Vikan - 13.03.1975, Blaðsíða 4
Þúsundir lamadýra hafast við á hásléttum Bólivíu.
!
Þvert yfir Suöur- Am
Miöasölumaðurinn var indfáni.
Áhyggjudrættir komu i vingjarn-
legt brosleitt andlit hans. Við
höfðum spurt hann spurningar,
sem hann gæti ekki gleymt á
næstunni. Við höfðum beðið hann
um Amerfkufarseðil, Pase
Americano, farseðil, sem veitir
rétt til þess að ferðast eins mikið
með járnbrautarlest um nær alla
Suður-Evrópu i heilan mánuð og
handhafa hans lystir. Okkur hafði
veriðtjáð, að slikur farseðill kost-
aði 60dollara. Þótt stöðvarþjónn
þessi væri i þjónustu chileönsku
rikisjárnbrautanna og það i miðri
höfuðborginni, hafði hann aldrei
heyrt minnst á Amerikufarseðil
fyrr. Pase Americano var honum
algerlega óþekkt fyrirbæri.
Hann hugsaði sig um lengi, rót-
aði i skúffunni hjá sér nokkra
stund og eftir langa mæðu dró
hann tvo 60 dollara Amerlkuseðla
fram i dagsljósið. ,,Og á hvaða
leið eruð þið?” spurði hann og
ekki að undra.
Við höfðum svar á reiðum
höndum: Við ætluðum að fara frá
Kyrrahafsströnd Norður-Chile
þvert yfir meginlandið til
Atlantshafsstrandar Brasiliu.
Þessa leið fer vöruflutningalest
með kopar, og framámenn rikj-
anna, sem hún fer um, sáu sér
leik á borði og fundu upp snilldar-
bragðið Pase Americano handa
ævintýraþyrstum ferðamönnum.
Indiáninn i miðasölunni varð
aftur áhyggjufullur á svipinn:
,,Þið verðið að fara norður yfir
Andesfjöllin. Þaðan fara tvær
lestir á viku, á mánudögum og
föstudögum. Það getur lika verið,
að þær leggi af stað á þriöjudög-
um og fimmtudögum. Ég veit
ekki, hvort heldur á morgnana
4 VIKAN ll.TBL.