Vikan

Tölublað

Vikan - 01.04.1976, Blaðsíða 14

Vikan - 01.04.1976, Blaðsíða 14
KVIKMVNDABOI Bette Davis er ein af lifandi ævintýrunum í Hollywood — kannski hið síðasta. Hún hefur á þeim rúmum fjörutíu árum, sem hún hefur starfað við kvikmyndir, leikið í 90 kvikmyndum og stór hlutverk í þeim flestum. Hún hefur leikið 'geðsjúklinga.drottningar og skækjur. Bette Davis hefur ekki alltaf dansað á rósum. Vonbrigðin hafa fylgt í kjölfar framans. „Það sem ég hef gert, hef ég gert sjálf. Ég ber ábyrgð á mistökum mínum. Ég ein." Svo farast henni orð í sjálfsævisögu sinni The lonely life, sem kom út í fyrra. Þetta er þó ekki alls kostar rétt hjá Bette, því að hún átti mjög metnaðargjarna móður, sem studdi raskilega við bak dóttur sinnar. Þegar Bette var sjö ára, skildu. foreldrar hennar. Faðir hennar, sem var lögfræðingur, hvarf ger- samlega burtu úr lífi fjölskyldunn- ar. Fjárhagurinn var þröngur upp frá því. En Ruthie móðir Bette gafst ekki upp. Hún lærði Ijós- myndun, og Bette fékk kennslu í dansi og öðrum kvenlegum dyggðum. Og stúlkubarnið lét sig dreyma um leikhúslíf og hjóna- band. ,,Svo þegar ég varð tvítug, buðu mamma og systir mín mér í leikhús að sjá Villiöndina eftir Ibsen. Þegar Hedvig skaut sig, dó ég með henni. Þá fann ég enn betur en nokkru sinni fyrr, að ég átti að verða leikkona." Nú hafði Ruthie fengið verkefni við sitt hæfi. Hún lét ekki sitt eftir liggja, og eftir tvö ár var Bette komin til Hollywood. Kvikmynda- jöfrarnir hristu höfuðin, þegar þeir sáu þessa litlu laglegu stúlku, og reynslumyndatökurriar fóru allar í handaskolum. Bette var full vonbrigða og viss um, að hún yrði aldrei leikkona, þegar hún setti niður í töskurnar og pantaði sér far heim aftur. En klukku- stund áður en lestin átti að leggja af stað, hringdi George Arliss hjá Warner Brothers kvikmynda- forlaginu og bauð henni aðal- hlutverk. Titrandi á beinunum launuðu kvikmyndaleikara heimsins. 30 milljónir kostar það að fá hana til að leika fyrir sig hlutverk í kvikmynd, auk 10 prósent af brúttó- tekjunum. Bette Davis í Hvað kom fyrir Baby Jane? 14 VIKAN 14. TBL. Bette eftir skilnaðinn við síðasta eiginmann sinn. Úr einni frægustu kvikmynd Bette Davis, myndinni um Elísabetu drottningu. Bette í kvikmyndinni The O/d Maid, sem var ein fyrsta mynd hennar. sagði hún já. Kvikmyndin varð geysivinsæl. Warners gerði samning við hana, og öll viku- blöðin tóku að skrifa um þessa nýuppgötvuðu stjörnu. Hún lék í átta kvikmyndum í röð. Hún hitti aftur æskuástina sína, Ham Oscar Nelson, háan, Ijóshærðan og trygglyndan mann. Þau giftu sig, og hjónabandið leit út fyrir að vera hamingjuríkt. En kvikmynda- leikurinn krafðist stöðugt meira og meira og hafði truflandi áhrif á einkalífið. Hjónabandið fór út um þúfur. Um leið fékk Bette fyrstu óskarsverðlaunin. „Þegar ég stóð þarna með styttuna, fannst mér allt í einu, að þessi litli maður líktist manninum mínum ákaflega mikið. Ég skírði hann Öskar á stundinni. Og Óskar hefur hann heitið síðan." Hún giftist fljótlega aftur, í þetta sinn Arthur Farnsworth, sem var rólyndur maður og hafði ekki af- skipti af kvikmyndum. Frægð og frami Bette hafði engin áhrif á hann. Bette var óumræðilega hamingjusöm. En eftir tveggja ára hjónaband varð hún ekkja. Þá var hún 35 ára. Milljónirnar streymdu inn — kvikmyndaheimurinn lá flatur fyrir fótum hennar. Hún fékk tvenn óskarsverðlaun á tveimur árum. Kvikmyndirnar, sem hún lék í, nutu mikilla vinsælda, og frægð- arsól hennar hækkaði stöðugt. Bette giftist í þriðja sinn, nú William Grant Sherry, en hann reyndist fela tillitsleysi og grimmd undir kurteislegu yfirborði sínu. Þau eignuðust dóttur saman. Bette hætti að leika, því að barnið var henni meira virði en kvikmyndirnar. En lífið með Will- iam varð stöðugt erfiðara, og loks gafst hún upp og keypti sig lausa úr hjónabandinu. Þrátt fyrir vonbrigðin giftist Bette enn, og fjórði eiginmaður hennar var leikarinn Gary Merill. Bette var orðin 42ja ára og gat ekki eignast fleiri börn. Þau hjónin ættleiddu því tvö börn. Loks hafði draumur hennar um stóra fjölskyldu ræst. Þau fluttu frá

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.