Vikan

Útgáva

Vikan - 18.03.1976, Síða 31

Vikan - 18.03.1976, Síða 31
verðum að fara inn hinum megin.” Þctta varð til þess að Marianne gat betur virt fyrir sér þennan aðsetursstað lögreglustjórans og hann vakti enga sérstaka aðdáun hennar. Það var eitthvað skugga- legt við þetta hús og hún var því fegnust, er hún var komin í biðstofu lögreglustjórans. Þar tók á móti þeim dyravörður I þjóns- fötum. Hann virtist dramblátur og leit á Marianne tilfinningasljóu augnaráði. „Hans náð á von á mamselle Mallerousse,” tilkynnti hann, ,,en engum öðrum.” ,,Og hvernig ber að skilja það?” sagði korsíkumaðurinn gramur. ,,Ég hef fengið fyrirskipun um að hleypa þessari ungu konu inn en ekki öðrum.” ,,Við skulum nú sjá til.” Surcouf tók þéttingsfast um arm Mariannes og hratt upp hinni tvöföldu hurð, er lá inn I skrifstofu Fouchés. Herbergið var lítið og íburðar- leysið í hróplegri mótsögn við völd lögreglustjórans. Einu húsgögnin voru gríðarstórt borð þakið skjölum þríreða fjórir stólar með beinu baki og skápur. Fouché sat og var að drekka einhverja blöndu, sem þjónn hafði rétt í þessu fært honum. Skammt frá honum var stytta með lárviðarsveig og Mari- anne gat sér þess til. að hún væri af einhverjum rómverskum keisara. Hann hrökk við er hann kom auga á Surcouf. ,,Það átti ekki að hlcypa mér inn,” sagði korsíkumaðurinn og leiddi Marianne að einum hinna óálitlegu stóla. ,,Get ég fengið að vita hvers vegna?” Fouché hóstaði og það helltist úr bollanum, sem hann hélt á. Það leið góð stund áður en hann fékk málið og er þjónninn tók að þurrka upp bleytuna lét hann bollann írá sér. ,,Kæri barón, hvenær ætlið þér að láta af þeim léiða vana yðar að ráðast inn á fólk cins og flóð- alda?” ,,Þegar fólki hefur lærst að um- gangast mig af kurteisi. Hvers vegna vilduð þér ekki hlcypa mér inn?” ,,Ég álti einungis von á made- moisellc Mallerousse og fyrirskip- anir mínar voru I samræmi við það. Ég hafði ekki luigmynd um, að þér mynduð fylgja henni hingað. Á ég að skilja það svo, að þér séuð orðinn barnfóstra?” ,,Nei, alls ekki, en ég er ekki vanur að hætta við hálfnað verk. Ég vil vita hvað þér ætlist fyrir með hana og fer ekki fyrr en ég hef gengið úrskugga um það.” Þar með hafði Surcouf lokið sér af og hann settist niður á einn af hinum hörðu stólum, krosslagði hendurnar og það var Ijóst að honum var fullkomin alvara. Mari- anne var skemmt. Maðurinn var ómótstæðilegur og vissulcga mikill stuðningur að honum. Slíkum manni var hægt að fylgja að endi- mörkum jarðkringlunnar og vera fullkomlega öruggur. Fouché stund hins vegar þungan. ,,Fólk gæti haldið að ég væri einhvers konar tröll eða mannæta. Hvað haldið þér að ég ætli að gera við hana? Senda hana aftur til St. Lazare? Loka hana inni I klaustri eða senda hana sem skækju með hernum? Treystið þér mér ckki?” Surcouf ansaði honum ekki, en svipurinn bar þess vott að traustið væri nú ekki of mikið. Fouché hleypti brúnum, fékk sér I nefið, en sagði síðan stimamjúkur. ,,Hafið þér nokkuð á móti her- togaynjunni af Otranto? Ég ætla að minna yður á, að konan min á sjálf fjögur börn og hún er full- komlega fær um að annast þessa ungu konu. Og til þess að gera langa sögu stutta, þá ætla ég að koma þvl þannig fyrir, enda hefur þessi kona meðmæli frá einum elsta og besta vini mínum. Eruð þér ánægður?” Surcouf svaraði engu, en Mari- anne reyndi að bæla niður van- þóknun slna. Henni geðjaðist cng- an veginn að þvl að þurfa að búa I þessu húsi. Þetta lögregluand- rúmsloft var einum of mikið fyrir hana og auk þess skildi hún ekki hvers vegna Fouché sýndi henni allan þennan áhuga, þótt svo að hún hefði þessi góðu mcðmæli frá Svartbak. Kannski var henni sýnd mikil virðing með þessu og án efa hefði hún átt að vera þakklát, en hún var ekki komin alla leið til Parlsar til þcss eins að dúsa þarna.” ,,Mér datt I hug,” sagði hún hæversk, ,,að ég gæti búið hjá frænku minni d’Asselnat." ,,Fyrir svo sem viku slðan hefði það verið mögulegt. En því miður Hvað er í JROPICANA ? Engum sykri er bætt í i® JRDPICANA Engum rotvarnar- efnum er bætt í JRDPICANA Engum bragðefn- um er bætt í JRDPICANA Engum litarefnum er bætt í JROPICANA JRDPICANA er hreinn appelsínusafi og í hverju i® glasi (200 grömm) Wfyp J af JRDPICANJT - 04lif er: A-vltamln 400 ae Bi-vítamln (Thiamln) 0,18 mg B2-vltamln (Riboflavln) 0,02 — B-vltamlnið Niacin 0,7 — C-vltamln Járn Natrlum Kallum Calclum Fosfór 90 — 0,2 — 2 — 373 — 18 — 32 — Eggjahv.efni (protein) 1,4 g Kolvetni Orka 22 — 90 he Fékkst þú þér JRDPICANA í morgun? 12. TBL. VIKAN 31

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.