Vikan - 01.04.1976, Page 5
okkar eftir því, segir Rolf, sem er kominn úr
kaupsýslumannshlutverkinu í inniskóna og
nýtur þess greinilega að slaka á í faðmi fjölskyld-
unnar.
— Hér lifir maður innilífi 10 mánuði ársins,
grúfir sig yfir bækur og sjónvarp við trópískan
stofuhita og verður bara værukær og kvefsæk-
inn. Nútíma borgarbúareru komnirsvo óralangt
frá náttúrunni, og það er synd, að íslendingar,
sem eiga land, sem miðað við önnur velferðarríki
eralgjörlegaómengað.skuliekkigeta notið þess
í ríkari mæli.
— Þettaerhreinasta ,,plastlff", sem við lifum
hér,a.m.k.yfirmyrkustumánuðiársins. Fólklifir
svo inn ísig, og það er líka eins og dofni yfir öllum
viðskiptum á þessum tíma, og svo þegar sést til
sólar kemur þessi fítonsandi yfir mann, og lífið
og tilveran verða strax bjartari.
— Þótt við íslendingar séum að eðlisfari
þungirog stundum kannski helst til neikvæðir,
má skrifa flestar andlegar lægðir á reikning
veðurfarsins, segir Rolf og skellihlær, svo
auðséð er að hann hefur þegar hrist af sér
skammdegisdrungann.
Næst spyrjum við Rolf, hvort kaupsýslan sé
hans köllun eða hvort hann hafi leiðst út í hana af
tilviljun, eins og svo oft er um unga menn, þegar
þeir velja sér ævistarf.
— Eftir að hafa reynt eitt og annað bæði til sjós
og lands, ákvað ég að verða loftskeytamaður.
Mér hafði alltaf fundist, að loftskeytamennirnir
á skipunum lifðu svo þægilegu og náðugu lífi,
væru alltaf úthvíldir, því þeir gerðu hreint ekki
neitt, en samt gat skipið ekki verið án þeirra. Ég
sá þarna fram á áhyggjulausa ævidaga, en
komst aldrei í sæluvistina, því ég kolféll á al-
gebruprófinu inn í loftskeytaskólann.
— Það kom sér nú vel, að í æðum mínum rann
ólgandi kaupmannsblóð, báðir afar mínir höfðu
verið kaupmenn á Austurlandi ísínatíð. Móður-
afi minn var Þórhallur Daníelsson á Hornafirði,
og föðurafi minn og alnafni, Rolf Johansen,
verslaði á Reyðarfirði, þarsem ég ólst upp. Báðir
áttu það sameiginlegt, að Jónas frá Hriflu gerði
þá „fallit".
— Þótt sjávarseltan hafi kannski aldrei átt
nógu vel við mig, vissi ég ekki af, fyrr en ég var
aftur kominn á skipsfjöl, með sölumanna-
passann upp á vasann og talandann á réttum
stað, íæðisgenginnisamkeppni við 15—20aðra
4 VIKAN 14.TBL.
Hér sitja yngstu heimasæturnar Linda og
Kristin á fortéta útskornum bekk, sem ættaöur
er alla leið austan frá Kína.
Hér sjáum við inn í borðstofu Johansenshjón-
anna. Húsgögnin eru úr dökkri eik, og yfir
skápnum hangir stórt olíumálverk eftir Pétur
Friðrik og á hliðarveggnum andlitsmynd af
húsfreyjunni Kristínu.
farandssala, sem allir vildu koma út svipuðum
söluvarningi í litlu sjávarplássunum með
kaupfélaginu og einni eða tveim kramvörubúð-
um. Þótt þetta hafi verið slítandi líf, er
sölumennskan ómetanlegur skóli öllum þeim,
sem ætla að leggja fyrirsig viðskipti. Þetta gefur
innsýn í margar hliðar mannlífsins og er
einskonar skyndinámskeið í sálarfræði.
Meðan Ijósmyndari Vikunnar og Rolf skipta
um hlutverk að því leyti að Rolf skýtur á
Ijósmyndarann, með litlu japönsku vasamynda-
vélinni sinni, spyr ég Kristínu, hvort það hafi
verið sjómaðurinn eða farandsalinn Rolf, sem
hún giftist.
— Ég var óskaplega ung og gekk beint út úr
Kvennaskólanum með nellikuna í barminum og
prófskírteiniðíhendinniog settist upp í bílinn hjá
Rolf, sem beið mín fyrir utan. Nú höfum við ekið
saman eftir ævibrautinni í 18 ár, og börnin í
aftursætinu eru orðin 6.
— Ég giftist hvorki sjómanninum eða
farandsalanum, heldur „popparanum" Rolf,
ekki poppara í nútímamerkingu, heldur vann
Rolf umþessarmundir hjáfyrirtækinu Kumulus,
sem framleiddi poppkorn.
— Ég var þá innanbúðar hjá föður mínum
Asgeiri Asgeirssyni, sem verslaði í Þingholts-
strætinu, og Rolf var að reyna að plata inn á mig
poppkorni. Hann var það slyngur og ákveðinn í
sölumennskunni, að hann plataði sjálfum sér inn
Ekki er hún amaleg afmælistertan hans Rolfs,
enda bökuð eftir danskri uppskrift niðri á
Hressingarskála.
Úr hinni heimilis/egu setustofu meö mjúkum sófum og stó/um er fallegt útsýni yfir Laugar-
dalinn. Á veggnum yfir sófanum hangir mynd eftlr Veturliða Gunnarsson listmálara.
á mig og sjarmeraði móður mína upp úr skónum.
Og því fór nú sem fór.
— Við eru afskaplega ólík að eðlisfari. Ég er
frekar jarðbundin, og Rolf er stundum upp í
skýjunum, en ég held, að við bætum hvort
annað upp, því ég toga hann niður, og hann
dregur mig upp, og þannig tekst okkur að halda
okkurásama plani. Viðförum ekki inn á verksvið
I hvors annars, hann stjórnar fyrirtækinu og ég
heimilinu, og svo reynum við eftir bestu getu að
ala upp börnin í sameiningu.
— Þaðerkannskitilof mikilsmælst, að6barna
móðirhafitímaaflögu til tómstundaiðju, Kristín,
en ef þú hefðir frjálsa stund fyrir sjálfa þig,
hvernig myndir þú verja henni?
— Ég reyni að skipuleggja mína vinnuviku
Hér leikur Linda fingraæfingarnar sínar á
pianóið fyrir Kristinu sem virðist alveg heilluð
af kunnáttu stóru systur.
14. TBL. VIKAN 5