Vikan - 21.02.1974, Blaðsíða 26
Draumur Saint-Exupery
að veruleika?
Söngvamynd gerð eftir sögunni „Litli prinsinn”.
Árið 1935, er franski flugmað-
urinn og rithöfundurinn Antoine
de Saiiit.Exupery var á flugi yfir
Sáhara-eyöimörkinni i eins hreýf-
ils vél, hrapaði flugvélin til jarö-
ar. Saint-Exupery komst lifs af,
en þaö liðu fimm dagar, þar til
honum var bjargað, þyrstum og
illa til reika. Þaö fer ekki sögum
af þvi, hvernig þessir fimm dagar
liðu — en ef að llkum lætur, hef.ur
einveran og óvissan haft einhver
varanleg áhrif á flugmanninn.
' Arið 1942, „sjö árum slðar, er
Saint-Exupery var I útlegð I New
York, leiður yfir hrakförum
Frákka I heimsstyrjöldinni og
vonsvikinn yfir áhugaleysi
Bandarikjamanna á vandamál-
um Frakklands, drap hann tlm-
ann, þar til hann komst áftur til
herdeildar sinnar I N-Afríku, með
þvi að skrifa ævintýri fyrir börn.
Hann kallaði ævintýriö „Litli
prinsinn”. Þessi.saga varð síð-.
asta verk höfundar, þvl flugvél
hans hvarf, er hann var I könnun-
arflugi yfir Frakklandi 31. júli
1944. Saint-Exupery var 44 ára.
Litli prinsinn er nú kominn á
fertugsaldur og hefur verið gefinn
út á 37 tungumálum, nú slöast
kinversku, Hér á landi kom sagan
út I smábókaflokki Menningar-
sjóðs árið 1961, var endurprentuð
árið 1968, en mun nú nær, ef ekki
alveg, uppseld. Saint-Exupery
skreytti sjálfur sögu sina meö
vatnslitamyndum, en þvl miður
er ekki nema lltíll hluti mynd-
anna I Islenzku útgáfunni, og þar
aðeins I svart-hvltu.
Lesandinn kynnist söguhetj-
unni, litla prinsinum, er hanr
stendur einn góðan veðurdag vit
hlið sögumanns, flugmanns, sem
sofnað hefur 'I sandinum I Sahara
hjá bilaöri flugvél sinni. „Viljið
gera svo vel...-. teikna fyrir. mig
kind” er þáð fyrsta, sem litli
prinsinn segir, og þetta óvænta
ávarp hrífur strax lesandann.
Litli prinsinn á slöan langar viö
ræður við flugmanninn, sem ætl-
ar að reyna aö gera við flugvél-
ina, áður en 7 daga vatnsbirgöir
hartsganga til þurrðar. Hann seg-
ir honum frá þvl hvernig hann
móðgaðist við rósina slna á smá-
stirninu B 612 og ákvað þá að
leggja land (eða loft) undir fót og
ferðast til annarra smástirna og
hnattarins Jarðar. Hann segir frá
hverja hann hittir á ferðum sln
um og hvað þeir eru að segja 0£
gera og niðurstaða hans er oftast
nær: „Fullorðið fólk er áreiðan-
lega mjög skrýtiö”. Sögumaður
gleymir ekki kynnum slnum af
litla prinsinum, en skráir þau á
blað 6 árum siðar.
1 eftirmála að islenzkri þýðingu
sinni segir Þórarinn Björnsson
um söguna af litla prinsinum:
„Hún á erindi við alla, unga sem
gamla, og ekki siður hina þrosk-
aðri. Hún sameinar einfaldleik og
dul, létt gaman og djúpa alvöru,
og hún er svo veruleg og óveruleg
I senn, að við vitum varla lengur
við lestur hennar, hvort veruleik-
inn er draumur eða draumurinn
veruleiki”.
Undanfarin 10 ár hafa
Paramount-kvikmyndafélagið og
kvikmyndaleikstjórinn Stanley
Donen verið að reyna aö fá leyfi
erfingja Saint-Exupery til þess
að gera draum hans aö veruleika
— á kvikmyndatjaldi — og þaö
hefur nú loks tekizt. Aðalvandinn
við kvikmyndatökuna var að
finna sjálfan prinsinn og það tókst
eftir að 700 drengir höfðu veriö
prófaðir. Fyrir valinu varð 6 ára
Lundúnadrengur, Steven Warner,
sem komiö hafði fram I jólakvik-
mynd I brezka sjónvarpinu. Þar
hafði hann sungið og kom það sér
vel, þvi kvikmyndafélagiö hefur
tekið þann kost að gera léttan
söngleik úr þessu ævintýri.
26 VIKAN 8. TBL.