Vikan

Eksemplar

Vikan - 18.03.1976, Side 15

Vikan - 18.03.1976, Side 15
i listasafni íslands stendur yfir, um þessar mundir sýning á ís- lenskri poplist, og eiga þar 15 lista- menn verk, sem eru mjög fjöl- breytileg og ólík, þótt öll sé hægt að flokka undir hina svokölluðu poplistastefnu, sem sá dagsins Ijós í Bretlandi í byrjun sjötta áratugsins. Þeir listamenn, er kenna sig við stefnu þessa, sækja oft myndefni sín í auglýsingaiðnaðinn og taka þá velþekktar framleiðsluvörur, sem augu okkar matast í sífellu á í neysluþjóðfélagi nútímans, stækka þær upp og einangra eða setja þær inn í nýtt samhengi og gefa þeim þannig nýtt gildi. Ekki mun vera ætlunin með sýn- ingu þessari að sýna þverskurð íslenskrar poplistar, heldur er leit- ast við að kynna nokkra af þeim listamönnum, sem síðasta áratug- inn hafa unnið í anda stefnu þessarar. Ástæða er til að nefna þar Guðmund Guðmundsson (Erro) sem er sjaldséður gestur í íslensk- um sýningarsölum. Hann er vafa- lítið einn þeirra núlifandi íslenskra listamanna, sem mestum frama hafa náð á meginlandinu, en þar hefur hann búið og starfað um árabil. Mikla eftirtekt vöktu fyrir nokkr- um árum geysistórar klippimyndir hans, en þar notaði hann matar- auglýsingar úr blöðum og tímarit- um og límdi þær upp á stór spjöld og kallaði þær ,,matar- landslag". Það fylgir sögunni, að hann hafi lagt sér til munns allar þær kræsingar, sem landslagið mynduðu, og má kannski líta á myndir þessar sem ádeilu á als- nægtarþjóðfélagið, þar sem marg- ir eru á góðri leið með að grafa sér gröf með gaffli og skeið. _ H.S. o Guðmundur Guðmundsson (Erro) sýnir þarna 8 myndir í al/t, en af þeim meirihlutinn grafíkmynd- ir. Miðmyndin sýnir g/japússað og glerfínt e/dhús, en í staðinn fyrir hina hefðbundnu mynd af velsnyrtri húsmóöur, sem auglýsir hvíta stormsveipinn, er það skæruhermaðurinn, sem miðar að áhorfanuc. ■m vélbyssuk/afti. Á myndinni iengsi '' hægri má sjá velþekkt andlit nóbe/sská/dsins góðkunna í ævintýraríku umhverfi. 4 Sigurjón Jóhannsson yfirleik- myndateiknari Þjóð/eikhússins er Hka fjölhæfur myndlistamaður og iíkast til sá, er einna fyrstur íslendinga gerði popplistaverk. Hér sjáum við mynd hans „Glorius" frá árinu 1965. Hún er þriskipt, og er það gljá- fægður hjólkoppur, sem myndar þungamiöju myndarinnar. POPLISTIN I LISTASAFNINU 12. TBL. VIKAN 15

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.