Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 18.03.1976, Qupperneq 25

Vikan - 18.03.1976, Qupperneq 25
n b {■ taka undir með manninum, sem var spurður, hvort hann æt/aði ekki að gefa konunni sinni blóm;___það var vist útaf einhverju góðu.og gi/du tiiefni. Hann sagði: ,,Nei takk, meðan ég get eitthvað í bólinu, er minn blómatími ekki runninn upp." 22. Fugj? x Já, hvar eru fuglar þeir á sumri sungu? Ætli ég haldi ekki mest upp á lóuna og hrossagauk- inn; það stendur I sambandi viö vorið. En einhvernveginn finnst mér þó hrafninn merk- astur fugla hér á skerinu. Mér sýnist hann gáfaðri en aðrir fuglar. Annars á ég bágt með að sjá tilganginn með þvi aö spyrja um annað eins. 23. Hver er eftirlætis rithöfundur þinn? Ætíi það sé ekki Björn Sveinsson á Egi/s- stöðum í L ýtingsstaðahreppi. Slðan koma þeir Laxness og Hemingway. 24. En Ijóðskáld? Þeir segja i prentsmiðjunni á Mogganum, að ég haldi mikið upp á Kidda vandræðaskáld. Þar fyrir utan þykja mér góðir þeir álftnes- ingar Gr/mur Thomsen og Hannes Pétursson. Og Jón Helgason i Kaupmannahöfn, þegar hann ermátulega fúll. 25. Hver er eftirlætis hetja yðar í samtímanum? Halldór £ Sigurðsson. 26. Hver er eftirlætis hetja þín úr mannkyns- sögunni? Það er maðurinn, sem fann upp hjólið. 27. Hvaða mannsnöfnum hefurðu mest dálæti á? Guðmundur og Jón bera af öðrum nöfnum. Þá menn öfunda ég mest, sem heita annað- hvort Guðmundur Jónsson, eða Jón Guð- mundsson, en frábærast er Jón Jónsson. Ef við lítum í simaskrána, sjáum við, að marg- ir h/jóta að vera sammála. Einu sinni voru s/egnar tvær flugur í einu höggi, með þvi að maður, sem hét Guðmundur, var kal/aður Jón. 28. Hvað þykir þér alverst að gera? Það er tvennt; ég veit ekki hvort er leiðin- /egra: Að segja fótki, sem kemur með sfn dýr- mætu Ijóð til birtingar í Lesbókinni, að þau séu þvímiður óbrúk/eg, eða i öðru lagi að skipta um dekk á bf/num, þegar springur. 29. Hvaða persónum úr mannkynssögunni hef- urðu mesta andstyggð á? Einhversstaðar segir i bók, að þegar stórt sé spurt, verði oft lítið um svör. Mannkyns- sagan er alveg sneisafull af fólki sem alltaf var að láta illt af sér leiða, og þar af leiðandi væri auðvelt að finna þó nokkra, sem hægt væri að hafa andstyggð á. Ég nenni ekki að telja upp a/la þá kvislinga hér. 30. Hvaða hernaðarafrek dáirðu mest? Ég hef megnustu fyrirlitningu á öllu hernaðar- brölti og dái engin hernaðarafrek. Ætli afrek Hjálpræðishersins á Lækjartorgi séu ekki merkust? 31. Hvaða hæfileika kysirðu helst að vera gæddur? Hæfi/eikanum til að njóta lifsins í stað þess að fljóta hálfsofandi i gegnum það og taka ekki eftir þvi, sem fyrir augun ber. Walter Hagen hafði þetta mottó,__og ég vildi gjarnan taka undir það og gera að mínu: ,,Never worry, never hurry, never forget to sme/l the roses by the way," sem mætti útleggja: Slepptu áhyggjunum, flýttu þér hægt og láttu ekki hjá líða að njóta ilmsins frá rósunum við veginn." Auk þess arna er mikils vert að vera gæddur einhverjum skapandi hæfileika. 32. Hvers konar dauðdaga myndir þú helst kjósa þér? Náttúran hefur gert ráð fyrir því að viö deyjum úr e/li, svo það er sennilega náttúrlegasti og þar afleiðandi besti dauðdaginn. 33. Hvernig eru skapsmunir þínir um þessar mundir? Eftir að hafa svarað svo mörgum heimskuleg- um spurningum, að þær gætu veriö klipptar út úr amerísku kerlingablaði, er hugarástandið orðið ískyggi/egt. 34. Hefur þú einkunnarorð, og sé svo, þá hvert/ hver? Þessu hef ég þegar svarað og vísast til spurningar nr. 31. 12. TBL. VIKAN 25

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.