Vikan

Tölublað

Vikan - 18.03.1976, Blaðsíða 17

Vikan - 18.03.1976, Blaðsíða 17
vt alelrei nein f graeddi vinkonu sinni dós að kreminu. Undrið gerðist. Vinkonan skýrði svo frá, að húð hennar væri orðin • miklu fallegri. Fleiri stúlkur báðu um kremið. Þar með var nútímasnyrtivöru- iðnaður kominn á laggirnar. Iðn- aðurinn, sem nú veltir meiri fjármunum en auðug ríki verja til aðstoðar þróunarríkjunum. Helena Rubinstein neitaði alla tíð að láta uppi, hvað í raun og veru var í dósunum. Sjálf notaði hún næstum engar snyrtivörur. Andlitslyftingu og annan þess „Hún er sjálfstæð, ákveðin, at- orkumikil, gráöug og vUjasterk." Þannig var Helenu Rubinstein /ýst. konar munað gaf hún sér aldrei tíma til að veita sér. Þó átti hún 30 glæsilegustu snyrtistofur heims. — Ég vinn, sagði hún, — og hef ekki tíma til þess háttar. Helena Rubinstein gaf fyrstu dósirnar af kreminu sínu. En þegar hún sá, hvaða áhrif kremiö hafði, skrifaði hún móður sinni þegar í stað og bað um fleiri. Þótt hún hefði þá ekki sérlega rúm fjárráð, leigði hún sér búðarholu í Mel- bourne — eitt lítið herbergi, þar sem hún seldi kremið sitt á daginn og svaf á næturnar. MARKMIÐ HENNAR VAR: AÐ VERÐA ENNÞÁ RÍKARI Verslunin gekk sérlega vel. Eftir eitt og hálft ár hafði hún safnað saman sem svarar fimmtán millj. króna. Hún var rúmlega tvítug, og á þessum tíma voru fimmtán milljónir nægileg upphæð til þess að draga sig í hlé fyrir fullt og allt. En hin skapstóra og metnaðarfulla Helena var hreint ekki á þeim buxunum að setjast í helgan stein. Hún fór frá Ástralíu og stundaði nám í Vín, Dresden, Berlín, Mún- chen og París. Námsefni: Húð- vernd. Markmið með námi: Að verða ennþá ríkari. Árið 1908 taldi hún sig tilbúna til að leggja London undir sig. Vinir hennar og ráðgjafar vöruðu hana við. Londonarbúar voru mjög íhaldssamir. Fínar dömur þar í borg notuðu örlítinn andlitsfarða, en varalitur var álitinn ,,stríðs- málning". Snyrtivörumarkaðurinn í London var vægast sagt talinn erfiður. — Kjaftæði, sagði Helena Rubinstein mörgum árum seinna. — Konur vilja vera fallegar. Ég vissi, að þær kynnu að meta mig, því að tilgangur minn með lífinu hefur ætíð verið að hjálpa öðrum konum til að vera fagrar... Ég hugsaði ekki um peningana(l). Milljónir kvenna ættu að vera mér þakklátar. Ég var fyrst með allt. Andlitskrem, andlitsvatn og and- litsfarða í öllum litum. Ég hef alltaf haft áhuga á því einu að gera konur fagrar. HAFÐI EIGINLEGA ALDREI TÍMA AFLÖGU HANDA KARLMÖNNUM. Hún hirti ekki um viðvaranir vina sinna, leigði hús Salisburys lávarðar í London og lét innrétta þar stórkostlega snyrtistofu. Þar störfuðu húðsérfræðingar, hár- greiðslumeistarar, læknar, leik- fimikennarar og fleiri. Prinsessur, greifynjur, frægar leikkonur og ,,fólk, sem bara var ríkt" fylltu snyrtistofuna frá og með opnunar- degi. Viðskiptavinirnir urðu að vera ríkir. Fullkominn fegrunarkúr kostaði sem svarar 300.000 krónum. Helena Rubinstein var þá þegar orðin svo efnuð, að hún klæddist ekki öðru en dýrum, frönskum fatnaði. Fyrsta árið, sem hún dvaldist í London, var hún út- nefnd best klædda kona borgar- innar. Sama árið giftist hún bandaríska tónskáldinu og rithöf- undinum Edward Titus. Þau eign- uðust tvo syni. Hjónabandið entist til ársins 1937, enda þótt frúin lýsti því hvað eftir annað yfir, að hún kærði sig hreint ekkert um náin samskipti við karlmenn. — Ég hafði eiginlega aldrei tíma til að sinna þeim, sagði hún. — Þeir töfðu mig svo frá rekstrinum. Hún talaði ensku með miklum pólskum hreimi, hið sama var að segja um frönsku og einnig þýsku. Ef marka mátti illar tungur hafði hún næstum týnt niður pólskunni. Hún var eins og svo margir gyð- ingar — heimilislaus hvar sem var í heiminum. Eftir skilnaðinn við Titus giftist hún georgíska prinsinum Artichill Gourielli-Tchkonia, góðum og meinlausum manni, sem dáði konu sína takmarkalaust. I hjónabandi hennar og Titusar hafði hún kynnst mörgum lista- mönnum og öðrum ,,vitsmuna- verum". — Það er ekki erfitt að kynnast slíku fólki, sagði Helena Rubin- stein, — fólk, sem er peninga- laust, liggur alltaf flatt fyrir þeim ríku. Gourielli kom henni í kynni við aðalsfólk hvarvetna í heimin- um, og hún gerði strax þá kröfu, að hún væri titluð og ávörpuð prinsessa — ekki vegna þess, að hún snobbaði fyrir titlum, heldur gerði hún sér grein fyrir því, að titillinn var góð söluvara. 12. TBL. VIKAN 17

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.