Vikan - 28.06.1973, Page 18
Birtan skiptir öllu máli fyrir
grósku plantna, Ef birtuskilyröi
eru ekki rétt, vanþrífast þær eða
deyja og þá skiptir ekki miklu
máli hvað vel er búið að þeim
hvað næringu snertir.
Rétt birta þýðir hvorki mikil
birta eða lítil, heldur einfaldlega
þau birtuskilyrði sem þessi
ákveðna tegund þrífst bezt við.
Fáar tegundir stofublóma þola
sterkt sólskin í suðurglugga í
lengri tíma. Vesturgluggar eru
betri, en varast verður samt að
láta sterkt sólskin skfna beint á
vissar tegundir. Ef um saman-
plantanir fleiri tegunda f sama
keri er að ræða, getur þurft að
draga úr birtunni með rimla-
gluggatjöldum eða fausum skjól-
tjöldum (efni strengdu á ramma
eða tágavef).
SUÐURGLUGGINN
Þar má rækta kaktusa með
góðum árangri, einnig allar
tegundir þykkblöðunga. Þykk-
blöðungar eru samnefni fyrir
fjölærar plöntur sem hafa þykk
og oft safarík blöð. Ættimar eru
margar og tegundir enn fleiri.
Einnig er hægt að rækta éftir-
taldar tegundir í suðurglugga og
oft með góðum árangri, ef tekið
er tillit til sérstakra þarfa þeirra.
Aechmea fasciata,
Bougainvillea, Þríburablóm.
Euphorbia splendens, Klifur-
kóralviður.
Fortunella japonica, appelsintré.
Hibiscus, havajírós.
Mesembrianthemum blandum.
Pelargoniar
Sansevieria, Tengdamóðurtunga.
Stephanotis floribunda, Frúar-
lauf.
Þríburablóm þolirekki ofvökvun,
sama máli gegnir um tóbaksreyk.
VESTURGLUGGINN
Eftirtaldar tegundir eru heppi-
legar í vesturglugga. Sumar
þurfa þó sérstaka varúð til að
góður árangur náist.
Anthurium Flamingóblóm.
Aphelandra, Silfurfjöður.
Begonia glaucophylla.
Belóperone Hamingjublóm.
Brumfelsia,
Cissus Striata, Japanavin
Coffea arabica, kaffitré.
Dipladenia rosea
Ficus pumila, Hengigúmtré.
Saintpauliá.
Silfurfjöður þarf meiri áburðar-
gjöf en hinar, einnig mikla
vökvun, ella hanga blöðin fljót-
lega.
Ilmbikar þolir aftur á móti ekki
of mikla vökvun, þá verða blöðin
gul. Hann þarf að klippa niður
snemma á vorin.
Flamingóblóm' þarf að verja
gegn sterku sólskini.
Pálsjurt á að vökva í undir-
skálina, því blöðin þola ekki'kalt
vatn, hún þolir heldur ekki sterkt
sólskin.