Vikan

Tölublað

Vikan - 28.06.1973, Blaðsíða 40

Vikan - 28.06.1973, Blaðsíða 40
GÍ5SUR GULLRASS E.FTIB- BILL KAVANAGH e. FRANK FLETCUER Hann er alveg œgi- lega smart, frœnka, Sjáðu þennan ferlega hatt, sem kellingin þín er með. Hann er hrelnasta hörmung BANK i BORÐIÐ Framhald af bls. 7 fingurs. Og um fram allt, sitjiö ekki með fætur i kross, þá virkar þetta ekki. Við bönkum þrjú litil högg — á móti þremur höggum, leggið það einnig minnið. Þetta er stundað um alla Evrópu. Eng- lendingar segja touch wood, Frakkarnir svipaö Touchez du bois. En hvers vegna endilega timb- ur? Sennilega vegna þess, að i gamla daga hét það, að maður gæti bankað sjúkdómi sinum inn i tré. Skeifa færir hamingju. En spurningin er hvernig skal hún hanga — með bogann niður eða upp? Það er nefnilega ekki sama hvort er. Sumir segja, að fyrir alla muni megi boginn ekki snúa upp, það færir ekk; hamingju heldur þvert á móti. Fjandinn riði skeifunni. Aðrir segja að vist verði boginn að visa upp, þvi annars sleppi hamingjan út úr skeifunni. STJÖRNUHRAP Óskuðum viö okkur ekki alltaf einhvers i æsku, þegar við sáum stjörnuhrap? Þekktur, núlifandi rithöfundur hefur I skáldsögu lýst hjátrúnni i sambandi við stjörnuhrap. Það er aðalsögu- hetjan sem segir frá, en það gæti alveg eins verið einn okkar: ,,Ég fór fram úr. Kannske var það stjörnubjartur himinn sem lokkaði. Það stirndi á dökka flauelið yfir svörtum trjákrónun- um. Allt i einu var stjörnuhrap. Ég flýtti mér að óska. óskaði að viö Vibeke giftum okkur og yrð- um hamingjusöm. Annað i viðbót. Annað stjörnuhrap i viðbút. Ég óskaði mér aftur. 1 þetta skipti, að ég yrði fljótlega forrikur... svo við gætum gift okkur um leið og ég yrði stúdent. Og svo svei mér ef það var ekki eitt til. Þó að ég trúði ekki á svona lagað, varð ég að óska einhvers. Það varð að vera eitthað skynsamlegt eða fallegt —þvi hugsaðu þér, ef ósk- in rætist.” Það er ekki sama hvernig maö- ur óskar sér. Sumir halda þvi fram að maður eigi bara að óska sér einhvers með sjálfum sér. Hrópi maður óskina, svo að ein- hver heyri, rætist hún nefnilega ekki. Aörir segja, að maður skuli óska sér þess sama, hvert þeirra þriggja skipta sem stjarna hrapar. Gömul kona sagði, að það væri örlagarikt að færa ekki fram ósk við stjörnuhrap. Þá gæti einn af ættingjum okkar dáið áöur en árið væri úti. Hún hafði einnig heyrt að stjarna hrapaði vegna þess að einhver hafði slökkt á henni. Þar brennur ljós einnar manneskju niður. Þess má gjarn- an geta aö til finnst þveröfug skýring, nefnilega sú að i hvert skipti sem stjarna hrapar fæðist barn. t dag vitum viö að stjörnuhrap á ekkert skylt við stjörnur, þvi það er einfaldlega sandkorn sem kemur þjótandi inn i gufuhvolfið og verður hvitglóandi. Við getum vel skilið að þetta fyrirbrigði — áður en nokkur vissi hvað það var — gat komið imyndunarafli fólks af staö og árangur þess kon- ar starfsemi var tilbúnar út- skýringar, sem áttu afskaplega litið skylt viö raunveruleikann. TRÚGIRNI Er þepsu ekki likt farið i dag, eða hvað? Við höfum skáldað upp úrskýringum á fyrirbrigðum sem við vitum litið eöa ekkert um. Og svo göngum við um og trúum mörgum þessara útskýringa, og þeir áköfustu fá jafnvel aðra til að trúa hinu sama. Sagan er full af dæmum um slungið fólk sem hef- ur notað sér þessa sérstöku gerð trúgirni meðborgara sinna. — Það hefur orðið rikt eða aflað sér valds yfir sálum meðborgara sinna. Og þetta heyrir alls ekki fortiðinni til. FÖSTUDAGUR SKIPHERRA Nú á dögum getur maður, eins og kunnugt er, tryggt sig gegn öllu mögúlegu. Til dæmis þeir sem ferðast oft með flugvélum geta tryggt sig svo að eftirlifandi ættingjar biði ekki efnahagslegt tjón, ef flugvél ferst. Viö þekkjum til manns sem alls ekki vill verða sér úti um tryggingu — „Þvi þá finnst mér örugglega að allt muni ganga á afturfótunum”. Sá hinn sami veit að það er til- gangslaust og óskynsamlegt að hugs sem svo, en samt sem áður getur hann ekki gert neitt við þvi. Það hefur heyrst að hinn látni, ameriski hershöfðingi Eisen- hower, einn mesti hermaður seinni heimsstyrjaldar', hafialltaf borið á sér gullpening. Hann von- aði að peningurinn færði sér heppni, þegar orustur gengu hvað verst. Annar ekki minna frægur frá vorum dögum, Sir Winston Churchill, hélt þvi fram i mót- stöðu við allæaðra að svartir kett- ir vissu á gott. Hjátrúin er rik innan margra atvinnugreina. Hamingjan náði þann leikara, sem leyfir sér að blistra innan veggja leikhúsanna, eða gengur með hatt yfir svibið, slikt gæti reynst örlagarikt. Aðal- æfing á helzt að vera léleg, þá verður frumsýningin góð. Sumar leikkonur geyma kjólinn sem þær notuðu i sinum fyrsta leiksigri. Miðasölufólkið trúir þvi, ab ef sá fyrsti sem kemur og kaupir miða á nýtt verk sé gamall, muni verk- ið ganga lengi. En ef þaö er barn, á verkið sér ekki langa framtið. Meðal sjómanna hefur alltaf 40 VIKAN 26. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.