Vikan - 21.02.1974, Blaðsíða 40
- Verötryggð
LÍFTRVGGING
er hagkvæm og ódýr
Til þess að heimilisfeður geti talizt vel tryggöir, er nauðsynlegt,
að þeir séu liftryggðir fyrir upphæð, sem nemur tveim til þrem
árslaunum þeirra. Meö þvi móti geta nánustu vandamenn hins
tryggða m.a. staöið við ýmsar fjárhagslegar skuldbindingar
sínar.
Nú er flestum kleift að liftryggja sig, þar sem Liftryggingafélagið
Andvaka hefur nýlega lækkaó iðgjöld á hinni hagkvæmu
"Verðtryggðu líftryggingu".
I ÍF'I’im SGIINRAFél.U ÍII)
ANDVAKA
Leitið upplýsinga hjá Aðalskrifstofu
eóa næsta umboósmanni.
Ármúla 3, simi 38500
Hrævareldur___________________
Framhald af bls. 11
Kæri Emory!
Þakka þér fyrir að vera hér i
gærkvöldi. Stuart hefur hótað að
drepa mig. Hann er afbrýðisamur
út i hverja mina hreyfingu og lit-
ur ekki af mér. Ég vil ekkert hafa
með hann að gera og þetta er
óþolandi. Ef eitthvað kemur
fyrir, Emory, þá er eins gott aö
láta lögregluna vita þetta.
Þin Margot.
— Hefur Stuart séð þetta bréf?
spurði ég.
— Ekki ennþá. Ég ætla að sýna
honum það núna.
Mér þótti leiðinlegt að þurfa að
sýna Stuart þetta rætna bréf.
Jafnvel þótt þetta væri ljósprent-
aö, þá bar það vott um innræti
Margot. Hvað sem hún hefur ætl-
að að gera með þessu bréfi, þá
var eitt vist, það átti að koma
Stuart i koll. Liklega til að hefna
sin á honum fyrir það, að hann
vildi ekki leggja lag sitt við
hana...
— Það er eitthvað skritið við
þetta, eitthvað dularfullt, sagði
ég.
— Hvað eigið þér við með þvi?
sagði herra Bainbridge og virti
mig þreytulega fyrir sér.
— Þetta er allt mjög dularfullt!
Ef Margot hefði verið hrædd við
Stuart, þá hefði hún kvartað um
það við Julian, ekki Emory.
— Mér skilzt að þeim hjónum
hafi ekki komið rétt vel saman.
Ef til vill...
— Það er alveg sama hvernig
þeim hefur komið saman, hann
hefði alltaf veitt henni vernd.
Þess vegna verðum við að komast
að þvi hversvegna hún skrifaði
Emory. Ég held að Shan McCabe
viti það.
— Það er margt sem við þurf-
um að ræða. Getum við ekki farið
á einhvern rólegan stað, áður en
þið farið til Greystones?
Áður en ég gat svarað, opnuð-
ust dyrnar og Stuart kom fram i
biðsalinn. Lögregluþjónninn, sem
var með honum, fylgdi honum tii
skrifstofunnar, þar sem gengið
var frá plöggum hans og svo kom
hann til okkar.
Hann var þreytulegur en mjög
vongóður á svipinn og ég var svo
fegin að sjá hann að ég greip um
handlegg hans og þrýsti hann.
— Við skulum fara eitthvað og
fá okkur kaffi, sagði ég. — Herra
Bainbridge þarf að tala við okkur
og hann er með svolitið til að sýna
þér.
Viö ókum að kaffistofu, sem var
þarna i nágrenninu og þegar við
höfðum komið okkur fyrir, var
Stuart sýnt bréfið.
Stuart las það tvisvar, horfði
svo til skiptis á okjcur, greinilega
alveg undrandi og hneykslaður.
— Ekkert af þessu er satt! Ég
hótaði henni aldrei neinu. Ég
daðraði aldrei við hana. Það er
satt, að hún reyndi til við mig, en
Julian var vinur minn og mér
hefði aldrei dottið i hug að snerta
hana i þeim tilgangi, jafnvel ekki,
þótt mig heföi langaö til þess. En
hún var alltaf að reyna að koma
mér til.
Mér fannst ég þekkja svo vel
hljómfallið i rödd hans, að ég var
viss um að hann sagði sannleik-
ann.
—En hvað sem öllu öðru liöur, þá
er þetta aðeins likindasönnun,
sagði ég. — Það er ekki hægt að
dæma nokkurn mann eftir sliku
bréfi. Það hefði hvaða kona sem
er getað skrifaö þetta bréf i reiði
sinni. Þetta er engin sönnun.
— Það getur verið satt, sagði
lögfræðingurinn i viðurkenn-
ingarróm, — og að sjálfsögðu
höldum við þvi fram. En Emory
hafði margt fleira til málanna að
leggja og það er lika til afrit af
allri málsmeðferð, öllum fram-
burði Emorys Ault.
— En nú er Emory dáinn, sagði
ég og Stuart hrópaði upp yfirsig:
— Emory dáinn...?
Vitaskuld gat hann ekki verið
búinn að frétta það.
— Hann féll fram af Devils
Drop i gærkvöldi og dó strax.
Ég sá vonarbjarma bregða
fyrir i augum Stuarts.
— Ég get ekki verið svo
hræsnisfullur að segja að mér
Krahba-
merkið
Hrúts
merkið
21. marz —
20. aprtl
Eitthvað i umhverfi
þinu hefur þvingandi
áhrif á þig og hindrar
framkvæmdir þinar.
Samningslipurð gæti
komið þér að góðu
gagni, aðallega á sviö-
um einkalifsins. Per-
sónuleiki þinn mun
færa þér marga nýja
kunningja I
skemmtanalifinu.
Nauts-
merkið
21. aprll —
21. mal
Kunningi þinn hefur
gert þér greiöa, sem
stendur i nánu sam*
bandi viö tómstunda-
iðkun þina. Eitthvað i
sambandi við þennan
greiða hefur þú ekki
staðið við, en þú skalt
kippa þvi i lag strax. 1
málefnum hjartans
skaltu ekki flana að
neinu.
Tvibura-
merkið
22. rnai —
21. júni
Þrátt fyrir nokkra erf-
iðleika miðar allt I
rétta átt hjá þér og
máttu vel við una. Þú
skalt hafa góðar gætur
á verkefni, sém þér
berst, en gæti reynzt
nokkuð varasamt.
Þótt þú þurfir dálitiö
fyrir þvi að hafa.
22. júni —
23. júll
Þér berst hjálp frá
vinveittu fólki, sem þú
skalt þiggja. Þú færð
mótstöðu úr átt, sem
þú áttir sizt von á.
Vertu við öllu búinn.
Vertu vingjarnlegur
og ákveðinn. Þá berðu
mest úr býtum. Gættu
þin sérstaklega á
manni, sem reynir að
breyta skoðunum þin-
um.
Ljóns
inerkið
24. júlí
24. ágúst
Þú umgengst vini þina
og gamla kunningja
mikið I vikunni. Lik-
legt er, að þú eigir
skemmtilega ferö fyr-
ir höndum. Umgengni
viö menn Vatnsbera-
merkisins er happa-
drýgst. Hjartans mál-
in eru fremur i lausu
lofti.
Meyjar
merkið
24. ágúst —
23. sept.
Atburðarásin er mik-
ið komin undir afstöðu
þinni til málanna.
Hafðu i huga, að þú
kemst lengra með þol-
inmæði og lipurð en
stærilæti. Hrektu allar
sllkar tilhneigingar i
burtu. Þú færö tæki-
færi til aö styrkja
samband þitt við
menn,
40 VIKAN 8.TBL.