Vikan - 18.03.1976, Blaðsíða 34
NY HLJOMSVEIT:
GALDRAKARLAR
GALDRAKARLAR ERU: Hlööver
Smári Haraldsson, 26 ára, áður
m.a. í Íslandíu, Pelican og Blá-
berjum, leikur á Hammond orgel,
Fender píanó, Moog Syntheziser
ogflautu. Vilhjálmur Guðjónsson,
22 ára, áður í Gaddavír, Moldroki
og Bláberjum, leikur á gítar, tenór
saxófón og harmonikku. Pétur
Hjá/marsson, 26 ára, áður í Ós-
mönnum, Dátum II, Lísu og
Bláberjum, leikur á bassa og
flautu. Sophus Björnsson, 20 ára.
áður í Andrá og Bláberjum, leikur
á trommur. Birgir Einarsson, 28
ára, áður í HG-sextett og Ómum
og Ellerti, leikur -á trompet og
slagverk. Stefán S. Stefánsson,
18 ára, hefur leikiö jass með
skólahljómsveitum, leiku á alto
saxófón, þverflautu og gítar.
Heiöar H. Sigurjónsson, 45 ára,
áður með ýmsum hljómsveitum,
leikur einnig með sinfóníuhljóm-
sveit Reykjavíkur, leikur á bariton
saxófón, tenór saxófón og klari-
nett. Eins og sést á framangreindu
er hljóðfæraskipan hljómsveitar-
innar fjölbreytt.og reyna þeir að
nýta sem flesta möguleika. Því
hefur oft verið haldið fram að
rekstur sjö manna hljómsveitar á
Íslandi sé allt að því vonlaus. Þeir
hafa nú samt ákveðið að hætta sér
út í þetta „stórvirki" með von um
að þetta framtak megi gleðja
tólistarunnendur.
KAltBL
BABBL
BABBL
UMSJÓN
SMÁRI VALGEIRSSON.
BABBL
BABBL
Þá er komið að þáttaskilum hjá
Hljómafjölskyldunni. Þeir Gunnar
Þórðarson og Rúnar Júlíusson
hafa ákveðið að slíta sínu áralanga
samstarfi og verða óháðir hvor
öðrum.
Þessi frétt kemur flestum á
óvart, þar sem velgengni hefur
verið mikil hjá nýjasta fyrirtæki
Hljóma, hljómplötuútgáfunni, og.
þeir verið með hverja metsölu-
plötuna á fætur annarri.
Ekki hefur fengist uppgefið,
hvað að baki liggur, en sjálfsagt er
það eins og fyrri daginn: Gróða-
kökunni þykir ekki rétt skipt.
Ekki er enn vitað, hvor heldur
gamla Hljómanafriinu, enda getur
það ekki skipt miklu máli, þar sem
báðir eru mjög þekktir einstakling-
ar og miklu frekar hægt að segja,
að nöfn þeirra sjálfra, fremur en
einhvers fyrirtækis, hafi verið fólki
trygging fyrir því, sem þeir létu frá
sér fara.
Eins og reyndar kemur fram
annars staðar hér í opnunni, hefur
Gunnar þegar stofnað sitt eigið
útgáfufyrirtæki og er þegar farinn
að viða að sér efni til úrvinnslu.
Má þar nefna sólóplötu með
Engilbert Jensen, sem sennilega
er þegar hafin upptaka á. En meira
um það seinna.
Babblbabblbabbl.
Sem kunnugt er, sendi hljóm-
sveitin Ýr frá isafirði frá sér LP
plötu fyrir síðustu jól. Almennt álit
manna er, að plata þessi sé með
afbrigöum góð, og þó svo að
Babbl hafi ekki heyrt nema nokkur
lög af henni er hann sammála þvl,
að allavega þau lög séu góð.
Það var því talsverður spenn-
ingur í mönnum, þegar fréttist, að
þessi vestfjarðahljómsveit mundi
heimsækja okkur þéttbýlinga og
fremja fyrir okkur músík á nokkr-
um böllum. Nú,við þetta stóðu
þeir gaurar í Ýr og komu í
SMA
BABBL
34 VIKAN 12.TBL.