Vikan - 21.06.1973, Qupperneq 28
3. HLUTI
GETRAUN
VIKUNNAR
VIKAN efnir nú til nýrrar sumargetraunar og eru óvenju-margir og
glæsilegir vinningar i boði. Við höfum valið þá i sambandi við
sumarleyfisferðir, útilegu, veiðiskap og sitthvað fleira. Við bjóðum
ferð til Mallorka fyrir tvo með Orvali, veiði i Hrutafjarðará og uppi-
hald i Staðaskála, veiðiáhöld og útileguútbúnaður ýmiss konar. Þá
er einnig reiðhjól frá Fálkanum, kvöld fyrir tvo á Hótel Esju og
námskeið í afslöppun og snyrtingu hjá Heilsulindinni. — Getraunin
verður i fimm blöðum. Þegar öll fimm blöðin eru komin — ekki fyrr
— sendið þið lausnirnar til VIKUNNAR, PÓSTHÓLF 533,
REYKJAVÍK og merkið umslagið „Sumargetraun”. Haldið öllum
seðlunum saman, þar til keppninni lýkur. Takið þátt i þessari glæsi-
legu og skemmtilegu sumargetraun okkar.
Dvölin á Mallorka er hverjum og
einum frjáls til ráðstöfunar. Farar-
stjórar verða farþegum til aðstoðar
eftir megni. Þeir heimsækja hvern
gististað daglega. Aðalfararstjóri
Útsýnar er Jónas Guðvarðarson,
listmálari. Höfuðborg Mallorka,
Palma, hefur flest til að bera sem
krafizt er:
HOTEL ESJA á vaxandi vinsældum
að fagna sem fyrsta flokks mat-
staður. l vetur var ráðinn þangað
franskur matreiðslumeistari Paul
Eric Calmon, og hefur hann getið
sér mjög gott orð, þá var í veiur
bryddað upp á ýmsum nýjungum,
má þar nefna mánaðarkvöldin, þar
sem boðið var upp á rétti annarra
þjóða.
MYNDAVÉLIN má ekki gleymast i
sumarleyfinu, svo að hægt sé að
festa á filmu skemmtilegar minn-
ingar og rifja þær upp síðar. Meðal
vinninga í sumargetrauninni er
myndavél af gerðinni KONICA
C35V, en hún er frá Gevafoto,
Austurstræti 6. Vélin er mjög einföld
í notkun, en auk þess fylgir henni
itarlegur leiðarvísir á íslenzku.