni Lindberghs flugkappa er einn af þekktust glæpaharmleikjum okkar tíma. Eftir ákafa leit að þeim seka var mað- urinn handtekinn, dæmdurtil dauða og og tek- inn af lífi. En mörgum spurningum var áfram ósvarað. Og nú — fjörutíu árum síðar - kem- ur fram maður, sem fullyrðir að hann sé son- ur Lindberghs, sá sem rænt var. Bruno Hauptmann. Var hann dæmdur og tekinn af lífi saklaus? 1 aprillok var trésmiður að nafniBruno Hauptmann tekinn af lifi, dæmdur fyrir rán og morð á Charles Lindbergh yngra. A verkstæði hans höfðu fundist þrettán • þúsund dollarar af lausnarfénu, en seðlarnir höfðu verið merktir. Þar að auki var ein rimin i stiga, sem fannst nálægt nálægt húsi Lindberghs, tekin úr tréplötu, sem fannst i ibúð Hauptmanns i Bronx i New York. Rétturinn úrskurðaði að Hauptmann hefði staðið að ráninu aleinn, og opinberlega var málið útkljáö þegar hann var tekinn af lifi. En mörgum þótti sem ýmis- legt i sambandi við það væri enn óútkljáð. Lloyd Fischer, verjandi Hauptmanns, lýsti þvi yfir að skjólstæðingur hans hefði verið dæmdur eftir likum, en ekkert hefði sannast á hann. Charles A. Lindbergh varð heimsfrægur þegar hann flaug yfir Atlantshafið 1927, en það var i fyrsta sinn sem sú flugleið var farin i einum áfanga. í flugvél sinni „Spirit of St. Louis” flaug hann frá New York til Parisar á þrjátiu og þremur og hálfum klukkutima. Eftir þetta fylgdust blöðin nákvæmlega með hetjunni, sem þá var aðeins tuttugu og fimm ára. 1932 var tuttugu mánaða gömlum syni hans rænt. Charles Lindbergh borgaði fimmtiu þúsund dollara lausnargjald, en syni hans var ekki skilað. Eftir tvo mánuði fannst barnið dáið. Læknarnir, sem skoðuðu likið, gátu ekki skorið úr þvi hvort það var af dreng eða stúlkuj en. Charles Lindbergh lýsti þvi yfir að það væri af syni sinum. Ennþá hvilir hula leyndardóms yfir ráninu á syni Charles Lindberghs flugkappa 1932. Opinberlega var að visu látið svo heita að málið væri útkljáð, er timburmaður að nafni Bruno Hauptmann var sekur fundinn, dæmdur til dauða og tekinn af lifi 1936. En sannarnirnar gegn honum voru heldur hæpnar og margt i sambandi við málið varð aldrei upplýst. Hafði Hauptmann getað framkvæmt barnsránið aleinn? Hvernig átti það sér eiginlega stað? Hverjar voru hinar raun- ,,Ég get gefið upplýsingar um þetta mál. Ég hef þær, vegna þess að ég er Charles Lindbergh yngri. En fáir kæra sig um að frétta mikið um þetta, þvi að hér er um miklu meira að ræða.en mig einan. Ég vil aðeins fá að vera það sem ég er. Það er annarra hlutverk að koma fram með staðreyndirnar allar, eins og þær liggja fyrir. Ég bið ...” Margar skoðanir hafa komið fram um það, hvað raunverulega hafi skeð að kvöldi hins fyrsta mars 1932. En sú saga, sem sögð var i réttinum hefur yfirleitt verið verulegu ástæður til ránsins? Hve mikið var glæpajarlinn A1 Capone blandaður I málið? Hversvegna bauðst hann til að hjálpa Lindbergh? Leitað var um öll Bandarikin eftir fólki, sem hugsanlegt var að gefiö gæti einhverjar upp- lýsingar. En mjög litið hafðist upp úr þvi. 1 dag segir Harold Roy Olson, verzlunarmaður frá Westport i Connecticut i Banda- rikjunum. tekin gild. Vinnukona Lind- berghs, Betty Gow, gekk um niu- leytið um kvöldið upp i barna- herbergið i húsi Lindberghs- hjónanna i Hopewell i New Jersey til að líta eftir Charles yngra, en uppgötvaði þá að hann var horfinn. Hún hélt fyrst að foreldrar hans hefðu tekið hann niður til sin, en það reyndist ekki vera. Ungbarnið, þá tuttugu mánaða, var horfið og lög- reglunni var gert viðvart.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.