Vikan

Tölublað

Vikan - 22.03.1973, Blaðsíða 22

Vikan - 22.03.1973, Blaðsíða 22
« JL£«T AB SPARh * yður mjög þakklátur. ( Hann gat verið mjög aðlaöandi.) , Jena lyfti kaffibollanum og starði hugsandi út i loftið. ' — Þetta er undarlegt. Hún hafði séð eitthvaö. — Þetta er einn af farþegum sömu flugvélarinnar frá i gærkvöldi. Hvaö skyldi hann vera að gera hér? Hér rétt fyrir utan sé ég manninn, sem kraup við hliðina á meövitundarlausa manninum, vini yðar. — Lýsið honum. — Hann er klæddur brúnum fötum og hann stendur rétt utan við glerhurðina. Hann horfir eiginlega beint i hnakkann á yður. — Jæja, það er þá eitthvert erindi sem hann á hingað á flugvöllinn, tautaði Harry. An þess að snúa sér við, fór hann að tæta pappirsblaðið i smásnepla. — Getið þér nú ekki sett upp geislandi bros og sagt mér allt sem þér vitið um þennan mann? Hvað gerði hann i gærkvöldi? Jean gerði eins og hann bað hana, brosti bliðlega. — Hann reyndi liklega ekki að gera annað en það sem hver samborgari myndi gera fyrir meöbróður sinn. Hann sagðist vera að leita að skil- rikjum i vasa vinar yðar. Svo kom hann til min og spuröi hvað vinur sinn hefði sagt mér. En kona, sem kom meðsömu flugvél, sagði að hann heföi verið að ljúga............ — Ljúga? Harry var nú búinn að tæta pappirinn i örsmáar agnir. — Já, hún sagði það. En finnst yður það ekki skrítiö? — Eftir þvi sem ég hefi skilið, þá var þessi maður mjög áhugasamur um ferðir vinar mins? — Ég v"it það reyndar ekki, sagði Jeih. — Nokkru siðar heyrði ég hann segja lögreglunni að hann heföi alls ekki þekkt þennan Bernie yöar. Hann hefir liklega aðeins verið þarna af tilviljun. — Veriö hvar.......? — t næsta simaklefa, sagði Jean. Harry hallaði sér aftur á bak, eins og hann stæði á öndinni. Hann sagöi: — Hvar búið þér? — I ibúð, svaraði hún lágt. — Búiö þér með karlmanni? Ég á við hvort þér eruö gift. Eða hvort þér búið meö föður yðar? Eða eldri bræðrum ............? Eða einhverjum? — Eg bý ein, sagði hún kuldalega. Harry hnoðaði bréfsneplana saman I kúlu. — Ég ætti liklega að leita til sálfræðings, sagði hann þunglega. — Hvern fjandann á ég nú að gera við yður? — Já, sagði hún. — Hversvegna ættuð þér að gera eitthvað við mig? .— Nú förum viö aftur I gjafa- búðina, sagði hann. — Þér segið upp stööunni. Þér hafið fengiö nýtt og betra starf. Hann stóð upp.Frá þessari stundu að telja eruö þér einkaritari heimskingja. — Hvað i ósköpunum eruö þér að tala um? spurði hún hneyksluð. — Þér eruð ráðin I mina þjónustu, eigum við að segja þúsund dollara á viku til að byrja með? — Og hvað, sagði hún iskalt, — hvað á ég svo að láta af mörkum fyrir allt þetta kaup? Hann settist aftur. — Mér datt i hug hvort þér mynduð ekki geta þekkt aftur krakkaormana, sem keyptu grisina, tautaði hann, eins og við sjálfan sig. Hann leit svo á hana með alvörusvip. — Hafið þér vegabréf i lagi? Hún ýtti stólnum frá borðinu og starði á hann, skelfingu lostin. — Hvaö eigið þér við með þvi. Augnaráð hans varð eins og lasergeisli. — Ég á við það aö þér komið með mér og reynið að hjálpa mér að finna krakka- ormana. — Koma með yður.............. hvert.......? — Hvert sem við þurfum aö fara. Ég get fundið út hvaöa flugvél var tekin á leigu fyrir ferðamannahópinn i gærkvöldi klukkan sjö. Og hvað farþegárnir eru nú staddir- hvar við getum ef til vill náð þeim. En fyrsta starf yðar verður að finna hvert ferða- ávisunin hefir farið, hvaða banki hefir leyst hana inn, svo viö getum vitað eitthvað um þann sem keypti þriðja grisinn. Jean skalf. Þegar hún stóð upp. — Þér eruð alveg frá yður. — Nei, nei, aðeins heimskur, sagði hann, þungur á brúnina. — En ég er ekki svo heimskur að ég ætli að láta ganga frá yður eins og Bernie. — Ó, hamingjan sanna. — Hvaö haldið þér að þessi njósnari haldi að við höfum veriö að tala um allan þennan tima? spurði hann reiðilega. — Og ég var jafnvel svo heimskur að vera að skrifa niður það sem þér sögöuð. Hann var reyndar búinn að eyöileggja bréfsnepilinn. — Hvaöa njósnari og hvers- vegna.......? . — Komið nú, tók hann frami fyrir henni. — Við skulum koma og segja húsbónda yöar að þér hafið skipt um vinnu. Meöan hann greiddi reikn- inginn horföi Jean út um glerhurðina. Maðurinn I brúnu fötunum, digri maðurinn, sem hafði verið með blómsveig um hálsinn i gær, beygöi sig yfir dagblað og þóttist vera aö lesa. — (Hversvegna hélt hún að hann þættist vera aö lesa?) Um leið og þau komu inn i gjafabúöina, ýtti hann henni til hliöar og skálmaöi I áttina til frú Mercer, sem var aö afgreiða við- skiptavin. Hann sagöi hátt og skilmerkilega: — Ég vona aö þér komizt af án ungfrú Cunliffe? Við höfum nefnilega gert meö okkur samning. Vilduð þér ekki vera svo góö að skýra þetta fyrir eiganda verzlunarinnar? Viljið þér nú ekki vera svo væn, frú Mercer? Ég er búinn að útbúa notalegt ástahreiður handa okkur og mér er mikið i mun aö viö getum komizt þangaö sem fyrst. Frú Mercer var blóðrjóð og Jean sá greinilega rautt af reiöi. Konan, sem var að verzla flissaði kjánalega. En Harry Fairchild sneri ávisanahefti milli handanna, skrifaði nafn eigandans og simanúmer. — Ég get reyndar gert út um þetta við hann sjálfur, sagði hann vingjarnlega. — Komdu nú, sykurbrúðan min, sagði hann við Jean Jean reyndi að skýra þaö fyrir frú Mercer að hann væri að gera aö gamni sinu, að þetta væri ekki satt, en frú Mercer hvæsti hreinlega á hana, rétt ens og slanga. Jean varö þá köld og róleg. Hún hafði reyndar enga löngun til að vinna þarna áfram. Hún streyttist ekkert á móti, þegar Harry dró hana með sér út úr búðinni. — Það var svo, sagði Harry glaðlega. Hann tók ekkert tillit til þess aö hún var alveg dolfallinn og utan við sig. — Nú þurfum við aðeins að losna viö hann. Hann ýtti henni i áttina til mannsins i brúnu fötunum. — Þér eruð einmitt maðurinn sem ég þurfti að tala við. Þessi stúlka segir að þér hafið veriö viö- staddur þegar Bernie Beckenhauer datt niöur i gærkvöldi, sagði hann ákveðinn. — Viljið þér segja mér hvaö þér gerðuö við farangursnúmeriö hans? Þér tókuð það. Og hvað geröuð þér við farangur hans. — Yður skjátlast, það hlýtur aö hafa verið einhver annar, sagöi maöurinn illskulega. Stingandi augnaráð hans varð flöktandi. — Hvaö heitið þér? spurði Harry mynduglega og gekk i áttina til hans. — Oh, hver eruð þér, ef ég' mætti spyrja? Maðurinn rétti úr bakinu. — Fairchild. Harry Fairchild. — Ég heiti Victor Varney. Og ég held þér vitið ekki hvað þér eruð að tala um — Þér voruð meö flugvélinni frá Hawaii i gærkvöldi, er það ekki rétt? Hún sá yður. Og hvað eruð þér að gera hér nú? Harry gekk fast aö honum. Maðurinn varð ergilegur. — Ég held að þér séuð alveg geggjaður. Afsakið mig, ég hefi engan tima til að tala við fábjána. Hann sneri sér við og gekk I burtu. Harry horfði á eftir honum, þar til hann var alveg horfinn. — Ja, ég veit ekki, ég . . . .Harry leit niöur til Jean, sem var að reyna aö koma tal- færunum i gang. — Nú heldur hann vonandi að hann viti allt sem þér hafiö sagt mér. Án þess að mögla lét hún hann teyma sig inn i simaklefa. Hann ýtti henni inn fyrir dyrnar og lét hana setjast. Og þar sat hún, hálfpart falin bak viö hann og hlustaði á að hann sagöi ein- hverja vitleysu i simann. Harry valdi númerið á skrifstofu búöareigandans. Hann fékk að vita hvaða banka hann skipti við. Bankinn var ekki opinn ennþá. Þá valdi hann einkanúmer bankastjórans. Sagöi honum allskonar vitleysu. Svo hringdi hann á upplýsingaskrifstofu flug- félagsins og fékk að vita brott- farartima flugvélanna. Hann fékk þær upplýsingar sem hann vildi. Þarnæst hringdi hann til ferðaskrifstofunnar, til að vita hvert ferðamannahópurinn hafði farið kvöldið áður. Þegar hann var loksins búinn að ljúka öllum þessum langlokum af I simann, stakk hann höndinni undir arm hennar og þrammaði af stað með hana. Hún var alltof viðutan, til að taka eftir litla, óásjálega manningum með gráa flókahattinn, sem stóö i næsta simaklefa. Harry teymdi hana að miðasölunni og keypti, ekki einn, heldur tvo farmiöa til Kaupmannahafnar. Hann spurði svo um framhaldsflug til Amsterdam og Jean reyndi ekki einu sinni aö bera fram mótmæli. Hann hafði örugglega ráð á aö fara til Kaupmannahafnar, hvenær sem honum dytti i hug og hann gat keypt svo marga farseðla sem hann lysti, en hún ætlaði ekki að fara meö honum. Harry sagði: — Við höfum nákvæmlega fjóra klukkutima til að láta niður i töskur og koma okkur af staö. Getiö þér náð þvi á svo stuttum tima? — Nei, sagöi hún meö isköldum róm. Þau voru á leiö til útgöngu- dyranna. — Þá verð ég aö finna einhver ráð til að fela yður á öruggum stað og hafa um yöur traustan lifvörö. En ekki i húsi föbur mins. — Nú, sagði hún, — hversvegna ekki þar? Framhald á bls. 39. 22 VIKAN 12. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.