Vikan - 21.02.1974, Qupperneq 6
bavíananm
' t
Athyglisverð grein um samfélag
baviana, sem óneitanlega svipar á
margan hátt til þess samfélags, sem við
lifum og hrærumst i.
Níður við ána, þar sem
óvarkárt fólk snýr baki að krókó-
dilunum, sem felast i vatninu,
kveður við árvökul rödd,
öguð og greind og þó álitin standa
mannsröddinni að baki.
Hópur sterkra striðsmanna
þyrpist niður að vatninu. Þeir
eru meö vigtennur og fax eins og
ljón,- en kjálkarnir eru eins og
langir hundskjálkar og þeir
ganga á fjórum fótum, sem
likjast mannahöndum. Vökulum
augum viröa þeir fyrir sér vatnið
og árbakkann. Ef þeim lizt
ástandið hættulaust, gefa þeir frá
sér hvellt hljóð, sem alltaf þýðir:
— Allt er i lagi.
Þá kemur allilr flokkurinn —
milli 25 og 200 dýr — niður að
bakkanum til þess að drekka, láta
liða úr sér, hoppa til og frá, leika
sér eða tina lostæt ber á skugg-
sælum bakkanum, en valdir
verðir vaka yfir öryggi þeirra i
trjátoppnum. Ofugt við háttalag
manna, vernda þeir börnin og
mæður þeirra, sem hvorki hafa
vigtennur né fax, frábærlega vel.
Sjái verðirnir tvö lúmsk augu og
gin, eða grænleitan hrygg koma i
ljós i vatnsskorpunni, gefa þeir
frá sér hættumerkið. Krókó-
dilarnir fá aldrei tækifæri til þess
að ná i gómsætan baviana tii þess
að gæða sér á.
Skipulagður hernaður
Þegar bavianaflokkur fer um i
leit að æti á fjallsléttum eða
gresjum, hafa þeir bæði njósn á
undan og eftir aðalhópnum.
Njósnaflokkarnir eru «kipaðir
ungum og hraustum baviönum.
Eldri og reyndari karlbavianar,
sem skipa flokksráðið og stjórna
flokknum, halda sig i miöjum
aðalhópnum og hafa milli sin
ungviðið og mæður þess. Þeir
mynda nokkurs konar æðsta ráö,
sem leggur á ráöin og stjórnar
aðgerðum. En sé hætta yfirvof-
andi eru þeir næsta ólikir
mönnum, sem gegna svipuðum
stöðum, þvi að þá skipa þeir sér
ætið i fremstu viglinu. Mæðurnar
og ungviðið hafa þá að brjóst-
vörn, sem ver þær fyrir utan-
aðkomandi árásum.
Hýenur, sjakalar og meira aö
segja hlébarðar hliðra sér hjá að
gera árás á bavianahóp. Þessum
dýrum þykir gott aö gripa einn og
einn baviana, sem hefur orðið
viðskila við hópinn, en þeir láta
skipulagðan hóp baviana
óáreittan. Þessir apastriðsmenn
þurfa þvi ekki að óttast neitt
6 VIKAN 8. TBL.