Vikan


Vikan - 22.06.1972, Blaðsíða 36

Vikan - 22.06.1972, Blaðsíða 36
ÚTI&INNI A nýja íbúð: 2 umferöir HðRPUSILKI UNDIRMÁLNING 1 umferö HðRPUSILKI og þér fáiö ekki ódýrari málningu! Hörpusilki Heröir á ganga og barnaherbergi HðRPU FESTIR úti HHRPfl HF. slnum, gat hann prófaö þær og komið auga á hugsanlegar veilur. .. Já, sonur sæll, þessar klessur á sklfunni segja alla söguna. Þær útskýra ýmislegt smávegis, sem ég hef verið að br jóta heilann um. - Fyrst hélt ég, að moröinginn hefði verið annaðhvort fullur eða vitlaus. Gat ekki skiliö, að hann skyldi ekki hafa séö auglýsinguna úti I ganginum, þar sem stendur „Nýmálað”. Þarna var vel bjart og auglýsingin nógu stór til að falla I augun. Ug samt rekur hann lúkuna beint I hurðina. - Kannski hefur hann viljaö vita, hvort nokkuö væri að marka auglýsinguna. Mér hefur orðið þetta sama á. - Já, það efast ég ekki um. Það væri þér llkt. En sú var ekki ástæðan. Nú er þarna seölahrúga á boröinu - fimmtiu pund. Morð- inginn kom til þess að stela, og peningarnir liggja þarna fyrir augunum I honum, og samt tekur hann þá ekki. Hann tók þaö sem var I skápnum, en ekki þaö, sem lá á boröinu. Til hvers var hann að foragta fimmtiu pundin? - Ertu viss um, að hann hafi gert það, Dan? Kannski hefur hann bara verið rangeygður. - Ha? Hooper varð sem snögg- vast steinhissa. - Nei, þaö er nú hæpið, sonur sæll. Ég veit hvers- vegna hann tók ekki fimmtlu pundin. Það sé ég af klessunum á sklfunni. Og svo þetta bréf. Hann gekk að skrifborðinu og tók upp hálfkláraða bréfið. Það leit út eins og það hefði verið skrifaö i reiðikasti. Hann hafði þegar lesiö það einu sinni, en nú las hann þaö aftur: „Herra minn! Eins og ég sagði yður fullgreinilega I símanum, nær þessi beiðni yðar ekki nokkurri átt. Ég get ekki hugsaö mér þær kringumstæður, aö ég færi að lána yður tvö hundruð pund. En þar sem þér segiö, aö þetta sé svo áríðandi, ætla ég að breyta gegn betri vitund og senda yður . . . - Gagnorðara en hvaö það er vinsamlegt, sagði Hooper. - Og lengra komst hann ekki. Þegar hér var komiö fór morðinginn að freta á hann. - Það er alveg greinilegt, aö Hargrave ætlaöi að senda honum þessi fimmtlu pund. Hann var búinn að taka seðlana út úr skápnum. Þeir lágu þarna viö olnbogann á honum meðan hann var að skrifa. - Annaöhvort hefur hann gleymt að læsa skápnum, eða ætlaö að fara I hann aftur, eftir einhverju öðru. Moröinginn hefur að minnsta kosti átt hægt um vik. - Já, jánkaöi Bjálfi, - en hann heföi nú lika verið óheppinn ef skápurinn hefði veriö læstur. - O, ég veit ekki. Hann hefði getað neytt Hargrave til að opna hann. En aöalatriðiö er, að sá sem drap hann getur hafa veriö sá, sem hann ætlaöi aö senda pen- ingana. Kannski hefur honum legið svo á, að hann hefur ekki getaö beöið eftir, að Hargrave sendi þá. - Hvað sem þvl öllu llöur, þá kemur morðinginn inn meðan Hargrave er að skrifa bréfið. Hann sér opinn skápinn, heldur að þar sé geymt mikið af peningum, svo að hann dregur upp hólkinn og hleypir úr honum á Hargrave. - Hólkinn? sagði b'jálfi. Heldurðu, að hann hafi veriö með byssu? - Jú, ætli ekki það? Þú heldur kannski, að hann hafi skotiö þessum kúlum úr teygjubyssu? En ég sé, hvað þú ert aö brjóta heilann um. Hvernig stóö á þvl, að náunginn var með byssu á sér? Nú, kannski hefur honum dottiö i hug, þegar hann lagöi af staö, aö betra væri aö hafa byssu til þess að plna aurana út úr Hargrave. - Að minnsta kosti héfur hann hafiö þarna meiri háttar skothríð. Ogslðantæmtskápinn. Þar voru að minnsta kosti tvö þúsund pund, hefur ritarinn hans Hargraves sagt okkur - og kannski ennþá meira. En það sem ég er mest hissa á, er þetta bréf. -Já,Dan? Bjálfi var á svipinn rétt eins og hann væri aö hlusta á véfrétt. - Já, sagði Hooper. Svo virðist sem morðinginn hafi séö bréfið. Og hann hlýtur að vita, að það gat verið hættuleg bending, enda þótt ekkert nafn væri nefnt I þvl. Tilgangurinn stendur I þvi skýrum stöfum. Hversvegna kveikti moröinginn sér ekki i slgarettu með þvl? - Kannski reykir hann ekki, lagði Bjálfi til málanna. - Sumir menn reykja ekki, eins og þú veizt. Hooper leit á hann með svartasta svipnum, sem hann átti til. Bjálfi hafði stundum ein- kennileg áhrif á hann. An þess aö vita hversvegna, fór hann að leita að einhverju viti i þessu barna- hjali Bjálfa. Og hann gat ekki gleymt þvi, að stundum hafði Bjálfi, fyrir einhverja óskiljan- lega tilviljun, rekizt á þaö rétta. En Hooper leitaði nú aldrei vandlega að þessum duldu mein- ingum. Honum nægði alveg að lita á bjánalega mánaandlitið á Bjálfa. - Já, ég veit það sonur sæl). Sumir reykja ekki, sumir hugsa ekki og sumir hafa engan heila til að hugsa með. íjann beið eftir þvl, að þessi glósa byggi um sig. - og svo þessar kúlur. Ég var llka I hálfgeröum vandræðum með þær. Fötin á Hargrave eru sviöin og það bendir til þess, aö skotiö hafi verið á stuttu færi. Honum hefði getað dugaö ein kúla, en samt notaöi hann sex. Hversvegna? - Kannski fannst honum sex kúlugöt lita betur úr en eitt? - Bull! snörlaði I Hooper, en hann leit íast á Bjálfa. - Ég veit svariö við þessu. Klessurnar á klukkunni segja þar alla söguna. - Þær skýra það, hvernig morð- inginn fékk málningu á fingurna. Það var vegna þess, að hann sá ekki auglýsinguna. Og þær segja mér lika, hversvegna hann skildi allsstaöar eftir sig klessur. Það var afþvi aö hann sá ekki, hvert hann var að fara. - Og þær skýra llka, hversvegna hann tók ekki fimmtlu pundin, sem þó lágu beint fyrir framan nefiö á honum. Hann sá ekkert - þessvegna var það! - Sama er aö segja um hálf- kláraöa bréfið. Hann sá það ekki heldur, Og, sein meira er, hann sá heldur ekki Hargrave. Hann skaut öllum skotunum, afþví aö 36 VIKAN 25. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.