Vikan

Útgáva

Vikan - 18.03.1976, Síða 29

Vikan - 18.03.1976, Síða 29
Surcouf vagn handa þeim. Er Mari- anne var sest inn í vagninn sá hún sér til mikillar undrunar, að ferða- taska hennar var þar komin. Hún leit svo á, að Fouché hefði gefið gistihússeigandanum skipun um að bcra hana þangað og spurði ekki frekar. Vagninn þokaðist hægt áfram, enda var umferðin á Rue Montor- gueil mjög mikil. Garðyrkjubænd- urnir voru á leið frá markaðnum við Les Halles og vagnar þeirra voru hlaðnir tómum körfum. Þeir voru á leið heim til stn til Saint Denis eða Argenteil. Umferðinni fylgdi mikill skarkali og bændurn- ir kölluðust á. Þeir voru að stinga upp á því að fá sér einn drykk áður en þeir legðu af stað. Fyrir framan Rocher de Cancale voru aðeins tveir eða þrir vagnar. Mesti annatími þessa veitingahúss var á kvöldin. Marianne horfði út um gluggann og mitt í öllum þessum ys og þys, sá hún bregða fyrir andliti sem hvarf síðan aftur í mannhafið. Hún reyndi að láta fara eins lítið fyrir sér og unnt var. Hvers vegna var Jean Le Bru að sniglast þarna? Hvaða erindi átti hann á þessar slóðir? Var hann að hugsa um að reyna að komast aftur í náðina hjá Surcouf eða sat hann um hana? Heiftin, sem skein út úr augum hans sagði henni allt, sem hún þurfti að vita. Jean Le Bru var svarinn fjandmaður hennar. Hún leit undan og reyndi að hrista af sér þá óþægilegu tilfinningu, sem hafði gagntekið hana. Surcouf horfði stöðugt á hana og virtist ekki gefa neinu öðru eaum. Aðalstöðvar lögreglunnar voru við Quai Malaquais i snotru húsi frá sautjándu öld. Löglegir eigend- ur þess var Juignéfjölskyldan, en eignir hennar höfðu verið gerðar upptækar í byltingunni. Frá því höfðu ýmsir verið þarna til húsa, fyrst hermálaráðuneytið, því næst menntamálaráðuneytið og ekkert virtist hafa verið gert til þess að viðhalda því. 1796 flutti borgari Joseph Fouché, seinna monsieur Fouché og nú hans náð hertog- inn af Otranto, þarna inn. Þetta var í senn heimili hans og lögreglu- málaráðuneytið. Lögreglustjórinn var ekki mikið fyrir íburð, að minnsta kosti ckki hvað varðaði að- setursstað hans í París. Sýndar- mennska var ekki lil í hans fari, en á hinn bóginn hafði hann eytt töluvcrðu fé I að gera svcitasetur sitt að Fcrriéres scm vistlegast. Þessi virðulega bygging, Hotel de Juigné var því I nokkurri niðurníðslu. Bonnc-Jeanne og hin einfalda og ósveigjanlega madame Fouché réðu húsum I þeirri álmu. sem var heimili lögreglustjórans. Aðalmót-' tökusalurinn var enn með nokkrum i Já‘ lík-í og felirnir semSrfa níu óg-svo er ójíuíec^' v e.l t. a|óþ.fíía-þ.a 4 Æ-6E gólfteppin oru rEalleg og litrík' - ■ E.GE gólfteþpin eni allt að 4 mrá-bTeidcí Ejsta oq reyndasta ma'l.ningavortivet'Tlun landsms Í5ð Gi ensasveqi 1 \'A simí 83500 .Bjánkastræti 7 simt.<M4$6T *- V’, 12. TBL. VIKAN 29

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.