Vikan - 17.07.1975, Blaðsíða 3
Reynir: Eitt hið mikilvægasta i allri skipulagningu garða er að skipta þeim niður i einingar
Úr Arbæjarhverfi. Garöarnir eru
leiksvæði, þar sem skiptast á litl-
ar grasbrekkur og grasflatir,
sandkassar og malbikaðir vellir
biinir fjölbreyttum leiktækjum.
Garðarnir eru jafnframt aðal-
gönguleið i verslanir og almenn-
ingsvagna, svo um þá er komiö
fyrirneti gang- og hjólreiðastfga.
Trjágróður er staðsettur, þar sem
minnst hætta er á, að hann vcrði
fyrir hnjaski.
gang, svo Reynir hafði ekki ýkja
mikinn tima aflögu handa okkur,
en fórnaði okkur þó stundarkorni
fyrir þrábeiðni okkar.
— Garðarkitekt er alls ekki
nógu gott starfsheiti, sagði
Reynir, þegar við spurðum hann,
hvað garðarkitektar fengjust
aðallega við, — þvi að starfssviöiö
er miklu viðara en heitiö gefur til
kynna. Við fáumst ekki siður við
malbik en gróður. A flestum er-
lendum málum er þetta kallað
landslagsarkitekt, og ég býst við,
að svo verði einnig hérlendis,
þegar fram liða stundir. Ekki svo
að skiija, að við ætlum að fara að
breyta landslaginu sem sliku,
heldur er það i okkar verkahring
að gera tillögur og teikningar að
lokafrágangi kringum byggingar
og önnur mannvirki, svo um-
hverfið þar verði snyrtilegt og
þjóni sem best sinum tilgangi. A
þennan hátt búum við til eins
konar landslag.
— barf þá landslags- og garö-
arkitektinn ekki að vera með i
ráðum, áður en farið er að reisa
mannvirkin?
— Slikt er auðvitað til bóta, og
ég hef i nokkrum tilfellum fengið
tækifæri til þess að vera með i
ráöum við skipulagningu heilla
hverfa, m.a. i Arbæjarhverfi og
Breiðholti I. Fjölbýlishúsin i báð-
um þessum hverfum eru skipu-
lögð með sömu meginsjónarmið i
huga; — að hafa leiksvæði handa
yngstu borgurunum sem næst út-
göngudyrum, þar sem þeir geta
verið tiltölulega öruggir og i friði
fyrir bilaumferð, — að hafa leið-
ina i verslanir sem stysta og
hættuminnsta hvað umferðina
snertir, — og að veita skjól fyrir
verstu vindáttunum. Bæði hverfin
bera það greinilega með sér, að
þessi sjónarmið voru látin ráða
við skipulagningu þeirra. t þeim
báðum er U-lagið á fjölbýlishús-
unum ráðandi, en með þvi fæst i
senn skjól og afdrep til leikja. í
Arbænum eru tvennar útidyr á
húsunum — aðrar út að bilastæð-
um og götu, en hinar út að lóðinni,
sem jafnframt er leikvöllur og
gönguleið i verslanir og almenn-
ingsvagna. t Breiöholtinu eru
leiksvæði yngstu barnanna næst
útidyrum. Úr fjölbýlishúsunum
er svo greið gönguleið i skóla,
verslanir og stærri leik- og
iþróttasvæði, og i almennings-
vagna gegnum undirganga á hús-
unum, án þess nokkurs staðar
þurfi að fara yfir götu.
— Færgróður nokkurn tima að
vera i friði i jafn fjölmennum fjöl-
býlishúsahverfum og Arbær og
Breiðholt eru?
— Auðvitaö verður gróðuriún
fyrir meiri ágangi eftir þvi sem
fleiri ganga um hann, en það
þýðir alls ekki’ að það sé vonlaust
að koma upp skemmtilegum og
vingjarnlegum göröum með tölu-
verðum gróðri kringum fjölbýlis-
hús. Gróðurinn veröur bara að
staðsetja þannig, að hann sé sem
minnstur farartálmi, svo ekki sé
allt of freistandÍÆð stytta sér leið
yfir hann. Þá er einnig ákaflega
mikilvægt að'hafa nægilegt leik-
rými ásamt gróðrinum, þvi að
börn geta i ákafa leiksins gleymt
að gefa sér tima til að hlifa gróör-
inum. Náttúrlega hlýtur alltaf aö
brotna ein og ein trjágrein og
jafnvel heilar plöntur, en það er
þá frekar af slysni en að um
29. TBL. VIKAN 3