Vikan

Eksemplar

Vikan - 01.04.1976, Side 26

Vikan - 01.04.1976, Side 26
var nefnilega ein hinna mörgu halla Kinsky- ættarinnar. Nobel vissi ekki þá, að höllin hafði verið seld, var ekki lengur í eigu Kinskyanna. En forlögin láta ekki að sér hæða, því að einmitt á þessum stað skaut þriðju konunni upp í lífi Alfreds Nobels og enn skyndilegar en Berthu. Dag einn gekk hann inn í blómabúð þeirra erinda að kaupa fallegan blómvönd og unga stúlkan, sem afgreiddi þar, vakti þegar í stað athygli hans. Hún var kannski svolítið grófgerð, en eigi að síður dæmigerð austurrísk kona. Þar að auki var hún lítil vexti eins og hann sjálfur, skjót til svars og bros- mild. Blágrá augun í dökkum umgerðum voru töfrandi, og hárið var þykkt, svart og hrokkið. Stúlkan hét Sofie Hess. Hún var tvítug og bjó inni í keisaraborginni Vín, en í fátækra- hverfinu við Praternstrasse. Umhverfið í þessu hverfi borgarinnar var langt frá því að vera glæsilegt. Þar blasti fátækt og eymd við hvert sem litið var. Sofie varð að sjá fjölskyldu sinni farborða af lélegum launum sínum. Hún var dóttir álnavörukaupmanns af gyðingaætt- um, og verslun hans gekk ekki sérlega vel. Laun Sofie komu því í góðar þarfir á heimilinu. Alfred Nobel fékk þegar í stað áhuga á þess- ari stúlku, hann varð hrærður og ástfanginn, og strax sama dag bauð hann ungu stúlkunni í ökuferð. Hann keypti einnig armband handa henni. Þarna sá Sofie tækifæri, sem hún vildi ekki sleppa, því að hana dreymdi um líf í munaði, falleg föt, ferðalög, peninga og skemmtanir. Hessfjölskyldan var vön að henda gaman að fríðleika Sofie og segja, að snoppu- fríðleikinn væri hið eina, sem hún ætti og væri nokkurs virði. Kannski hún kæmist áfram í lífinu á útlitinu. Hinar systurnar voru nefni- lega langt frá því að vera laglegar. En nú var þetta ekki lengur tómt grín. Tækifærið var þarna, og nú var um að gera að grípa það. Öll fjölskyldan stóð á öndinni. Sofie gat alls ekki kallast greind. Alfred Nobel reyndi þó að gera úr henni það best hann gat. Hann jós yfir hana gjöfum, færði henni bækur og blöð, og lagði sig fram um að kenna henni að vera ,,fín dama". En Nobel tókst ekki eins vel og Henry Higgins í gamanleik Bernards Shaws. i fyrstu reyndi Sofie að vísu að gera honum allt til geðs, en þegar frá leið, náði meðfædd leti hennar yfir- höndinni. Sofie vildi bara skemmta sér. En Nobel var eins og bergnuminn af þessari stúlku. Fyrstu tvö árin, sem samband þeirra varði, voru þau á stöðugum þeytingi m:lli Vinar og annarra höfuðborga álfunnar. Fram- koma hennar og vankunnátta komu illa við hann, en hann gat ekki losnað undan áhrifum hennar. Auk þess fór það ákaflega í taugarnar á honum, að fjölskylda hennar krafðist stöðugt meiri fjármuna úr hendi hans. Árið 1878 taldi Alfred Nobel timabært að flytja ástkonu sína til Parísar. Hún fékk sína eigin íbúð í hæfilegri fjarlægð frá heimili hans. Hann hafði hætt við þá fyrirætlun sína að kvænast stúlkunni. Hann gerði sér Ijóst, að hann þyldi ekki sambúð við hana til lengdar. En hann hafði áhyggjur af henni, og stundum skammaðist hann sín svolítið fyrir hana. En hann gat samt ekki losnað við hana. Stúlkan hafði ógrynni af þessu ,,einhverju", sem veitti honum nokkurs konar rósemi, og hann hvíldist vel hjá henni, þegar hann þurfti á hvíld að halda eftir erfiða vinnulotu. Slík hvíld var honum ómetanleg, því að hana fann hann hvergi annars staðar. Eftir fjögur ár reyndi Sofie að fá hann til að kvænast sér, en tókst ekki að sannfæra hann um, að það væri tímabært. Ást hans á henni var orðin lítil sem engin, en kynferðislegur þokki hennar hafði enn áhrif á hann. Sofie var mikið á ferðinni. Hún flakkaði milli Parísar, Franzenbad, Karlsbad, Meran, Bozen og Wiesbaden og naut lífsins. Tólf árum eftir að þau hittust fyrst, fór Nobel að gruna, að Sofie héldi framhjá honum. Afbrýðisemin og grunsemdirnar vöknuðu við mikinn gullbaug, sem hún bar ætíð og hann vissi ekki, hvernig var til kominn, og kóf- drukkinn ungverja, sem skaut æ ofan í æ upp kollinum í grennd við hana. Það kom brátt í Ijós, að grunur Nobels var á rökum reistur, og að ungverjinn Kapy von Kapivar hafði fullt samþykki Sofie til að nota peninga Nobels til eigin þarfa. Nobel var niðurbrotinn maður, og þegar Sofiefæddi ungverjanum dóttur árið 1891, var ástarævintýrinu endanlega lokið. Nobel var þó svo stoltur, að hann sá bæði móður og barni farborða. Kapy von Kapivar lofaði að giftast Sofie til þess að barn þeirra fengi nafn aðalsættar. Stúlkan þeirra var orðin fjögra ára, þegar vígslan fór fram, og að athöfninni lokinni kyssti von Kapivar á hönd konu sinnar og sagði: — Aldrei framar. Síðar spreytti hann sig á umferðarsölu og seldi einkum brennivín. í einni slíkri ferð lauk ævi hans. Hann var dreginn liðið lík upp úr Dóná. Öll vandræðin, sem stöfuðu af Sofie, höfðu smám saman eyðilagt heilsu Nobels. Þegar hann svo var loks laus við hana fyrir fullt og allt, varð hann ákaflega einmana. En hann losnaði við að þola þá lítilsvirðingu og smán, sem hún sýndi honum með því að hóta að gefa út bréfin frá honum, 216 að tölu, árið 1896. Þá var Nobel látinn, en vinir hans björg- uðu nafni hans frá hneyksli með því að kaupa bréfin dýru verði af Sofie. Ef Nobel hefði lifað, má búast við því, að þessi framkoma Sofie hefði komið honum á óvart, því að hans sögn, hafði hún ,,litla en ekki slæma sál." 26 VIKAN 14. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.