Vikan

Eksemplar

Vikan - 30.08.1973, Side 38

Vikan - 30.08.1973, Side 38
 Bozo Kucik varð hundraö ára i fyrra og jólin hélt hann á eyjunni Gujak, sem er ein eyjanna i Kornatieyjaklasanum úti fyrir strönd Júgóslaviu. bar hafði hann þá verið einbúi i meira en áttatiu ár. En stuttu eftir áramótin flutti hann til eyjunnar Murter, þvi að eins og hann sagði sjálfur, vildi hann ekki deyja einn. Faðir Bozos hét Krizan og var ekkjumaður, sem átti sjö börn. Krizan hafði enga vinnu og þess vegna fór hann með Bozo, sem þá var tólf ára, á markaöstorgið i Obrovac og seldi hann Ivan Bozikov jarðeiganda fyrir hálfan leirbrúsa af vini og kartöflupoka. betta var árið 1880. Krizan sagöi: — Héðan i frá er þessi maður húsbóndi þinn. Fylgdu honum og vertu honum hlýðinn. Bozo kvaddi föður sinn og hefur ekki séð hann siðan. Nýi húsbóndinn fór með Bozo til eyjunnar Murter, þangað sem hann fór eftir áramótin i vetur til að deyja, og gaf honum fyrstu ær- legu máltiðina, sem hann fékk á ævinni. Hann man enn eftir þess- um mat og i þau fáu skipti, sem hann hefur haft einhvern til aö taia við i áttatiu ár, hefur hann sagt frá þessu atviki. Ivan Bozikov kenndi Bozo aö hirða geiturog fé og að rækta vin. Síöan setti hann drenginn á land i Gujak og fékk honum nokkrar kindur, geitur og kjúklinga, tvo klæðisbúta, þrjár ábreiður^ kartöflupoka, eldspýtur og hnif. Hér hefur þú allt, .sem þú kannt að þarfnast, sagði Ivan. — Ég kem aftur eftir sex mánuði eða ár og lit eftir þvi hvernig þér liður. betta var árið 1888 og það var ekki fyrr en árið 1914 að Bozo komst aftur i snertingu við lifið utan eyjarinnar. bá kom bátur til Gujak. Herlögreglumenn stigu á land og tilkynntu Bozo aö hann væri hér með kvaddur til herþjón- ustu I her austurisk- ungverska rikisins. beir tóku ekki mark á þvi þó Bozo mótmælti herkvaðn- ingunni og segðist vera fjörutiu og tveggja ára. Bozo.var ólæs og hafði engin vottorð, sem sönnuðu aldur hans, og þess vegna gat hann ekki sann- fært hermennina. beir þvinguðu hann til að skiljast við húsdýrin sin og fóru með hann i herbúðir i Opatija, þar sem nú eru lúxus- hótei og einn vinsælasti ferða- mannastaður i Júgóslaviu. bar kynntist hann einu kon- unni, sem hefur haft nokkur áhrif á hann. Hann varð ástfanginn af henni, en hún vildi ekki bindast honum, þvi að henni fannst hann vera of gamall. Hann hefur aldrei siöan tekið sér nafn stúlkunnar i munn, en hann segir: 38 VIKAN 35. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.