Vikan

Issue

Vikan - 01.04.1976, Page 20

Vikan - 01.04.1976, Page 20
9 — Þctta cr girðing, sagði hann. — Og þú veist ég cr ekki hrifinn af girðingum. Ég ætla að taka hana burtu. Hann þreif girðinguna úr sand- kassanum. Svo tók hann upp leik- fangabyssuna. kom með hana að borðinu og stakk henni í skúffuna. Hann kom auga á illa farið og gamalt brúðuhús, sem stóð á hillu, tók það niður og skoðaði það í krók og kring. — Ég ætla að gera við þetta, sagði hann. — Hvar geymirðu lím- bandið? Ég fann Iimbandsrúllu. — Hvað heldurðu. að þú þurfir mikið? spurði ég. — Þrjátíu sentimetra, sagði hann hiklaust og ákvcðið. Og það reynd- ist nákvæmlega það, sem hann þurfti. Ég tók þrjátiu sentimetra langt límband af rúllunni og rétti honum — Ágsett, sagði Dibs. — Þakka þér fvrir. — Þetta er bara snoturt hjá þér, sagði ég. — Jacja. Já, og þú ert bara snotur líka, sagði Dibs. — Og nú ætla ég að opna gluggann til að hreina loftið komist inn. Hann opnaði gluggann. — Komdu inn, loft! kallaði hann. — Komdu bara inn og vertu hjá okkur. Hann brosti til min. — Pabbi vill ekki, að ég tali við loftið, en hér inni geri ég það bara, ef mig langar til. — Já, ef þig langar, er það allt I lagi, sagði ég. — Pabbi segir að menn tali bara við menn, sagði Dibs. Það var einhver glampi i augum hans. — Pabbi segir, að ég eigi að tala við sig, en það geri ég ekki. Ég hlusta á hann, en ég tala ekki. Stundum svara ég honum alls ekki. Þá veit hann hreint ekkert hvað hann á að gcra. Það var greinilega orðið nokkurs konar talstrið milli þeirra, og Dibs var meistari í þvi að þegja. Það var vopn hans gegn gagnrýni föður síns. — Sæll, sagði hann við mig, hélt Dibs áfram. — Ég leit ekki á hann. Ég svaraði honum ekki. Hvað er eiginlega að þér? segir hann. Ég veit vel þú kannt að tala. Ég leit ekki á hann. Ég svaraði honum ekki. Dibs hló. — Þá veit hann ekkert, hvernig hann á að vera. Klukkan sló. — Klukkan — fjögur — klukku- slög og klukkan — fjögur — blóm. Og sólin er á himninum. Og það er til sólstingur. Það er svo agalega margt til. Hann gekk að vaskinum og skrúfaði fullt frá krananum. Svo skrúfaði hann fyrir, svo bunan varð örmjó. — Ég get látið vatnið dropa, og ég get látið vatnið sprautast. Alveg eftir því sem ég vil. — Já, þú getur látið vatnið í krananum vera alveg eins og þér dettur í hug. — Já, sagði hann lágt og hugs- andi. — Ég get. Ég... ég...ég.. Hann gekk um leikherbergið, barði sér á brjóst og hrópaði upp yfirsig: — Ég! Ég! Ég! Ég! Hann nam staðar fyrir framan mig. — Ég er Dibs, sagði hann. — Ég get margt. Mér likar vel við Dibs. Mér líkar vel við mig. Hann brosti ánægjulega og fór að leika sér aðvatninu. — Á ég að sýna þér svolítið merkilegt? sagði hann. Hann tók nokkur glös, raðaði þeim upp og hellti vatni í hvert glas, misjafnlega miklu. Hann tók skeið og sló henni við glösin. — Heyrirðu muninn á hljóðun- um? spurði hann. — Ég get látið heyrast mismunandi í glösunum. Það er af því það er ekki jafnmikið vatn í þeim. Hlustaðu, þegar ég slæ á þetta rör. Og þessa dós. Hljóðin eru ekki eins. Og sum hljóð, sem til eru, get ég ekki búið til. Þruman er hljóð. Og þegar ég missi eitthvað í gólfið, kemur hljóð. Það heyrist í flöskunni. Já. Ég get búið til alls konar hljóð. Og ég get haft svo lágt, alveg þögn. Ég þarf ekki að búa til hljóð. Ég get haft þögn. — Þú getur bæði haft þögn og búið til hljóð, sagði ég. — Nú ætla ég að rugla litunum, sagði hann. — Hverjum einasta. Og nú set ég vitlausa pensla í litina. Hann gerði eins og hann sagði. Hann steig skrefi aftar, horfði á teiknigrindina og hló. — Allir hver innan um annan, sagði hann. — Svoleiðis eru þeir. Ekki í röð og reglu. Og það er vitlaus pensill í vitlausum lit. Þetta hef ég gert. Ég hef gert allt vitlaust. Hann hló. — Þú ert búinn að rugla öllu, bæði litunum og penslunum, sagði ég. — Búinn að róta og rugla. Kannski hef ég aldrei rótað og ruglað svona mikið. En nú verð ég að raða þeim I rétta röð, taka pcnsl-

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.