Vikan

Tölublað

Vikan - 30.08.1973, Blaðsíða 21

Vikan - 30.08.1973, Blaðsíða 21
— Þegar hugtakiö Stór- Reykjavik var enn óþekkt og Laugardalurinn hafði ekki verið lagður undir háreist og viðáttu- mikil iþróttamannvirki, bjuggu margir bændur við rausn, þar sem nú gnæfa stein- og glerhallir nútimans. Býlin þeirra eru flest horfin og þeirra sér ekki stað, nema i nokkrum götuheitum. Áð- ur en langt um liður vita börnin, sem alast upp við Langholtsveg, Bústaðaveg og Laugarásveg, sennilega ekki að þessi götuheiti eru kennd við býli, sem einu sinni stóðu á þeim slóðum. Heimilis- fang þeirra verður þeim jafn ó- skiljanlegt og orðið Kaflkofns- vegur var lengi þeim, sem þetta skrifar. tslenzkir bændur fóru ekki að yrkja jörðina i Laugardalnum svo nokkru næmi fyrr en eftir siðustu aldamót. Einn frumbýlinganna I dalnum var ólafur Grimsson, sem keypti þar fimm hektara land árið 1914, og reisti þar bú ásamt Ingigerði Jónsdóttur konu sinni. Ólafur var ættaður af Sel- tjarnarnesi, en Ingigerður austan yfir fjall. Þau höföu búið i nokkur ár i Reykjavikurbæ, en undu sér þar ekki. Bæinn sinn i Laugar- dalnum kölluðu þau Reykjaborg og þar bjuggu þau það sem þau áttu ólifað og ólu þar upp twö börn sin. Sonur þeirra, sem Stefnir heitir, tók við búi foreldra sinna fyrir næstum þrjátiu árum og hann býr enn I Reykjaborg. Okk- ur fannst tilvalið að spjalla viö Stefni, þvi aö hann er með siðustu bændum i Reykjavik. — Foreldrar minir ætluðutvisv- ar sinnum að selja Reykjaborg- ina, en ég fékk að ráða þvi að það var ekki gert. Við erum vist ekki nema tveir eftir bændurnir hérna i dalnum. Stefnir i Reykjaborg býr með fimm nautgripi, hátt á annað hundrað fugla og um það bil þrjá- tiu kindur. Af fimm nautgripum eru þrjár mjólkandi kýr og tvær kvlgur á öðru ári. — Það er hægara að hugsa um fuglana en blessaðar kýrnar og svo eru þeir heldur ekki eins bind- andi. En kýrnar minar eru sér- staklega góðir gripir. Ekki alls fyrir löngu seldi ég þrjár kýr að Skálatúni og mér hefur verið sagt, að þær séu beztu gripirnir i fjósi Skálatúnsbúsins. Ég gæti plássins vegna haft fleiri kýr hér, en ég er með fuglana i nokkrum hluta fjóssins og svo þyrfti ég að kaupa meira hey en ég geri, ef ég fjölgaði kúnum. Stefnir selur mjólkina I Mjólkursamsölunni. Þangaö fer hann meö hana I brúsum i stræt- isvagninum, nema þegar nytin er hvaö mest. Þá tekur hann stund- um leigubil með hana. Dagsnytin er frá tiu lltrum og upp i fimmtiu litra, þegar mest er. Eggin selur Stefnir heima og hefur lengi haft sömu viðskiptavinina. Þeir eru Fuglarnir hans Stefnis eru ekki styggir og hópast að lionum, þegar hann gefur þcim. r FER MEÐ MJOLKINA í STRÆTIS- VAGNINUM Á myndunum á myndinni má sjá Stefni halda Itósu dóttur sinni undir skirn, Stefni ásamt foreldrum sinum, sem reistu bú i Reykjaborg, og Rósu. A stóru myndinni til vinstri eru Stefnir og Rósa fyrir utan bæinn sinn i Laugardalnum og Rósa heldur á kettlingunum. Stefnir bóndi i Rcykjaborg. ánægöir með eggin, enda sparar Stefnir ekki viö fuglana sina og leyfir þeim aö ganga meira frjálsum en margir aðrir hænsna- bændur. — Endurnar minpr hafa nátt- úrlega ekki nóg vatn stundum. Þær eru svo mikið háðar þvi aö hafa vatn til þeSs að synda á. Ég hef látið renna handa þeim polla hérna heima og svo fara þær heil- mikið i skurðina hérna i kring. Ég gæti vart hugsað mér að stunda 'jóöurbúskap sumarlangt eins og Framhald á bls.J30 » r« - ■* V ' 35. TBL. VIKAN 21 .

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.