Vikan - 18.03.1976, Side 5
/ h/aðvarpanum Listasafn A/þýðusambandsins
útkoman getur orðið svipuð og að málað væri
við dagsbirtu.
Frú Elín fylgdi mér niður á vinnustofu
Jóhanns í kjallaranum, en Jóhann beið uppi á
meðan. Synd væri að segja, að vinnustofan
væri stór, en vinaleg er hún.Á einum vegg er
gluggi, sem gefur góða birtu. Andspænis
honum eru litatúburnar og penslarnir, sem
Jóhann notar. Þeir biðu nú meistarans niðri
í krukku, límdir saman með málningu. Úti í
horni voru tveir aldagamlir íslenskir smjör-
strokkar, og við vegg stór bókaskápur fullur
af allskonar bókum, líkt og í bókaskápunum
uppi, þar sem við settumst við borð hlaðið
kaffi og kökum.
Þau hjónin gengu í hjónaband 1945, en þá
hafði Jóhann áður verið giftur þýskri konu í
4 ár, eða þar til hún andaðist hér heima.
Barn var ekkert frá fyrra hjónabandi, en þau
Jóhann og Elín eiga þrjár uppkomnar dætur,
Katrínu, Ólöfu og Brynhildi. Þær Ólöf og Bryn-
hildur eru að læra lyfjafræði. Ólöf að Ijúka námi
Kaupmannahöfn og Brynhildur í Háskólanum
í Reykjavík. Katrín er gift og er skólastjóri
Myndlistarskólans í Reykjavík, en sonur henn-
ar er eina barnabarn Jóhanns og Elínar,
Hugi Baldvin 6 ára. Hann var einmitt í
heimsókn hjá afa og ömmu þegar ég kom.
Hver veit nema þar sé kominn arftaki meist-
arans í listinni.
KARLSSON.
llál
SSiHiaiillsif
hmlZX 8!
S z:a'*nils;
Fullkomnasta gardínu-
uppsetning á markaönum
ðsSíSiiita!
jölbreytt úrval af
gluggatjöldum
Fullkomin
þjónusta
Mælum og
setjum upp
ZETA
símar 254hC
25441
Ármúla 42
12. TBL. VIKAN 5