Vikan - 15.11.1973, Page 28
GETRAUNIN:
Jólasveinastrákurinn
okkar er aftur í vanda
staddur eins og í síðasta
blaði. Nú hefur hann
brugðið sér á veiðar, en
það gengur allt á afturfót-
unum hjá honum. Hann
hefur týnt þremur
hlutum. Tveir þeirra til-
heyra bátnum, en einn
veiðarf ærunum. Þið
ættuð að koma honum til
hjálpar, svo að hann geti
veitt sér í soðið. Getraunin
er einmitt fólgin i því að
finna þessa þrjá hluti og
skrifa þá siðan á seðilinn
hér í opnunni.
ACTION MAN
Meðal vinninga í Jólagetraun Vikunnar er nýtt leik-
fang, sem nýtur mikilla vinsælda víða erlendis um
þessar mundir. Þetta er brúða fyrir stráka og það er
hægt að klæða hana í alls konar búninga. Vid köllum
hana Ævintýramanninn, en á ensku heitir hún Action
Man. — Ævintýramaðurinn er sannarlega karl í
krapinu og sífellt að drýgja hetjudáðir og lenda í
svaðilförum. Það er hægt að fá margs konar búninga
til þessað klæða hann i, allt eftir þvi hvers konar ævin-
týri við viljum láta hann lenda í. Hann getur verið
heirnskautafari, fótboltastjarna, kappaksturshetja eða
hermaður, svo að nokkur dæmi séu nefnd. Þetta er
leikfang, sem allir strákar munu hafa ánægju af.
28 VIKAN 46. TBL.