Vikan

Tölublað

Vikan - 15.11.1973, Blaðsíða 17

Vikan - 15.11.1973, Blaðsíða 17
Siddons? Og Kemble bróður hennar? Er hann eins stórkost- legur og af er látið? Mig langar til aö heyra um þau leikrit, sem þú hefir séð og hvernig leikararnir og leikkonurnar koma fram I hlutverkunum, og...og...allt. Lil var svo áköf, að hún réð varla við sig. » Hann virti hana fyrir sér, með mikilli aðdáun og sagði: — Ég hefi aldrei séð neina af þessum leikkonum likt þvi eins töfrandi og þú ert, Lil! Þú ert orð- in ennþá yndislegri! Og hún hló af ánægju og bað hann að segja sér ennþá meira. Og það gerði hann, hann gat alls ekki staðizt töfra hennar. Siðar þegar hann hafði sagt henni allt, sem honum gat komið 1 hug, þá sat hún dreymandi og horfði inn i eldinn. Abel gat ekk: lengur staðið á móti ást'Sinni og þrá. Hann kraup við fætur henn- ar, dálitið klaufalegur i ákafa sin- um. — Lil, sagði hann og rödd hans skalf litið eitt. — Lil? Ertu...hann kyngdi. — Ertu ánægö yfir þvi aö sjá mig? Ertu eins ánægð og ég er, yfir þvi að hafa nú loksins fundið þig? Ég fór svo oft út i Old Comton Street og ráfaði fram og aftur um göturnar, til að vita hvort ég rækist ekki á big, eða II jli frétti eitthvað af þér. Og nú hefi ég fundið þig, og ,ú ert,,ó, Lil! Það var svo margt, seir hann langaði til að segja. Og hann lagði höfuðið i skaut hennar, hélt fast un: báðar hend- ur hei.nar og hann fann augu sin fyllast tárum og hjarta hans var þrungið af fögnuði. En þá hreyfði hún sig og dró að sér hendurnar. — Heyrðu mig Abel, það er naumast að þú ert orðinn ákafur! sagði hún glað- lega. — Þú ert nú orðinn heims- borgari og þú átt þá ekki að haga þér svona...svona kjánalega! sagði hún striðnislega. — Kjánalega! Tárin þornuðu i hvörmum hans og hann fann til sárrar. reiði. — Kjánalega! Er það kjánalegt, að ég skuli vera hamingjusamur yfir endurfund- um okkar? Ég, sem er búinn að þrá þig i tiu ár, — ég, sem var svo hræddur um, að eitthvað hræði- legt hefði hent þig...og þú kallar þetta kjánalegt? Hún klappaði saman lófunum i barnslegri gleði. — Nú þekki ég þig aftur, — nú ertu eins og þegar ég elskaði þig! Þegar þú roðnar og þegar þú ert reiður. Svei mér þá, ef þú ert ekki bara glæsilegri en Kemble sjálfur! — En ég þoli ekki svona kjána- lega framkomu. Og hún stóð svo snögglega upp, að hann datt aftur á hæla sér. — 0, Abel, þú ættir að sjá hvernig sumir karlmenn geta hagað sér! Bændurnir hérna og hinir heimskulegu synir þeirra. Þeir hneigja sig, andvarpa og hengja hausinn, svo ég get æpt framan 1 þá! Ef þú gerir eitthvað I þá veru, þá gæti ég ekki afboriö það! Lil hló og hélt áfram. — Ég verð að segja þér það sama, eins og ég verö að segja þessum heimsku sveitakörlum hérna, sem sifellt eru að tjá mér ást slna, — þetta er ekki háttvlsi gagnvart konu I minni stöðu! — Þinni stöðu? spurði hann, skilningsvana. — Þú hefir alls ekki sagt mér neitt um stöðu þina hér. Hvaða stöðu gegnir þú hér á heimilinu? Hún hlassaði sér niður I stólinn, sem hann hafði setið I. — Hvaö getur þú sjálfur hugsað þér, þeg- ar þú litur hér I kringum þig? Þú hefir séð húsið? Það er rlkmann- legt, finnst þér það ekki? Gólf- ábreiðurnar, húsgögnin og. gluggatjöldin, þetta er allt fyrsta flokks, þótt það sé kannski ekki nýtfzkulegt. Ég er Hka vel klædd, finnst þér það ekki? Ég hefi llka fyrirmann- lega framkomu, ekki hið minnsta llk stúlkunni úr fátækrahverfinu, sem þú þekktir? Ég bý hér við allsnægtir, borða fylli mina dag- lega og er er kölluð frú...frú Lucas. 0, þetta er allt svo æðis- lega fyndið! Nú fannst Abel, aö ekki væri laust við sársaukafulla reiði I rödd hennar. — Segðu mér þá, hver staða þln er, sagði Abel þunglega. — Ertu frú Lucas, eða ertu það ekki? — Ó, Abð vertu ekki svona Framhald á bls. -42 46. TBL. VIKAN 17

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.