Vikan - 01.04.1976, Qupperneq 18
940157279497214
BERA STÚLKAN HOPPAR
UPP OG NIÐUR
Vandann að muna tölur, sem
sennilega er erfiðast af öllu að
muna, má leysa á einfaldan máta,
eða með því að læra í eitt skipti
fyrir öll aðferð við að breyta tölum
í hljóð. Hér er um að ræða aðeins
10 hljóð í stað talna. Jafnframt
verða hér gefnar upp minnisað-
ferðir til að auðvelda þér að muna
hljóðin, sem koma í stað talnanna,
þannig að ef þú tekur vel eftir, (
mun þér sennilega nægja að lesa
það yfir einu sinni til að muna það
áfram.
Fyrst, til að gera málið einfald-
ara fyrir þig, er rétt að útskýra, að í
okkar talnakerfi eru' aðeins 10
tölur, eða 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9 og
0. Til eru líka 10 grundvallarhljóð.
(Að vísu má segja að til séu fleiri,
en þessi 10 grundvallarhljóð munu
nægja okkur).
Hugsaðu um stafina t, d og þ í
nokkur augnablik. Þrátt fyrir það
að hér sé um þrjá stafi að ræða og
á víðsfjarlægum stöðum í stafróf-
inu, mynda þeir svipað hljóð.
Raddfærin (tungan, tennur, varir)
eru öll í sömu stellingu þegar borið
er fram t, d og þ. 7-hljóðið er
dálítið harðara en d-hljóðið, og
það er allur munurinn. Til okkar
þarfa munu þessir þrír stafir eða
hljóð verða hugsaðir sem eitt
hljóð.
Reglan um, að raddfærin skuli
vera í sömu stellingu til þess að
tvö hljóð teljist sem eitt, gildir fyrir
aðra stafi á sama hátt. T.d. mynda
stafirnir f og v svipað hljóð, þótt
stafirnir séu óskyldir. Hér er aftur
aðeins um þann mismun að ræða,
að framburður annars stafsins er
óraddaður, en hins raddaður, og
hér er það einnig tilfellið, að
raddfærin tunga, tennur og varir
eru í báðum tilfellum í sömu
stöðu.
P og b eru framburðarlega þeir
sömu í þessu tilliti. Einnig j og é
Því tungan hreyfist á sama hátt
við að mynda þessi hljóð. Þannig
er eínnig tilfellið með k og hart g
(köttur — gat).
Gott og vel. Það eru 10 slík
hjóð, og það eru hljóðin, sem við
höfum áhuga á. Ekki stafirnir
sjálfir. Allt og sumt, sem við
gerum, er að velja hljóð fyrir
hverja tölu, og þannig eru aðeins
10 hljóð til að læra. Þetta köllum
TOLUR
j 6. tbl. VIKUNNAR birtist grein um minnisfræðinginn
HARRY LORAYNE, og í henni var nokkuð lýst hinu ótrúlega
minni, sem hann hefur þjálfað upp hjá sér - og kennir nú
öðrum þetta minniskerfi. í greinarlok var tekið fram, að þeir,
sem hefðu einhvern áhuga á frekari upplýsingum um þetta
mál, gætu sent VIKUNNI nafn sitt og heimilisfang.
Viðbrögð lesenda voru snögg og skýr. Mikill fjöldi fólks úr
öllum stéttum og á öllum aldri hefur þegar lýst áhuga sínum
á málinu og beðið um fleiri upplýsingar um það. Sem svar
við öllum þessum þréfum þirtum við hér þýðingu og
aðlögun á stuttum kafla úr bók eftir Harry, þar sem hann
kynnir nokkuð aðferð sína við að muna tölur. Meiningin er
annars sú að reyna að setja saman einhverskonar kver eða
kennslubók um þetta kerfi eða annað svipað og gefa fólki
kost á því. í þeim tilgangi m.a. eru öll bréfin vandlega
geymd, og verða sendendur þeirra látnir ganga fyrir, þegar
að því kemur, og áhugafólk getur áfram sent inn nöfn sín og
heimilisföng, og mun þá samband haft við það síðar.
En á meðan undirbúningur slíks kvers stendur yfir, er hér
— eins og áður er sagt — enn frekara sýnishorn af hluta úr
kerfi þessu, og vonum við, að það megi koma að einhverju
gagni, þar til síðar.
táknaður með hljóðinu sem mynd-
ar bókstafinn r. Einfaldasta
aðferðin við að muna það er að
orðið fjórir hefur tvö r hljóð.
Talan 5 verður alltaf táknuð
með stafnum /. Aðstoðin er
þannig: Réttu úr öllum fimm
fingrum einnar handar. Þumallinn
beint út. Hann myndar bókstafinn
I:
Talan 6 verður alltaf táknuð
meðhljóðunum/eða é. Talanóog
stórt J eru næstum spegilmynd
hvort af öðru.
Talan 7 mun alltaf verða táknuð
með hljóðinu h, k, eða g
(köttur — getur) Aðstoð: Hugs-
aðu um orðið ,,sjö", það er eini
tölustafurinn með ö-hljóði. Mynd-
aðu svo orðið köttur. Þar er /r-ið
komið.
Talan 8 verður ávallt táknuð
með hljóðinu, sem myndast, þeg-
ar þú berð fram stafina /eða v. Til
þess að hjálpa þér við að muna
það fljótt, hugsaðu þér þá, hvern-
ig þú skrifar stafinn f. Hann er ekki
ólíkur tölunni 8 — með tveimur
lykkjum, hvorri fyrir ofan aðra.
Talan 9 mun ávallt táknuð með
hljóðinu, sem myndast við stafina
p eða b. Talan 9og stafurinn p eru
næstum því nákvæm spegilmynd
hvort af öðru.
Og að lokum mun tölustafurinn
Oávallt tákna stafinn s — og hvað
svo? Mundu bara orðið svo, en
þar kemur fyrir bæði s og 0.
við hljóðstafrófið. Lærðu það,
því þegar þú hefur gert það,
muntu nota þaö allt lífið. Það mun
aldrei breytast. Hugsaðu ekki um
hvernig þú eigir að nota það.
Lærðu það bara. Það verður þér
ómetanleg aðstoð á margan
óvæntan hátt í framtíðinni.
Taktu nú vel eftir aðstoðinni við
að muna hljóðin. Það eru kannski
kjánalegar aðferðir, en munu samt
hjálpa þértil að muna hljóðstafróf-
ið á nokkrum mínútum. Hljóðið,
sem kemur í staðinn fyrir 1, verður
alltaf það, sem myndast við
stafina t, d, þ, og ð og öfugt.
Minnisaðstoðin, sem þú þarft
aðeins á að halda í stuttan tíma, er
svona: Vélritað t hefur aðeins einn
legg. Hugsaðu um það dálitla
stund.
Tölustafurinn 2 mun alltaf verða
táknaður með hljóðinu, sem mynd-
ast af bókstafnum n. Aðstoðin er
svona: Vélritað n hefur tvo leggi.
Hugsaðu um það augnablik.
Tölustafurinn 3 verður ávallt
táknaður með bókstafnum m.
3=mogm = 3. Litla vélritaða m-ið
hefur þrjá leggi. Einnig hér er það
hljóðið sem við höfum áhuga á, en
ekki stafurinn sjálfur.
Tölustafurinn 4 verður ávallt
18 VIKAN 14. TBL.