Vikan

Tölublað

Vikan - 22.03.1973, Blaðsíða 37

Vikan - 22.03.1973, Blaðsíða 37
h TJÖLBREYTT 1 | cÚHVAL 1 H QÆRDINUEFNA^ ia _ 0 m ■ i cuiGcnum 1 Kj Grensasvegi 12 sími 36625 lengur til aö leita aö mátulegum steinum, heldur henti töskunum i skuröinn án frekari umsvifa. En þaö fór eins og vænta mátti: steinarnir hrukku tlr töskunum I kastinu og þær sukku þvi ekki. Diamantenpaul brá viö hart og klæddi sig úr öllu nema nær- b"xum. Hann skalf eins og hrisla, þvi aö Iskuldi var og talsvert frost, en hann þoröi meö engu móti aö hætta á aö töskurnar fyndust. Honum datt nú fyrst i hug aö á þeim væru fingraför þeirra Ollenburgs. Hann var i þann veginn aö vaöa út I skuröinn i þeim tilgangi aö sökkva töskunum, þegar hann mætti kornungu kærustupari, sem setti ekki kuldann fyrir sig fremur en hann. Þeim brá nokkuö undarlega viö að mæta þarna næstum allsberum manni, og þar eö Kron óttaöist að þau kynnu aö taka hann fyrir stripisjúkling og æpa á hjálp, þreif hann sem skjótast föt sin og skó og hljóp á brott eins hratt og hann komst. Hann nam staðar i runna nokkrum, góðan spöl frá parinu, sem ekki vissi hvaöan á þaö stóð veörið, og klæddi sig i snarhasti. Þá var komið á hann slikt fum að hann var góða stund aö finna afturbilinn sinn. Hann ók aftur til Dusseldorf, þá orðinn innkulsa og með kvef I aðsigi. Hann boröaði hálfan kjúkling og drakk einn bjór i veitingahúsi, fór þaöan til ibúðar sinnar, spilaöi grammofónplötu til að róa taug- arnar og sofnaði. Daginn eftir, seytjánda desember, sortnaöi enn i álinn fyrir hrakfallabálkinum Kron. Drengirnir hans stóöu honum alltaf hjarta nær. og þennan dag keypti hann hitt og þetta til jóla- gjafa handa þeim. Um kvöldið heimsótti hann systur sina, sem bjó i einu úthverfa Dusseldorf. Systirin tók honum vel og smuröi honum brauösneið. Þá var klukkan tiu, en á þeim tima eru fréttir sagðar i vestur-þýzka sjón- varpinu. Systir Diamantenpauls skrúfaði auövitað frá viðtækinu, og meðal fréttanna var þá lesin tilkynning frá lögreglunni, þar sem menn voru beðnir aö taka vel eftir, þvi aö nú myndú þeir heyra viötal, srm einhver ræningja Theos Alb euhts heföi átt viö Karl Albrecht, bróöur þess er rænt var. Kron haföi sem sé hringt heim til Karls Albrechts þann fjórtánda desember til aö herða á greiöslu lausivargjaldsins, en lögreglan haföi haft segulband tengt viö sima Karls og tekið upp viötaliö. Spólan var nú leikin i sjónvarpið. Kron varö svo hræddur að hann missti alla lyst á brauöinu, sem systir hans. hafði smurt handa honum, og systirin og maöur hennar litu hvort á annað og siöan i laumi á gestinn. Rödd Diamantenpauls meö dæmigeröum Dusseldorf áherzl- um var sem sé auðþekkt þeim, sem oft höföu heyrt hana. Paul Kron beiö ekki boðanna, heldur stökk á fætur og rauk út án þess aö kveöja. AÖeins tiu minútum eftir aö til- kynningin og viðtaliö höföu veriö lesin upp I sjónvarpiö fór lög- reglan aö fá upphringingar frá fólki, sem boriö haföi kennsl á röddina. Einn þeirra, sem hringdi, gaf upp heimilisfang Krons. Daginn eftir hringdu til lögreglunnar fóstrurnar á barna- heimilinu, þar sem drengir Krons voru I uppeldi. Þær höfðu veriö fljótar aö þekkja rödd hans, þar eö hann heimsótti drengina sina alltaf meö stuttu millibili. Og nitjánda desember, fjóröa dag I aöventu, kom Paul Kron til þessa sama barnaheimilis og tók syni sina meö sér I biltúr. Hann fór meö þá heim til sin og þar sungu þeir saman jólasálma. Kron tók sönginn upp á segulband og gaf drengjunum, og á jóla- skemmtuninni á barnaheimilinu hlustuðu bæöi fóstrur og börn hrærð á Kron og syni hans syngja Heims um ból. Þar sem dagarnir liðu og lögreglan skipti sér ekkert af Kron, fór hann að halda aö þetta ætlaði allt aö fara vel. Hann fór til viötækjaverzlunar nokkurrar, sem maöur aö nafni Urban rak. Honum skuldaöi Kron nokkuö yfir þrjú þúsund mörk fyrir litvarps- tæki og fleira. Þessa skuld borgaði Kron með seðlum úr lausnarfénu fyrir Theo Albrecht. En nú haföi Urban sem fleiri heyrt rödd Krons i sjónvarpinu og þóttist þekkja aö hún væri rödd mannsins, sem nú ræddi við hann. Eftir að Kron var farinn úr búðinni, hringdi Urban i lögregluna og sagöist sennilega hafa I peningakassa sinum seðla úr lausnarfúlgunni. Lögreglan haföi skráö hjá sér númer seðlanna, sem ræningjarnir höfðu fengiö. Hún skoöaði nú I kassann hjá Urban og bar saman núm- erin. A meðan var Kron aö losa viö skammbyssur, sem hann haföi á sinum tima keypt á Spáni og þeir Ollenburg siöan notað til aö ógna meö Theo Albrecht er þeir rændu honum. Tuttugasta desember, fjórum dögum eftir að Albrecht haföi veriö látinn laus, leit Kron inn á skrifstofuna hjá Ollenburg, og fékk Ollenburg honum þá byssurnar, i þeim tilgangi aö Kron feldi þær tryggilega. „Mér datt ekki annaö i hug en aö Kron fleygöi þeim i Rin,” sagöi Ollenburg siöar. En taugar Krons voru ekki i sem beztu lagi þessa dagana, og eftir að honum mis- heppnaðist að sökkva töskunum var hann sérstaklega frábitinn þvi aö henda nokkru i siki eöa vatnsföll, meiri eða minni. Hann setti skambyssurnar i litinn kassa, fór með þær heim til frænku sinnar einnar og fékk þær manni hennar, sem var viröu- legur kennari, til geymslu meö þeim oröum, að eigandi þeirra væri herra lögmaöur Ollenburg. Kennarinn varð hálfhissa, en tók þó við kassanum og lofaöi að varöveita vopnin unz Kron eöa eigandinn vitjuöu þeirra. Klukkan sex aö kvöldi þessa dags, tuttugasta desembers, kvaddi Kron mann frænku sinnar og fór sina leiö. Tveimur klukku- stundum siöar komu lögreglu- menn heim til kennarans. Þeir höföu þá sannfærst um, að seölarnir i peningakassa Urbans viðtækjasala væru út lausnar- fúlgunni sem Albrecht hefði oröið aö punga út, og Urban haföi sagt þeim aö hann heföi heyrt að Kron byggi hjá kennara þessum. Kennaranum brá heldur illa viö þessa heimsókn, og hann gaf lögreglumönnunum upp hið rétta heimilisfang Krons. Hann gleymdi hinsvegar að afhenda þeim skammbyssurnar. Lögreglan ók I loftinu til Kreitenstrasse og handtók Diamantenpaul þar hálftima fyrir miönætti. Hann veitti enga mótspyrnu, var hinn rólegasti og anzaöi engu, þótt lögreglu- mennirnir köstuðu fram glósum og bröndurum á hans kostnaö. Morguninn eftir sá Ollenburg i blööunum tvær fréttir, sem ollu honum nokkurs hugarangurs. 1 fyrsta lagi var frá þvi sagt að Hengsbach biskup, sem gerst haföi milligöngumaður er Albrecht var sleppt, væri nú á förum til Hongkong, þar sem hann ætlaöi aö vigja kirkju helgaöa dýrlingunum Kosmasi og Damian, sem byggö haföi veriö fyrir samskotafé kaþólskra i Essen. i leiöinni ætlaöi hans herradómur aö skira fjörutiu og sjö Kinverja, er snúist höföu til kristni. Ollenburg haföi lengi veriö vanur að bregöa sér eitt- hvaö um jólin, og i þetta sinn 12. TBL. VIKAN 37

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.