Vikan - 18.03.1976, Síða 40
1
í KIRKJUGARÐI.
Draumaþáttur!
Mig langar að fá þennan draum ráðinn.
Mig dreymdi, að ég var að fara í kirkju-
garðinn hérna á staðnum ásamt manninum
mínum og systur, en þau eru bæði dáin.
Erindið var að finna grafreit handa barni,
sem mér fannst við eiga, og átti að fara að
jarða. Þarna í kirkjugarðinum sá ég opna
gröf, sem ég vissi að átti að greftra í konu
að nafni ...., en hún er löngu dáin.
Svo fannst mér ég segja, að best sé að
jarða barnið fyrir ofan grafreitinn, sem
tengdaforeldrar mínir eru jarðaðir í, og þar
var maðurinn minn að fletta grassverðinum
ofan af. í því varð mér litið yfir kirkjugarð-
inn, og sá ég þá, að búið var að höggva
öll trén alveg niður við jörð.
Ég vissi, að ég þurfti að flýta mér til
jarðarfararinnar, en leiddist að eiga engin
blóm á litlu kistuna. Þá varð mér litið niður
og sá ég þá gleymmérei. Ég tók hana upp
og vaknaði við það.
Vinsamlega birtið ekki nöfn.
Með fyrirfram þökk.
G.Ö.
Draumspekingar te/ja margir, að kirkju-
garður og grafir i draumi séu fyrir armæðu
og mótiæti. Hitt er einnig áiit fiestra
draumspekinga, að fá draumtákn séu
gæfuiegri og boði meiri hamingju en látnir
ástvinir á iífi. Þessi tákn eru bæði áberandi
í þínum draumi og þar sem merking þeirra
rekst svona gersam/ega á, draga þau hvort
um sig mjög úr merkingu hins. Draumráð-
anda finnst gleymméreiin i lok draumsins
aðaiatriði hans og áhrifaríkasta táknið, og
að öllu saman lögðu getur hann ekki sagt,
að þessi draumur sé fyrir einhverju afmörk-
uðu efni eða atburði. Hann fjallar fyrst og
fremst um spurninguna, sem Steinn
Steinarr orðaði svo: ,,Hvort er ég heldur
hann, sem eftir Hfir, eða hinn sem dó?"
hvort mamma væri ekki reið, en hún var
ósköp góð við mig. Svo sagði ég mömmu,
að barnið þyrfti að fá einhverja mjólk, en
þá sagði hún, að ég mætti ekki gefa því
brjóstamjólk, því að ég væri svo ung ennþá,
svo hún ætlaði bara að gefa því venjulega
nýmjólk.
Mér fannst þetta allt voða skrítið, og
draumurinn endaði með einhverju rugli um
þetta.
Með fyrirfram þökk fyrir ráðninguna.
A.S.
Draumur þessi er fyrir einhverjum minni
háttar vandræðum, sem þó vatda þér tölu-
verðum leiðindum.
Þessi draumur er fyrir brúðkaupi einhvers
I fjö/skyldunni, sennilega sjálfrar þín. Ekki er
auðve/t að sjá, hversu langt er þangað ti/
draumurinn kemur fram, en sennilega
verður það á þessu ári.
BARNSBURÐUR.
Kæri draumráðandi!
Mig dreymdi í nótt, að ég væri að fara að
eignast barn. Og ég er búin að vera að
hugsa um þetta [ allan dag.
Draumurinn var þannig, að ég var að fara
að eignast barn, og svo gekk ég til allra,
sem ég þekkti, og spurði, hvort þeir vildu
vera viðstaddir, og allir sögðu já við því.
Svo man ég ekki meira fyrr en ég var búin
að eignast barnið, en ég átti það í svefnher-
berginu heima. Ég var alltaf að hugsa um,
Kæri draumráðandi!
Mig langar til, að þú ráðir fyrir mig
draum, sem mig dreymdi nýlega og ég hef
haft miklar áhyggjur af. En fyrst vil ég
þakka þérfyrir þáttinn þinn, sem mér finnst
ágætur og mætti vera lengri.
Mig dreymdi, að ég var heima hjá mér,
þegar ég frétti allt í einu, að pabbi minn
væri dáinn, en það er hann í rauninni ekki.
Ég varð alveg ægilega hrygg og grét, svo
ég flóði öll í tárum. Ég reyndi snöktandi að
gera eitthvað til gagns, og ætlaði að taka
bílinn út úr skúrnum og keyra út í kirkju.
Þá var kominn í skúrinn bíll, sem mér fannst
pabbi eiga, rauður og hvítur fólksbíll.
Ég held, að ég hafi tekið bílinn, sem við
raunverulega eigum, og fór svo inn aftur.
Þá var þangað kominn vinur pabba, sem
heitir Hjörleifur, en býr ekki á staðnum.
Líkkista var einnig þar, stór og skjannahvít,
með rauðum, fallegum blómakransi ofan á.
Mér fannst pabbi vera í kistunni, en ég sá
hann aldrei. Ég grét allan tímann, alveg frá
af sorg. Vinir, sem ég þekkti ekki reyndu að
hugga mig, en um leið og þau minntust
á pabba, sneri ég mér undan og grét. Þá
var ég stödd í skrýtnu herbergi, stóru,
með allavega hornum og skotum og skökku
lofti. Mér fannst það sniðugt, og gat vel
hugsað mér að búa þar.
Einhvern tíma í draumnum var ég í kirkj-
unni, en ég man það varla. Allt í einu var
ég komin heim aftur og Hjörleifur sagði:
,,Ég hafði alltaf hugboð um, að þetta færi
svona", og átti við pabba.
Draumurinn varð ekki lengri, og ég
vaknaði snöktandi.
Með fyrirfram þakklæti,
Vikka.
„HANN ER KOMINN".
Kæri draumráðandi!
Mig langartil að biðja þig að ráða draum,
sem mig dreymdi í nótt, sem leið.
Mérfannst vinkona mín, sem ég kalla S,
hringja til mín, og um leið og ég tek upp
símann, heyri ég hennar rödd og karl-
mannsrödd segja: Halló!
Svo segir S: Farðu burt, farðu!
Við mig segir hún: Veistu hver er
kominn? Hann er kominn! Hann er kom-
inn!
Þessi „hann" er strákur, sem ég þekki og
hugsa mikið um. Hann hefur verið í burtu
undanfarið, og er ekki væntanlegur strax.
Þegar S segir þetta í símann, verð ég mjög
glöð, og ég spyr hana, hvernig hún viti
þetta. Hún segist hafa verið að ganga á
Hringbrautinni, og hann kom þar gangandi.
Um leið og hún segir þetta, sé ég sjálfa mig
á gangi á Hringbrautinni og hann kom á
móti mér.
Hvernig var hann? spyr ég S.
Hann var stórkostlegur! Hann var stór-
kostlegur! hrópar S í símann.
Um leið og ég vaknaði fannst mér eins og
hann væri kominn, en þó veit ég, að hann
er ekki væntanlegur fyrr en eftir tvo til
þrjá mánuði.
Ég mundi drauminn mjög vel, þegar ég
vaknaði.
Ég vona, að þú getir ráðið drauminn
fyrir mig, því að hann skiptir mig miklu
máli.
Meðfyrirfram þökk. ýr.
/ fljótu bragði virðist þessi draumur ekki
vera sérlega markverður og mótast mjög af
hugsunum þínum i vöku, en sé betur aö
gætt, eru i honum tákn, sem benda til þess,
að hann leyni á sér. Þú færð sennilega
ti/boð, sem býður upp á marga möguleika.
Þig langar mest til að hafna því, vegna
þess að þú efast um, að þú valdir verkefn-
unum, sem þér verða falin á hendur, ef
þú tekur boðinu. Hugsaöu þig vandlega
um, áður en þú hafnar boðinu, því að það
gæti breytt lífi þínu til hins betra. Þess ber
að gæta, að pilturinn í draumnum skiptir
ekki máli í þessari ráðningu og stendur
ekki í sambandi við tilboðið. Hann er þar
bara eins og hvert annað draumtákn.
MIG ÐREYMEH
40 VIKAN 12. TBL.