Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 30.08.1973, Qupperneq 47

Vikan - 30.08.1973, Qupperneq 47
stúlkunnar, aö hún slær hana. Hún biöst afsökunar, en Anna hristir bara höfuðiö. Þegar hún er orðin alein á ný sker hún sig i kviðinn meö glas- brotinu. Við rúm hinnar látnu Agnesar stendur presturinn. — Ef þú mætir guði þar handan við mörkin, og ef hann snýr aug- liti sinu til þin, ef þú getur talSð það mál, sem þessi Guð skilur... Biddu þá fyrir okkur, Agnes, kæra litla barn... Legðu byrðar þjáninga þinna við fætur guð- dómsins, biddu hann að mis- kunna oss, frels okkur frá angist okkar, leiöa og hinum djúpa efa. Biddu hann að gefa okkur tilgang i lif okkar, þú, sem hefur þjáðst svo mikið og lengi, þú hlýtur aö vera þess verð að bera fram bæn- ir okkar. Agnes er svo litil i nýstroknu lini. Hvita hettu h'efur hún yfir hárinu. Milli krosslagðra hand- anna er gul rós. Þegar ég horfi á þessa mynd, sem Ingmar kallar draum, þrá eða kannske von, ótta, þar sem hið ógnvekjandi kemur aldrei fram, heyri ég, hvað Ingmar sagði einu sinni: — Ef ég hefði ekki fengið að lifa i samfélagi með öðrum, og ef þetta samfélag hefði ekki gert «kröfur til min, svo ég fengi tæki- færi til að fara út fyrir sjálfan mig, til að gleyma sjálfum mér, hefði ég sennilega orðið geðveik- ur og framið sjálfsmorð, ef ég hefði þorað þaö. Svo gerist hið óvænta. Anna heyrir barnsgrát i fjar- lægð,„og þegar hún gengur inn til hinnar látnu, sér hún tár, sem renna niður kinnarnar. Ég get ekki sofiö. Ég get ekki farið. Er enginn, sem getur hjálp- að mér? Ég er svo þreytt. — Þaö er bara draumur, hvisl- ar Anna. ----Fy rir ykkur er það kannske draumur, en ekki fyrir mig. Anna biður systurnar að sitja yfir henni, þar til hið vonda er lið- ið hjá. Karin biðst undan, hún vill ekki hafa neittaö gera með dauða systurinnar. Henni finnst hann viðbjóöslegur. Marla tekur hikandi og hrædd um hendur systurinnar: — Manstu eftir, þegar við vor- um litlar og lékum okkur i rökkr- inu:. Allt I einu urðum viö báðar hræddar og þrýstum okkur þétt hvor að annarri og héldum um hvor aðra. Er ekki um sama hlut að ræða núna.Er það ekki? Én þegar Agnes dregur hana til sin, flýr hún út úr herberginu, kastar sér á lokaðar dyrnar og bankar til að sleppa út. Þá stendur Anna þar. — Þér þurfið ekki að vera hræddar lengur. Ég skal gæta hennar. Hin trúa þjónustustúlka, Anna, Bergman mælir fyrir um töku atriöis i myndinni. Maria og læknirinn (Erland Jos- ephson) i einu atriöi myndarinn ar. . Maria (Liv Ullman) er ljúfust þeirra systra, lifandi — dekruö af systrum sinum. Þú trúir ekki, að þú sért aö deyja? Eg trúi ekki, að ég eigi að deyja, ég hef aldrei getað imynd- aö mér þaö. En þegar ég upplifi návist dauðans jafn sterkt og i drauma- leik Ingmar Bergmans, vil ég breyta lifsbraut minni. Eigingirnin, kuldinn og kæru- leysið, reiðin, drambið og leiðinn. leiðinn. Það siðasta, sem við sjáum af Karin, er, þegar hún kveður Mariu. Hún vildi gripa til þess, sem hún hafði kastað frá sér, hæfileika til auösveipni, innileika og þrá eftir samkennd. — Þú gerðir mig hrærða, sagði Karin alvarleg. En Maria, sem er svo barna- lega forvitin, er nærri búin að gleyma þvl öllu. Þar að auki hef- ur hún ekki tima. Hefur þú eða ég? „Gefðu mér barm aö blunda viö er breytist gleöi i neyö Geföu mér trú aö treystast viö tryggö i myrkum deyö”. lokar dyrunum. Gengur yfir að rúmi Agnesar og leggst við hlið hennar. Hún heldur höfði hennar að brjósti slnu. 35. TBL. VIKAN 47

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.