Vikan - 21.02.1974, Blaðsíða 27
Kvikmyndatakan fór 'fram i
eins eölilegu umhverfi og á
varð kosið — i eyðimörk Suð
ur-Túnis, skammt frá Tozeur-vin-
inni. Þangað voru m.a. fluttar
tjaldbúðir, tvær kyrkislöngur frá
London (ein til að „leika” i mynd-
inni og önnur til vara), og svart-
lakkaður trjástofn með nökkrum
greinum, sem i kvikmyndinni
skyldi vera aðsetur kyrkislöng-
unnar, og var hann steyptur niður
I sandinn með 150 kilóum af
steypu. Flugvélin, sem notuð var,
var fengin frá Bandarikjunum —
eins hreyfils flugvél af Simoun
gerð, sem flutt var frá Frakk-
landi skömmu eftir 1930 til afnota
fyrir sendiherra Frakka i Was-
hington. Er hún af sömu gerð og
vélin, sem Saint-Exupery hrapaði
i yfir eyðimörkinni árið 1935.
Aðdáendum litla prinsins finnst
það liklega skrýtin tilhugsun að
eiga ef til vill eftir að sjá þetta
eftirlætisverk á breiðtjaldi — en
hvort kvikmyndin á eftir að ná
þeim vinsældum, sem sagan hef-
ur náð mun timinn leiða i ljós. Til
gamans birtast hér tvær myndir
úr kvikmyndinni, ásamt hliðstæð-
um teikningum Saint-Exupery
sjálfs.
,,Ef einhver elskar blóm, sem aðeins er eitt til á milljónum og aftur
milljónum stjarna, þá er það nóg, til þess að hann'sé hamingjusamur,
þegar hann horftr á þær.”
„Niður á hvaða hnött hef ég fallið?”, spurði litli prinsinn.
„Niður á jörðina, i Afríku”, svaraði höggonnurinn.
„Aha. Er þá ertginn á jörðinni?”
„llér er eyðimörk. Það eru engir i eyðimörkum. Jörðin er stór”, sagði
höggormurinn.