Vikan - 01.02.1973, Side 8
Þjóðverjinn Otto Braun, fyrrum
erindreki Kominterns, sem einn
hershöfðingi Sjang Kai-séks
kallaði „heila rauða hersins". Nú
er hann útgefandi og háskóla-
prófessor í Austur-Berlin.
Otto Braun í einkennisbúningi
rauða hersins kinverska. Myndin
er frá 1937.
Meginher kínverskra
kommúnista gekk tíu
þúsund kílómetra leið
frá Kíangsí í Kína suð-
austanverðu til Sénsí
í norðurhluta lands-
ins, lagði að jafnaði
að baki þrjátíu kíló-
metra á dag, bauð
byrginn margfalt fjöl-
mennari og betur
búnari óvinaherjum,
stórfljótum, háfjöllum,
jöklum, eyðimörkum.
Aðeins tíundi hluti
þeirra, sem lagði upp
í gönguna, komst lif-
andi á leiðarenda.
Lín Ptaó sést hér á hestbaki í Göngunni löngu, í fararbroddi manna sinna. Hann var þá
enn ekki kominn í röð þeirra hæst settu í flokknum, en varð síðar yfirhershöfðingi
kínverska alþýðuhersins, varnarmálaráðherra og nánasti trúnaðarmaður Maós formanns.
En endalok hans urðu heldur hrapalleg, eins og kunnugt varð fyrir skömmu.
8 VIKAN 5. TBL.