Vikan

Tölublað

Vikan - 22.03.1973, Blaðsíða 47

Vikan - 22.03.1973, Blaðsíða 47
TRUMAN CAPOTE Framhald af bls. 10. segja. Sjálfur er ég ánægður með verkið, en framleiðand- inn, Paramount Pictures, er á öðru máli. Eg kenni í brjósti um þann, sem reynir að end- urbæta handritið. Ég var fimm ár að skrifa ,,Með köldu blóði“, og eitt ár að jafna mig eftir það, ef hægt er að segja svo. Það líður varla sá dagur, að eitthvað af því sem ég upplifði þá, varpi ekki skugga á tilveru mína. En áður en ég fór að vinna að þeirri bók, reyndar strax eftir að „Morgunverður hjá Tiffany" kom út árið 1957, fór ég að safna efni í stóra skáld- sögu, sem ég kallaði „Answered Prayers“, bókin heitir þvi nafni. Ég tók bókarheitið eftir orðum, sem höfð eru eftir Heilagri Theresu: „Það hafa runnið fleiri tár yfir bænum, sem voru bænheyrðar, en yfir þeim, sem ekki voru bæn- heyrðar." Og ég held að þetta sé satt: um leið og ein bæn er uppfyllt, ber maður aðra fram. Þetta er eins og hundar í kapp- hlaupi við gervihéra, þeir ná honum aldrei. Þetta á við bæði það góða og vonda í lífinu. „Answered Prayers" er margslungin bók og mesta verk sem ég hef fengizt við fram að þessu. Hún er þrisvar sinnum lengri en allar bækur mínar til samans. Síðustu árin hef ég haft hug á að ljúka þessu verki, en það er eins og þetta vindi alltaf upp á sig, en verði að lúta ákveðnum takti. — „An- swered Prayers“ er eins og hjól með tylft hjólrifa, og vél- in, sem knýr hjólið er mjög óvenjuleg kona, sem hefur átt hálft hundrað ástarævintýra og hefði getað gifzt hverium sem hún vildi, en hefur elsk- að ,,eldri“ mann í tíu ár, mann sem ekki getur kvænzt henni, vegna þess að hann á konu fyrir og mörg börn, og vill alls ekki skilja við konu sína, þar sem hann hefur hug á því að gefa kost á sér áem forseta Bandaríkjanna. Ef þú hefðir ekki ákveðið að gora ritstörf að ævistarfi og verða skapandi listamaður, hvað hefðir þú þá gert? Ég hefði kosið að verða lög- fræðingur. Ég hef reyndar oft hugleitt það, og margir lög- fræðingar, þar á meðal dóms- málaráðherra og hæstaréttar- dómari, hafa sagt mér að ég hefði getað orðið mjög góður glæpamálalögfræðingur, þótt rödd mín, sem talin er skræk og barnaleg, hefði kannski ekki notið sín sem bezt í rétt- arsölum. Ég hefði heldur ekki haft á móti því að láta einhvern sjá fyrir mér, en það hefur eng- inn sýnt neina löngun til þess, nema þá í eina viku eða svo. Stundar þú íþróttir? Já, ég fer stundum í nudd. Getúr þú búið til mat? Ekki handa öðrum. Ég bý alltaf til sama matinn handa sjálfum mér; tómatsúpu og kex. Stundum legg ég í það að baka kartöflur og borða þær með nýjum kaviar. Hefur þú nokkurn stjórn- málaáliuga? Ég hef þekkt nokkra stjórn- málamenn, sem ég hef metið mikils og það er ekki hægt að hugsa sér hve ólíkir þeir eru hver öðrum. Adlai Stevenson var vinur minn, mjög kær vin- ur. Við vorum einmitt gestir í sama húsi, þegar hann lézt og ég minnist þess að ég sá lög- regluþjón vera að láta ofan í P ^öskurnar hans. Ég komst við, þegar ég sá að hann ætlaði að fara að loka þeim og tók eitt af hálsbindum hans. Ég hafði einmitt verið að dást að þessu hálsbindi kvöldið áður og hann saeði þá að ég mætti eiga það. Ég hef líka haft miklar mæt- ur á Ronald Reagan. Margir af vinum mínum halda að ég sé að gera að gamni mínu, þegar ég segi það. Þótt Stevenson og Reagan hafi verið svo eiör- ólíkir menn, hefur sá síðar- nefndi þó eitt sameiginlegt með þeim fyrrnefnda, nefnilega lát- leysi og hreinskilni, þeir horf- ast beint í augu við mann og segja það sem þeim finnst, og- það er mjög óvenjulegt í okk- ar hópi, svo maður tali nú ekki um hóp stjórnmálamannanna. É’g get ímyndað mér að Reag- an fylkisstjóri og Jakob Ja- vits, senator í New York hafi ósjálfrátt andúð hvor á öðr- um, en samt gæti ég trúað að þeim kæmi prýðiléga saman. CRaunverulega ástæðan fyrir bví að ég læt mér tíðrætt um Reagan og Javits er sú, að ég er mikill aðdáandi eiginkvenna þeirra, sem raunar eru jafn- ólíkar og eiginmenn þeirra. Frú Javits er fáguð en frökk stórborgarastúlka, með blíða rödd og ástleitin augnasvip, hressilet í tali. Og frú Reagan, já, ég held að það séu ekki margar konur í hennar stöðu, sem eru eins innilega amerísk- MIDAPRENTUN LátiÖ prenta alls konar aögöngumiöa, kontrol- númer, afgreiðslumiða og fleira á rúllupappír. Eina prentsmiðjan á landinu, sem prentar slíka miða. Höfum einnig fyrirliggjandi og útvegum með stuttum fyrirvara ýmiss konar afgreiðslubox. LEITIÐ UPPLÝSINGA HILNIR hi Síðumúla 12 - Sími 35320 ar, það er eitthvað yfir henni, 12. TBL. VIKAN 47

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.