Vikan

Eksemplar

Vikan - 18.03.1976, Side 35

Vikan - 18.03.1976, Side 35
Álftafirði, 14. jan. '76. Kæri Babblari. Ég heyri, að þú og þáttur þinn séuð að ná nærri að segja heims- frægð. Allavega eruð þið mikið f útvarpinu að undanförnu, og virð- ist þiö leggjast illilega fyrir brjóstið á þeim ágæta manni, sem sér um þáttinn „Daglegt mál" hjá ríkis- útvarpinu, svo ekki sé meira sagt. Hann, þ.e.a.s. stjórnand þáttarins „Daglegt mál" lýkur nú orðið varla upp munni á þeim vettvangi, að ekki standi frammúr honum gusan af umvöndunum, leiðrétt- ingum og tilvitnumjm, sem hann á þó erfitt með að koma út úr sér fyrir sakir hneykslunar á þessu hinu brenglaða málfari í Babbli þlnu. Og allt er þetta sett fram í slikum prédikunartóni og með þvflíkri vandlætingu, aö manni verður mál að komast á N.H. (náðhús). Þessi skammstöfun er fundin upp af mér til þess aö gleðja stjórnanda þáttarins „Dag- legt mál", og kemur skammstöf- unin í stað erlenda skammstöfun- árskrípisins W.C., sem að mínu mati hefur tröllriðið íslenskum náöhúsum og þarfindaklefum til sjávar og sveita nógu lengi, særandi fegurðarskyn og mál- kennd sannra íslendinga og til skammar fyrir landiö allt síðan á dögum Tryggva Gunnarssonar. En Tryggvá varð fyrstum manna á sú skissa, aö nauðga þjóölegum íslenskum kamri með skammstöf- un þessari, til þess að danski kóngurinn rataði á réttan stað, þegar þörf kreföi. Og þetta átti sér stað á Þingvöllum, ekki ómerkari stað, og hafði þjóðin ekki verið svikin jafn svívirðilega síðan í Kópavogi forðum. Þetta hér að ofan er skrifað sem unhugsunarefni fyrir vin okkar í þættinum „Daglegt mál", og sjálfsagt á hann eftir að senda einhverjar gusur frá sér, þegar færi gefst. Að lokum langar mig að segja það, að mér finnst fulllangt gengiö að segja þessi poppskrif vera „böðulsstarf í (s- lenskri tungu", eins og stjórnandi títtnefnds þáttar tók einhverju sinni til orða, eftir eina gusuna. Nóg að sinni. Biö þér vel að heilsa, kæri Babbl, og máttu vel og lengi lifa. Kærar kveðjur. Lesönd. Þakka þér virkilega skemmti/egt og fróðlegt bréf, kæra lesönd (hann var alveg þrælgóður hjá þér þessi með W.C.ið). Þegar ég er búinn að þurrka hláturtárin úr augunum, langar mig sannarlega að biðja þig að skrifa mér annað svona skemmtilegt og hressilegt bréf. Merkilegt hvað þetta léttir undir með geðheilsunni. Bæ, bæ, Smári Valgeirsson. heimsókn. En skelfing varð það nú endaslöpp heimsókn. Auðvitað hópuðust reykjavíkur- popparar á dansleiki þeirra kappa í Ýr, svona til að sjá, hvernig þeim gengi að standa undir gæðum plötunnar, og undirritaður heyrði það utan að sér, að mikiö hefði veriö æft á isafiröi fyrir þessa ferð, enda til mikils að vinna aö standa sig. En mikil urðu vonbrigði manna. Sumur af reykjavíkurpoppuruun- um gengu svo langt að fullyrða, að þessir menn hefðu alls ekki spilað inná plötuna, sem skrifuð var á nafn Ýr. Einn lét hafa eftir sér þessa setningu: „Þeir mundu geta þraukað hér í samkeppninni í mánuö, en svo yrðu þeir að fara vestur á ísafjörð til að fá eitthvað aö éta. Alla vega gætu þeir ekki lifað af þessu hér." Babblbabblbabbl. SKAMMLIFUR LITLI BRÓÐIR Ég hef talsvert gert af því að hampa hér afkvæmi einu, sem skaust í heiminn á síðasta ári og nefndist Samson. Afkvæmi þetta var í ætt við náunga einn óprútt- inn, er Samúel heitir, en sá hefur getið sér orð á hinum almenna tímaritamarkaði hérlendis. Eiginlega má heita, að þessi greinarstúfur sé hálfgerð minn- ingargrein. Jú, þið eigið kollgát- una. Samson er allur, kominn undir torfuna, sér ekki framar dagsins Ijós. Það var á fundi, sehi ritstjórar og aðrir aðstendendur Samúels og Samsonar héldu laugardaginn 28. febrúar, sem ákvörðun var tekin um andlát Samsonar hins unga. Aðeins komu út tvö tölublöð af Samsyni, svo ekki varð gangan mjög löng, enda er yfirleitt fljótt að koma í Ijós, hvort rit eiga rétt á sér eður ei. Það verður að segjast eins og er, að mikil eftirsjá er að Samsyni, og óskandi hefði veriö, að útgáfa hans hefði getað haldið áfram. En aðstendendum hans er ekki láandi þó þeir vilji ekki borga stórfé með hverju tölublaði, því staðreyndin blasir við í einfaldleika sínum: Það var tap á útgáfunni! En hver vegna var tap? Seldist blaðið ekki nógu mikið? Var blaöið of vandað? Var blaðið of dýrt, til að unglingar hefðu efni á að kaupa það? Var efnið ekki nógu gott? Voru unglingar of vandfýsn- ir? Eða voru unglingarnir of áhugalitlir til að styðja blað, sem eingöngu var sniðið við þeirra hæfi? Svona mætti lengi spyrja. Mér finnst það óneitanlega furðulegt, þegar beinlínis er verið að gera eitthvað fyrir ungt fólk, að þá loksins sest það útí horn og steinrennur — segirekki múkk. En ef ekkert er gert, ja þá vantar ekki upphrópanirnar. Það vill enginn neitt fyrir okkur gera, segir unga fólkið og setur upp skeifu. Allt um það. Samson er dauö- ur, og nú vantar bara, að einhver ríði á vaðið og geri einhverjar róttækar breytingar til batnaðar, eða viljum við ekki eiga okkar eigið málgagn? HÁÐFUGLAR Á BREIÐSKÍFU Halli og Laddi komast loks að Babbl stökk upp til handa og fóta, er það barst honum til eyrna, að hinir óborganlegu Halliog Laddi væru alvarlega farnir að hugsa um efni á LP plötu, þá fyrstu, sem þeir senda frá sér. Mikið var, segi ég nú bara. Það er sannarlega tími til kominn, að við fáum að heyra þessa háðfugla á breiöskífu. Þegar ég loksins náði tali af Ladda, þar sem hann stóð f hljómplötudeild Karnabæjar í Austurstræti og studdi sig við LP plötu, vildi hann sem minnst úr öllu gera. Jammaði bara og hummaöi og sagöi, að þetta væri ekki alveg á hreinu og þar fram eftir götunum. Samt tóks mér að fá það uppúr kappanum, að hið nýja útgáfu- fyrirtæki Gunnars Þórðarsonar vildi fá þá á samning, og væri verið að ræða málin þessa dag- ana. Laddi sagöi, að Gunni ætlaði sér að fara til Englands nú fljótlega, og ef af samningum yrði, mundu þeir ganga frá honum, áður en Gunni héldi utan. Ef svo semst verður platan tekin upp í Englandi, „í flottu stúdíói með effektum og fíníríi, þar sem maöur getur flippað almennilega út", sagði Laddi og glotti prakk- aralega. Varðandi væntanlegt efni plöt- unnar, vildi Laddi sem minnst upplýsa Babbl. „Við förum bara út, með magann fullan af hug- myndum og ótal punktum, og svo verður bara vinsað úr það besta", sagöi Laddi og yppti öxlum. Babbl óskar þeim fuglum til hamingju með þetta skref og mun sannar- lega bíða með eftirvæntingu eftir afkváeminu. 12. TBL. VIKAN 35

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.