Vikan

Tölublað

Vikan - 15.11.1973, Blaðsíða 12

Vikan - 15.11.1973, Blaðsíða 12
Tilvonandi faðir í baðherberginu dreif hún hann úr jakk- anum og skyrtunhi og fyllti handlaugina. Rogin harðist við hugarangur sitt; þarna sem hann stóð með hera bringuna fann hann enn meira fyrir þvi en áður, og hann sagði við sjálfan sig: Bráðum skal ég tala yfir hausamótunum á henni... Smásaga eftir Saul Bellow Furöulegusiu nugmyndir áttu það til aö laumast inn i huga Rog- ins. Þetta var ekki ólaglegur maöur, rétt nýoröinn þrjátlu og eins árs, meö svart stuttklippt hár, lítil augu, en hátt opiö enni, efnafræöingur aö atvinnu og yfir- leitt rólegu: og skýr I hugsun. En eitt sunnudagskvöld I hriöar- veöri, er þessi þrekvaxni ungi maöur gekk áleiðis I neöan- jaröarlestina meö dálítiö álappa- legu göngulagi slnu — hann var útskeifur — og meö frakkann hnepptan upp I háls, komst hann i einkennilegt hugarástand. Hann var á leið til kvötdveröar hjá unnustu sinni. Hún haföi hringt til hans stuttu áöur og sagt: ,,Þú ættir aö verzla svolltiö I leiðinni”. Já hvaö vantar?” „Þaö er nú til dæmis eitthvað af nautasteik. Ég keypti kvartpund á leiöinni heim frá henni frænku”. „Til hvers er aö kaupa kvart- pund, Joan?” sagöi hann óþolin- móöur. „Þaö er rétt mátulegt I eina góða samloku”. „Þess vegna þarftu aö koma viö I kræsingabúð. Ég átti ekki fyrir meiru”. Hann var aö þvl kominn aö spyrja: „Hvaö er oröiö af þrjátlu dollurunum, sem ég lét þig hafa á miövikudaginn?” en hann vissi, aö þaö áttuhann ekki aö gera. „Ég varð að láta Phyllis fá pen- inga til aö borga ræstingakon- unni”, sagði Joan. Þær Phyllis voru bræðradætur og bjuggu saman. Phyllis var frá- skilin og sterkefnuð. „Sem sagt nautasteik”, sagði hann, „og hvaö fleira?” „Elsku keyptu fyrir mig hár- þvottalög. Viö erum búnar tneð hann allan. Og flýttu þér, elskan, ég hef saknaö þln I allan dag”. „Ég hef saknað þín llka”, sagöi Rogin, en sannast sagna haföi hann meira veriö aö hugsa um fjármál. Hann átti yngri bróöur, sem hann var aö styrkja til há- skólanáms. Og lífeyririnn hennar móöur hans var I naumastalagi á þessum tímum veröbólgu og hækkandi skatta, svo að henni þurfti líka aö hjálpa. Joan var I skuldum, sem hann var aö hjálpa henni til að'borga niöur, þvl hún haföi ekki vinnu. Hún var aö litast um eftir einhverju starfi viö sitt hæfi. Svona bráöfalleg og vel menntuö stúlka af yrirstéttarfólki gat ekki fariö aö afgreiöa eitt- hvert ómerkilegt skran yfir búöarborö, ekki gat hún veriö sýningardama (Rogin áleit, aö þaö starf geröi stúlkur hégómleg- ar og tilgeröarlegar, og vildi ekki, aö hún fengist við þaö), enn slöur gat hún veriö gengilbeina eöa gjaldkeri. Hvaö gat hún -veriö? Jæja, eitthvaö hlaut aö reka á fjörurnar, og á meöan hikaöi Rogin viö aö kvarta. Hann borg- aöi reikningana hennar — tann- lækninum, kjörbúöinni; heilsu- ræktarstööinni, lækninum, sál- fræöingnu.n. Um jólin munaði minnstu, aö Rogin missti glóruna. Joan gaf honum reykingajakka úr silkiflaueli með gylltum spenn- um, dýrindis pipu og tóbakspung. Phyllis gaf hún brjóstnælu með granatsteini, Italska silkiregnhllf og slgarettumunnstykki úr gulli. öörum vinum slnum gaf hún holl- enzkt tin og sænskan krystal. Þegar hún haföi lokiö sér af, var hún búin meö fimm hundruö doll- ara úr vasa Rogins. Hann elskaði hana allt of mikið til aö láta hana veröa þess vara, hvaö hann tók út. Hann áleit skapgerö hennar miklu fremri sinni eigin. Hún hugsaöi ekki um'peninga. Hún haföi dásamlegt lundarfar, alltaf glöö og kát, og I rauninni haföi hún ekkert meö sálfræöing aö gera. Hún fór til hans af forvitni, af því að Phyllis gerði þaö. Yfir- leitt reyndi hún of mikið til aö halda I viö Phyllis, dóttur manns, sem haföi grætt milljónir á tepp- um. Meöan konan I lyfjabúöinni var aö setja utan um flöskuna meö hárþvottaleginum, rann skýr hugsýn allt I einu upp fyrir Rogin: Peningarnir umkringja mann I llfinu eins og jöröin eftir dauöann. Allsherjaránauö er lögmáliö Hver er frjáls? Enginn er frjáls. Hver hefur engar byröir aö bera? Allir eru undir álagi. Allt — meira aö segja klettarnir, vötnin, dýrin, mennirnir, börnin — á öllu hvllir eitthvert farg. Þessi hugsýn var honum ákaflega ljós I fyrstu. Svo varö hún dálítið óskýr, en haföi þó veruleg áhrif á hann, eins og’hon- um heföi veriö gefin dýrmæt gjöf. (Ekki gjöf eins og reykingajakk- inn, sem hann gat ekki fengið sig til aö vera I, eða plpan, sem ætlaöi aö kæfa hann, þegar hann reykti hana). Þessi hugmynd, að allt og allir væru undir álagi og þvingun, geröi hann ekki dapran. heldur þvert á móti. Hún kor~ ‘ um I prýðilegt skap. Þaö var undra- vert hve hamingjusamur hann varð og glöggskyggn aö auki. Augu hans opnuöust snögglega fyrir öllu I kringum hann. Hann haföi gaman af að sjá, hvernig lyfsalinn og konan, sem var aö láta utan um flöskuna, gáfu hvort ööru brosandi undir fótinn, hvernig áhyggjuhrukkurnar á andlit; i.ennar urðu að broshrukk- um og rýrnaðir gómar lyfsalans gátu ekki hindrað glens hans og glaöværð. Einnig I kræsingabúö- inni gegndi þaö furöu, hve margt Rogin sá og skynjaði og hvillk gleöi honum veittist af þvi einu aö vera þar. Kræsingabúöir eru visar til aö okra ferlega á sunnudagskvöld- um, þegar allar aörar verzlanir eru lokaðar, og Rogin heföi að ööru jöfnu veriö á varöbergi, en I kvöld var hann þaö ekki, eöa sama sem ekki. Lyktin af súrsuö- um kaljurtum, pylsum, mustaröi og reyktum fiski geröi honum ó- umræöilega glatt I geöi. Hann sárkenndi I brjósti um fólkiö, sem mundi kaupa kjúklingasalatiö og brytjuöu slldina, þaö hlyti aö vera svo sjóndapurt aö þaö sæi ekki, hvaö það fékk — stórar pipar- hlussurnar á kjúklingunum og gegnblauta slldina, sem mest- megnis var gamalt brauö, bleytt upp I ediki. Hver mundi kaupa þetta? Þeir, sem kæmust seint á Þýðandi: Skúli Bjarkan Teikning: Bjami Jónsson fætur, einhleypingar, sem vökn- uöu ekki fyrr en I slðdegishúminu og komu aö tómum kæliskápun- um, eöa fólk, sem horföi inn I sjálft sig. Nautasteikin var ekki óálitleg og Rogin baö um eitt pund. Meöan kaupmaöurinn var aö skera niöur kjötiö æpti hann til stráks frá Puerto Rico, sem var aö teygja sig eftir poka af súkku- laöikexi: „Hæ, ætlaröu aö velta allri grindinni um koll fyrir mér? Dokaðu viö, chico”. Þessi kaup- maöur, sem leit út eins og einn at' stigamönnum Pancho Villas, þessum, sem mökuöu óvini sina I slrópi og bundu þá svo yfir mauraþúfum, maður meö frosk- pödduaugu og feitar hendur, eins og lagaðar til aö munda plstólur, sem hann bæri I belti slnu, var nú ekki svo afleitur samt sem áöur. Hann var New Yorkari, hugsaöi Rogin — sem sjálfur var frá Al- bany — borinn og barnfæddur New Yorkari, hertur I spillingu stórborgarinnar, alinn upp viö aö tortryggja alla. En I hans eigin riki, bak viö búöarboröið, þar var réttlæti. Jafnel mildi. Strákurinn frá Puerto Rico var I fullum kúrekaskrúöa — meö grænan hatt með hvítum boröa, skammbyssur, leöurbrækur, spora, stígvél og hanzka, en hann kunni ekki ensku. Rogin tók kex- pokann af króknum og fékk hon- um. Strákur reif sellófanpokann I sundur meö tönnunum og fór aö tyggja eina af þessum þurru, höröu súkkulaöikringlum. Rogin kannaðist viö ástand hans — kappsaman draum bernskunnar. Einu sinni haföi honum lika þótt þetta þurra kex dásamlegt. Nú heföi hann ekki nennt að éta þaö. Hvað mundi Joan langa I fleira? hugsaöi Rogin ástúölega. Kannski jaröarber? „Látið mig hafa svolitiö af frosnum jaröar- berjum. Nei, hindberjum, henni þykir þau betri. Og þykkan rjóma. Og nokkra snúða, rjóma- ost, og eitthvaö af þessum litlu gúrkum, sem eru alveg eins og gúmml”. „Hvaö er eins og gúmml?” „Þessar litlu dökkgrænu gúrk- ur meö blettunum. Og kannski svolltinn rjómaís”. Hann reyndi að hugsa upp ein- hverja gullhamra, einhverja snjalla samlíkingu, einhver ástarorð til aö segja viö Joan, þegar hún opnaði dyrnar. Hvaö um litarháttinn? í rauninni var ekkert, sem hægt var að llkja littla, sæta, djarflega, frlöa, feimnislega, þrjózkulega, yndis- lega andlitinu hennar viö. Hvaö hún var erfiö, og hvaö hún var falleg! Þegar Rogin kom niöur I stein- steypu- og málmþefjandi and- rúmsloft neöanjaröarstöövarinn- ar varö hann áheyrandi aö ó- venjulegu skriftamáli, sem ein- hver maður geröi fyrir vini sln- um. Þetta voru tveir mjög há- vaxnir menn, luralegir I vetrar- klæðum sínum,eins og þeir væru I hringabrynjum undir frökkunum. „Hvaö hefurðu þekkt mig lengi?” spuröi annar maöurinn. „Tólf ár”. B ramhald á bls. 46 . 12 VIKAN 46. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.