Vikan - 28.06.1973, Page 36
SPENNANDI FRAMHALDSSAGA
EFTIR RODERICK GRAEME
10. HLUTI
SVARTSTAKKU R
Fulltrúinn klóraöi eina
undirhökuna. — Þér hafiö sýnileg
betri kjör en hér gerast. Ef viö
þurfum aö feröast, fáum viö ekki
annaö en fjóröa flokks gistihús,
og þurrar samlokur aö boröa.
— Vel á minnst, sagöi Verrell,
— ég var aö vona, aö þér heföuö
tima til aö boröa meö okkur
kvöldverö i kvöld.
— Mariotti ljómaöi allur. —
Konan min var einmitt aö tala um
þaö I gær, hve lítiö viö færum út.
Kvöldverðinum var lokið og
Mariotti og kona hans voru farin
heim, og Verrell og Georg fannst
þeir hafa lokiö daglega
góöverkinu sinu heiöarlega, og
þaö fyrir marga daga. Frú
Mariotti var boldangskven-
maöur, sem vildi segja álit sitt -
ekki alltaf sérlega merkilegt, -
hvort sem hún var að tyggja
matinn eða ekki.
Þeir sátu nú i forsalnum, þar
sem var óþægilega heitt, afþvi að
loftræstingin haföi bilaö, og
drukku iskælt Campari og
sódavatn við þorstanum.
— Hve lengi veröur Akhmin
innan landhelginnar? spurði
Georg.
— Það veit ég ekki, sagöi
Verrell, — við erum enn ekki
búnir að reikna það út.
— Það getur nú ekki veriö mjög
lengi.
— Nei, llklega ekki.
— Þá verður naumur timi hjá
okkur, nema flugvélin finni þaö
strax.
— Rétt segir þú.
Georg lauk úr glasinu sinu.
Svitinn rann niöur andlitiö á
honum.
— Verrell, sagöi hann, en
þagnaði slöan.
Verrrell lyfti brúnum. — Á ég
von á siðapredikun um
nauösynina á aö valda ekki
vandræöum I alþjóöaviöskiptum?
Georg iöaöi á stólnum,
órólegur. — Hér eigum viö skipti
viö tvær framandi þjóöir og
megum beinlinis ekki óviröa fána
annarra þeirra.
— Ekki einusinni til þess aö
komast aö sannleikanum?
— Við getum ekki einu sinni
veriö vissir um aö Egyptarnir
hafi upplýsingarnar i höndunum.
Og jafnvel þótt viö værum vissir
um þaö, megum viö ekki brjóta
alþjóðalög til þess að ná i þær.
Verrell lauk úr glasinu sinu og
kallaði á þjóninn að færa þeim
tvö I viöbót. Sjálfum fannst
honum hann ekki þekkja neinn
lagabálk, þjóðlegan eöa
alþjóðlegan sem ekki hefði gott af
þvl að vera brotinn einstöku
sinnum, en samt játaði hann
meö sjálfum sér, aö kannski væri
ekki rétt að láta undan til-
hneigingum sinum til lögbrota.
Það var hádegi og brennandi
hitinn helltist niður úr heiðsklrum
himninum og gegnþurrkaði loftiö.
Að hreyfa sig var sama sem að
svitna og að hugsa var sama sem
aö verða alveg uppgefinn.
Göturnar voru manntómar og öll
borgin virtist vera i fasta svefni.
Skrifstofa Mariottis var ennþá
heitari og loftþyngri en daginn
áöur og þar var leiöinlegur þefur
af flugnaeitri. Mariotti haföi
hneppt frá sér skyrtunni, niður úr
öllu valdi og fitukeppirnir stóöu út
úr henni, löörandi I svita.
— Hversvegna koma þeir ekki?
spuröi Georg og var óþolinmáöur.
Mariotti yppti öxlum. Hann var i
vondu skapi af þvi að þurfa aö
hreyfa sig svona mikið.
— Hringið þá upp og spyrjið,
hvað sé aö?
— Ég hrigndi þú upp fyrir
aungabliki og þeir höfðu ekkert -
aö tilkynna mér.
— Hringiö þér þá aftur.
Mariotti tautaöi eitthvaö, en tók
svo simann og valdi númer. Þaö
var seint svaraö I simann, þvl aö
hann var ekki sá eini, sem var
tregur á aö hreyfa sig. Hann
talaöi, hlustaði æpti eitthvaö
snöggt og lagði svo símann aftur.
— Signor, sagði hann, — eins og
ég sagöi yöur, er ekkert aö
tilkynna. Flugvélin hefur
tilkynnt, að ekkert sjáist til
vélbátsins.
Fluga flaug suðandi rétt fyrir
framan fulltrúann. Hann greip
sprautuna og ýtti á tappann, en
nú var brúsinn tómur, og bunan
var ekki neitt. Hann andvarpaði
djúpt, setti frá sér brúsann og
horföi á fluguna fljúga áfram,
skuggalegur á svipinn.
Verrell kveikti sér I vindlingi.
Hvaö haföi fariö úr lagi? Höföu
Egyptarnir verið klókari en hann
haföi búizt við - höfðu þeir ekki
fariö venjulega sjóleið, ef ske
kynni, aö þeir Georg - eða jafnvel
lögreglan - hefðu komizt á spor
þeirra biði þeirra nú
innan landhelginnar? Þeir voru
meö upplýsingar, sem voru
milljóna virði og þeir voru
nýbúnir aö fremja morö og voru
nú aö reyna að sleppa, svo að þeir
gátu varla farið of varlega - en
samt höfðu þeir siglt svo
áhyggjulausir út úr höfninni i
Monaco, svo að varla heföu þeir
yerið neitt verulega hræddir um
sig eða haldiö, aö þeir þyrftu að
gera neinar sérstakar varúöar-
ráöstafanir? Þaö var sem sagt
allt mögulegt til I dæminu.
Georg gekk utan frá
glugganum og mælti viö Verrell:
— Þetta fer aö lita dálítiö svart út.
Hann leit á úriö I fimmta sinn á
sama stundarfjórungnum.
Mariotti fór nú aö sýna meiri
áhuga en hingaö til . — Viö
veröum aö aflýsa þessu.
— Ekki strax, svaraði Verrell.
Ef þeir ganga ekki þessar
fimmtán milu, sem viö höfum
áætlað þeim, geta þeir veriö lángt
á eftir áætlun.
— Og ef þeir hafa gengiö meira
en fimmtán milur, geta þeir hafa
komizt gegnum sundiö fyrir
dögun. Þetta getur alveg eins
oröiö hrein timaeyösla hjá okkur.
— Þeir ganga aldrei meira en
fimmtán milur, sagöi Verrell, og
reyndi að vera öruggur, enda þótt
hann vissi, að þessi hraöi var ekki
annað en tilgáta eins manns.
Siminn hringdi og eftir
stundarkorn haföi Mariotti
safnaö nægilegum kröftum til
þess aö svara I hann. Þetta var
sýnilega einkasamtal. Mariotti
hótaöi og bað á vixl, og svipurinn
á honum ýmist herskár eða
biöjandi, og rétt áöur en
samtalinu lauk, var hann hinn
auömjúkasti - enda þótt enginn
auðmýkt skini út úr svipnum - og
af þessu réöu þeir félagar, aö
hann hefði veriö aö tala viö
konuna sina.
Mariotti lagði simann.
Samstundis hrigndi hann aftur.
Hann andvarpaöi og tók hann.
Svo hlustaði hann, svaraði
einhverju stuttaralega og rétti
svo simann aö Verrell. — Þetta er
flugstöðin. Hún segist ekki geta
haldið áfram þessari leit. Hafi
annaö þarfara aö gera.
Var þaö bara tilviljun, aö
hádegisveröartiminn skyldi ein-
mitt vera kominn? hugsaöi
Verrell meinfýsnislega meö
sjálfum sé. - Spyrjiö þá hvort þeir
vilji vera. svo góöir aö halda
áfram ofurlitið lengur. ÞAÐ er
mjög áriöandi, aö leitinni sé ekki
hætt.
Mariotti andvarpaöi æ þvi
meir. Hann sagöi eitthvaö snöggt
I slmann og lagöi hann slöan frá
sér. — Þeir ætla aö halda áfram
til klukkan tvö, en þá veröa þeir
lika aö hætta.
Verrell leit á úrið sitt. Hálfeitt.
Gæti Akhim komiö i sjónmál
næstu hálfa aöra klukkustund-
ina? Og ef hann geröi þaö ekki,
hvaö þá?
Atti þessum leiðangri aö veröa
snögglega lokiö, einmitt þegar
hæst átti aö hóa?
36 VIKAN 26. TBL.