Vikan - 22.06.1972, Blaðsíða 32
RÍÓ TAKA UPP TVÆR
LP í OSLO
Því miður er ekki til á stassjón nýleg mynd af Ríó-tríóinu, en þessi, sem tekin var á margfrægum hljómleikum þeirra í Háskólabíói 1970, hlýtur
að duga. Nú hugsa þeir til svipaðra hljómleika í haust.
Jónas Friðrik, skáld, ræðir við Ágúst Atlason (t. h.) og Ólaf Þórðarson.
Myndin er tekin í hófi er haldið var þegar tilkynnt var um „Hljóm-
plötu ársins 1970".
í byrjun þessa mánaðar héldu
félagarnir í Ríó-tríóinu til Osló-
ar og tóku þar upp tvær LP-
plötur. Með þeim í förinni var
Gunnar Þórðarson, sem stjórn-
aði upptökunni og aðstoðaði við
hljóðfæraleik þar sem þurfti. í
Osló hittu þeir fjórmenningar
svo fyrir Jón Þór Hannesson,
hljóðtæknimann Sjónvarpsins,
sem nú er við nám og kynningu
við norska sjónvarpið. Þegar
þessar línur voru ritaðar hafði
ekki endanlega verið gengið
frá öllum málum þeirra félaga,
en til stóð, að þeir kæmu fram
í sjónvarpi ytra og létu fyrir
nokkra klúbba og hópa, ss. ís-
lendingafélög í Skandinavíu.
Efnið á plötunum, sem koma
út með nokkurra mánaða milli-
bili er að mestu leyti erlent, en
þó eiga þeir hver sitt lagið og
einnig eitt eða tvö í sameiningu.
Sérlega hefur mér þótt forvitni-
legt lag Ágústar Atlasonar og
er það tvímælalaust það bezta
sem hann hefur gert síðan
,,Vetrarnótt“.
Textarnir eru allir eftir Jón-
as Friðrik, skáld og stórmenni,
sem verður vafalaust jarðaður
á Þingvöllum, er þar að kemur.
Rétt áður en blaðið fór í
prentun fengu þeir staðfest að
þeir myndu koma fram í sjón-
varpi, í klúbbum og á mikilli
hátíð vísnasöngvara þar ytra.
32 VIKAN 25. TBL.