Vikan

Tölublað

Vikan - 15.11.1973, Blaðsíða 28

Vikan - 15.11.1973, Blaðsíða 28
 GETRAUNIN: Jólasveinastrákurinn okkar er aftur í vanda staddur eins og í síðasta blaði. Nú hefur hann brugðið sér á veiðar, en það gengur allt á afturfót- unum hjá honum. Hann hefur týnt þremur hlutum. Tveir þeirra til- heyra bátnum, en einn veiðarf ærunum. Þið ættuð að koma honum til hjálpar, svo að hann geti veitt sér í soðið. Getraunin er einmitt fólgin i því að finna þessa þrjá hluti og skrifa þá siðan á seðilinn hér í opnunni. ACTION MAN Meðal vinninga í Jólagetraun Vikunnar er nýtt leik- fang, sem nýtur mikilla vinsælda víða erlendis um þessar mundir. Þetta er brúða fyrir stráka og það er hægt að klæða hana í alls konar búninga. Vid köllum hana Ævintýramanninn, en á ensku heitir hún Action Man. — Ævintýramaðurinn er sannarlega karl í krapinu og sífellt að drýgja hetjudáðir og lenda í svaðilförum. Það er hægt að fá margs konar búninga til þessað klæða hann i, allt eftir þvi hvers konar ævin- týri við viljum láta hann lenda í. Hann getur verið heirnskautafari, fótboltastjarna, kappaksturshetja eða hermaður, svo að nokkur dæmi séu nefnd. Þetta er leikfang, sem allir strákar munu hafa ánægju af. 28 VIKAN 46. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.