Vikan

Issue

Vikan - 18.03.1976, Page 39

Vikan - 18.03.1976, Page 39
RÖMER FÆST i VÖRÐUNNI, og má nota hann hvort sem er í f fram- eða aftursæti. Ekki eru nein öryggisbelti í þessum stól, heldur púði, sem spenntur er fyrir framan barnið og kemur í stað öryggis- belta. Ekki er hætta á, að barnið komist úr stólnum, og engin hætta á, að það geti runnið undan púðanum, því það er vel skorðað. Þessi stóll fær mjög góða dóma ( þýskum blöðum, sem hafa gert strangar öryggisprófanir á barna- stólum. Römer er mjög léttur og þægilegur (meðförum og festingar viö bílinn góðar. Römer er mjög öruggur, og miðað við verð eru einna best kaup í honum. CINDICO FÆST i VÖRÐUNNI. Cindico er mjög svipaður og KL stólinn, með samskonar öryggis- beltum og byggður á mjög svip- aðan hátt, þó er hann ódýrari en KL, en alveg eins öruggur. HERLAG FÆST EINNIG i VÖRÐUNNI. Herlag Hs 100 er með fjögra punkta öryggisbelti, yfir herðar, og mjaðmir, en ekki milli fóta. Þessi stóll er úr plasti og heldur veiklulegur og gæti jafnvel brotnað. Festing er bara neðan á stólnum, svo hann gæti slengst til í ákeyrslu. Herlag er lítið fóðraður og ekki öruggur. Ekki vill þátturinn mæla með honum. GÍSLI J JOHNSEN SELUR BRITAX, sem er talinn mjög öruggur. Barnið situr vel í þessum stól, öryggisbeltin eru yfir axlir, mitti og á milli fóta. Britax er vel fóðraður og skoröar barnið vel. Hægt er að hækka og lækka stólinn með því að færa til á ólunum, sem festa hann við bílinn. AUKAMÆLAR í BÍLA Oft er gert góðlátlegt grín að þeim, sem setja aukamæla í b(la sína, sagt, aö þeir séu með bíla- dellu og þar fram eftir götunum. En þeir sem grínast, gera sér ekki alltaf grein fyrir, að aukamælar gera einmitt mikið gagn og geta sagt ökumanni allt um það, hvernig vélinni líður hverju sinni. Ætlunin er að kynna aukamæla í bíla hér í þættinum og lýsa, hvaða gagn þeir geta gert. Ef við tökum Vacuum mæli fyrir fyrst, þá má spara bæði bensín og óþarfa slit á vél. Vacuum mælirinn er mjög einfaldur í tengingu. Slanga, sem fylgir með mælinum, er tengd við soggreinina, og sýnir mælirinn þá þrýstinginn í sog- greininni og gefur til kynna, hvort allt það bensín, sem sogast gegn- um blöndunginn niður ( soggrein- ina, komist til skila f brennsluhólf- in. Þegar nálin á Vacuum mælin- um er á réttum stað á skífunni er besta nýtingin á bensíninu og vélin vinnur léttast, erfiðar ekki á Vacuum mælirinn kostar aöeins 2.860 kr., en getur sparaö stórfé. Isingarmælirinn kostar 7.100 kr. Tenging Vacuum mælis er mjög anöweld. HITA Tenging ísingarmælis. of háum eða of lágum snúningi. Vacuum mælar eru alls ekki dýrir, miðað við það sem þeir geta sparað. Þeir kosta tvö— þrjú þúsund krónur. ★ ★ ★ Svo er líka til ísingarmælir. Þetta hljómar kannski einkenni- 'ega, en það er útihitamælir fyrir bíla. ísingarmælirinn er tengdur í kraft í öryggjaboxi og í jörð, síðan í hitamótstöðu, sem komið er fyrir undir framstuðaranum, svo hita- stig mælist sem næst jörðu. Þegar hitastig er komið niður í +2°, þá kviknar rautt Ijós í mælinum, svo betur sé tekið eftir því, ef hitastig lækkar. ísingarmælirinn getur ver- ið mikið öryggistæki, til dæmis ef ekið er uppi á heiðum, þar sem hitinngeturverið lægri en niðurvið sjó, og fólk áttar sig oft ekki fyrr en um seinan á því að komin sé hálka eða ísing. Verðið er ( tringum sjö þúsund krónur. 12. TBL. VIKAN 39

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.