Vikan

Tölublað

Vikan - 22.03.1973, Blaðsíða 40

Vikan - 22.03.1973, Blaðsíða 40
Hann var öruggur bílstjóri, rólegur og ákveðinn. Hann sagði ekki orð, alla leiðina og hún hélt sér lika saman af þrjózku. Hann stöðvaði bllinn fyríi framan fjölbýlishúsið, sem hún bjó f og fylgdi henni upp tröppurnar. Og þegar hún opnaöi dyrnar á litlu ibúöinni sinni, þá gekk hann inn á eftir henni. — Ég ætla ekki að bjóða yður að setjast, þé hefið örugglega nóg að horfa i, sagði hún vingjarnlega — Reyniö að hafa ekki áhyggjur af öryggi minu, herra Fairchild. Harry settist samt, í eina þægilega stólinn.— Sem svar við spurningu yöar........ Jean tyllti sér á brúnina á svefnsófanum og beið i spenningi eftir þvi sem nú kæmi. — Við Bernie gengum saman i skóla, hóf hann mál sitt. — Við höfðum landafræöikennara, sem við kölluöum DocMcGee. Það vai alltaf fullt af stúdentum heim; hjá honum. Að lokum varð gamh Doc þreyttur á að greiða sima- reikningana fyrir okkur alla, svo hann setti sparigris við hliðina á simanumog enginn mátti hringja, nema aö stinga fyrst pening I grisinn. Þetta er upphafið. Svo er bezt að halda sig að efninu. Bernie sagði við mig I simann að eitthvert „svin” væri að reyna að hlera slmtalið, ( liklega I næsta klefa). Bernie sagði að það blæddi úr sér eins og „stungnum grls”. Jean hryllti uppi. — Siðan talaði hann um gamla Doc McGee og slmtöl, sem kom mér til að hugsa um sparigrisinn og það fékk mig til að hugsa um það orð, sem hann vildi bersýnilega láta mig hugsa um. Vitið þér hvað orð það hefir verið? — Já, ég veit það núna, sagði hún. En svo sat Harry grafkyrr, með hendurnar á hnjánum og starði út I loftið. Honum var ljóst að nú var hann kannski búinn að segja of mikið. En hversvegna? — Ég vona að þér finnið grísinn, sem þér leitið að, herra Fairchild. Hann svaraði ekki. Nú vissi hún að hér var um að ræða eitthvað sem stungið hafði verið I einn sparigrisinn, en hversvegna var hann að leggja svona mikið að sér aö koma henni i skilning um þetta? Hann vissi ekki einu sinni hvaö hann átti aö gera viö hana. Liklega ekki neitt. — En nú er komið að þvi að þér veröið að hlusta svolitið á mig, sagði Jean, fokvond. — Það er yöur að kenna að ég er búin að missa vinnuna. Þér hafiö hót- aö mér með aliskonar glæpa- mönnum og nú snúiö þér alveg við blaðinu, eða er ekki svo? Ætliö þér að taka mig með yöur i flugferöina, eða ekki? — Bernie vildi koma mér i skilning um þetta lykilorð, sagöi Harry þurrlega. — Já, þá það. Og ég seldi spari- grisinr.. Jean dró ferðatösku út úr skáp og skellti henni á sófann. Hún ætlaöi ekki að leika þennan skollaleik lengur. Það þýddi ekki að láta eins og ekkert hefði skeð. Hún myndi aldrei fyrirgefa sjálfri sér, ef hún færi ekki með honum. Hún flýtti sér að setja niður i töskuna. Harry horföi hugfanginn á hana. Hún var svo létt i hreyfingum og ákveðin, ekkert handtak fór til spillis. Hún var i fallegri, blárri léreftsdragt, sem var hentug i búðinni, en hún eyddi ekki timanum I að hafa fataskipti. Hún málaði sig ekki einusinni. Þegar hún var búin að loka töskunni, gekk hún að kæli- skápnum, tók mjólkur- og matar- leyfar út úr honum og fleygði þvi i ruslaopið. Svo setti hún hatt á höfuðið, greip perlufesti i aðra höndina og vegabréfið í hina og hneigði hún sig fyrir honum, hlæjandi út að eyrum. SKUGGAGIL Framhald af bls. 33. - Já, aö elta dömuna, sjálfsagt, sagði Mike og hló við. - Ætli það? sagði ég og hleypti brúnum hugsi. - Væri þér eitthvað illa við þaö? - Alls ekki, en mér væri illa við ef þú værir að elta hana. - Það er engin hætta á þvi, sagði hann. - Ég elti ekki aðrar en þig. Og mér þykir vænt um, aö hann skyldi vera svona mikið að flýta sér, þvl að ég vil vera með þér þessar fáu minútur, sem við getum verið saman. Þvi að ég veit, að þú verður fljótlega að fara aftur inn á dansleikinn. - Já, sagði ég. En ég vil lika eiga nokkrar minútur meö þér. Við komum aö turninum og gengum upp tröppurnar. Næstum strax gat ég fundið lyktina af I I I I I I I I I I I I I I KIIPPIÐ HÉR PöntunarseOIII Vinsamlegast sendið mér sniSið, sem ég krossa framan viS, í þvl númeri, sem ég tilgreini. GreiSsla fylgir meS I évlsun/póstávlsun/frlmerkjum (strikiS yfir þjð sem ekki á við). ..u..Nr. 71 (5014) Stærðin skal vera ,nr. ... Nr. 72 (5064) Stærðin skal vera nr. ... Nr. 73 (2978) Stærðin skal vera nr. .. Nr. 74 (8116) Stærðin skal vera nr... Vlkan - Símplícity --- —----------------------------------KLIPPIÐ HÉR - Nafn Heimili 40 VIKAN 12. TÐL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.