Vikan

Tölublað

Vikan - 30.08.1973, Blaðsíða 33

Vikan - 30.08.1973, Blaðsíða 33
ana, en það er allt i lagi með þau. Ég fafln þau og svo hjálpaði Ernest mér með þau heim. Charles fór með Maggie til læknisins. Hún er ekki i neinni hættu. Joan hallaði sér aftur á koddann og það leit út fyrir aö hún héldi að ég væri að skrökva. — Er þetta satt, Anne? spurði hún, tortryggin á svipinn. — Það er satt, sagði ég þreytu- lega. — Má ég ekki fara núna? ég þarf að komast i bað, svo mér hitni vel. — Ó, fyrirgefðú mér, Anne. Ég ætlaði ekki að vera svona sjálfs- elsk. Ég skal hringja i frú Vinton og biðja hana að aðstoða þig. Ég fór svo i bað og á eftir kom frú Vinton mér i rúmið, eins og ég væri smábarn og breiddi vel yfir mig. Hún kom llka með stóran bolla af heitu tei. Það minnti mig á æskuna, þegar ég var lasin og mamma hjúkraði mér. Ég fann til þess áþreifanlega nú, hve ég var i raun og veru einmana. Nú átti ég engan að. Ég var rétt að sofna, þegar Charles kom inn i herbergið. Hann lagði svala höndina á ennið á mér. — Það er eins og þú sért að brenna, sagði hann striðnislsga. Ég kom með svolitið koniak, svo hetjan okkar gæti sofnað vel. — Ég þarf ekkert koniak, sagði ég sýfjulega. — Ég er alveg að sofna. Hvernig liður Maggie? — Henni liður vel og það er þér að þakka. — Hún er handleggs- brotin og Raab setti handlégginn i gifs. Hún verður á sjúkrahúsinu i nótt. Raab fannst það öruggara. Þegar maður hugsar, hvað hefði getað komið fyrir þig.... Hann þagnaði og mér fannst hann lita óvenjulega þreytulega út. — Það eina, sem ég get hugsað nú, er að þetta hefði ekki þurft að koma fyrir, hefði ekki skeð, ef ég hefði ekki gefið henni hvolpinn. — En þetta er ekki þér að kenna. Þetta er aðeins slys. Við litum hvort á annað. Eitt slysið enn! — Ég veit það, sagði hann þreýtulega. — Ernest hélt, að brúnin hefi hrunið undan snjó- þyngslunum, en... Þetta var þriðja slysið, en sem betur fór, varð þetta ekki dauða- slys. — Hún hefði frosið I hel, ef þú hefðir ekki fundið hana, sagði Charles hægt. — Það hefði einhver annar fundið hana, sagði ég. — Depill gellti i sifellu. Þessvegna fann ég þau. Ég þagnaði. Ég fór nú að hugsa um öll þessi undarlegu til- vik, en ég hafði skotið þeim frá mér áður. Opnu dyrnar... og hvernig hafði hvolpurinn getað flækt sig i netinu? Ég hugsaði upphátt. — Já það er undarlegt, sagði Charles. — En ég keypti hann af Ed Jagger. Kofinn hans liggur alveg niðri við vatnið. Það getur verið, að hvolpurinn hafi fundið lyktina af vatninu, þegar hann skauzt út. Framhald á bls. 40 35. TBL. VIKAN 33

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.